|
|
|
| Árið
2005 í fimleikum
- Óskum ykkur velfarnaðar á nýju ári
og þökkum fyrir þau gömlu - |
|
31/12/05 |
Á
sama tíma og við á fimleikar.is óskum
ykkur öllum velfarnaðar á nýju ári
og þökkum fyrir þau gömlu þá
birtum við í fyrsta skiptið áramótaannál
yfir helsu viðburði í ársins.
•
Á Íslandsmótinu í hópfimleikum
sigraði Stjarnan í Garðabæ með nokkrum
yfirburðum eins og á öðrum hópfimleikamótum
vetrarins (mars)
• Á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum
sigruðu Viktor Kristmannsson og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir
í fjölþraut, bæði úr Gerplu.
Kristjana sigraði einnig á þremur áhöldum
af fjórum í úrslitum en á tvíslá
sigraði Sif Pálsdóttir Gróttu. Viktor
sigraði einnig á 5 áhöldum í úrslitum
á áhöldum en í gólfæfingum
sigraði Jónas Valgeirsson úr Ármanni.
(mars)
Nánar hér.
|
|
Íslenskar stúlkur gera það gott í
nútímafimleikum
- Hulda Sunna og Hekla Rún Svavarsdætur - |
|
|
Ávallt
er gaman að fylgjast með íslensku fimleikafólki
erlendis. Fyrir nokkru sögðu við frá Kristínu
Gígju Gísladóttur sem keppt hefur fyrir
Íslands á alþjóðlegum mótum
í áhaldafimleikum. Það er því
ánægjulegt að geta sagt frá tveimur
systrum, þeim Huldur Sunnu og Heklu Rún Svavarsdætrum,
sem stunda nútímafimleika af miklum krafti í
Bretlandi en þær hafa nú þegar unnið
til fjölda verðlauna og verður áhugavert
að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Þær
fluttust til Englands ásamt foreldrum sínum árið
1998 og
búa í Canterbury í Kent.
|
 |
| |
Þær eru báðar íslenskir ríkisborgarar
ennþá og eru stoltar af því, en nú
er svo komið að til þess að þær
geti stundað keppni í nútímafimleikum
þurfa þær tvöfaldan ríkisborgararétt.
Þær hafa stundað nútímafimleika
hjá City of Canterbury Rythmic Gymnastic Club síðan
2001, sjá nánar heimasíðu klúbbsins
hér:
http://www.canterbury-gym.freeuk.com/index.htm
Hulda er nú 14 ára og Hekla 12 ára. Þær
hafa báðar verið í úrvals keppnishóp
frá 2003. |
| |
Árlega taka þær stigspróf og eru nú
í 7. og 8. stigi. Þær hafa báðar
staðið sig vel á alþjóðamælikvarða
í þessari íþrótt. Hulda og Hekla
voru báðar Suð-Austur meistara í Englandi
árið 2004. Þær hafa báðar unnið
til verðlauna í landskeppnum og á alþjóðlegum
mótum í Englandi og í Finnlandi, bæði
í eintaklings – og hópakeppnum.
Hekla varð í 5. sæti í Welsh meistarkeppni
í hópi 40 stúlkna og Hulda í 6. sæti
í hópi 35 stúlkna. Hulda varð í
3. sæti í Suð-Austur keppninni 2005. Þær
stefna báðar langt og eru báðar orðnar
þekkt nöfn í Nútímafimleikum í
Englandi. Þær æfa 17 – 20 tíma
á viku og eiga orðið mikinn fjölda verðlaunapeninga.
|
 |
| Fimleikaþjálfari
og eða íþróttakennari
- spennandi starf í boði - |
|
22/12/05 |
Vegna aukinna
umsvifa hjá Íþróttafélaginu
Gerplu þá er óskað eftir fimleikaþjálfara
og eða íþróttakennara til starfa hjá
félaginu. Spennandi verkefni eru framundan ásamt
því að boðið er upp á mjög
góða vinnuaðstöðu þar sem félagið
hefur nýlega tekið í notkun fullbúinn
fimleikasal í nýju Íþróttahúsi
að Versölum í Kópavogi. Lögð
er áhersla á góða menntun sem tengist
íþróttaiðkun eða fimleikaþjálfun.
Hjá félaginu starfa í dag um 40 þjálfarar
og um 800 iðkendur. Nánari upplýsingar veitir
Hallveig Andrésdóttir, framkvæmdastjóri
félagsins, í síma 557-4925 og í
tölvupósti igerpla@simnet.is
|
| Nýjar
keppnisreglur í fimleikum
- Björn Magnús, Guðmundur og Berglind
öðlast dómararéttindi samkvæmt nýjum
reglum- |
|
22/12/05 |
Björn
Magnús Tómasson, Guðmundur Þór
Brynjólfsson og Berglind Pétursdóttir hafa
nú öðlast dómararéttindi samkvæmt
nýjum reglum FIG eftir að þau hafa lokið
prófi samkvæmt nýju reglunum. Björn
Magnús og Guðmundur fóru til Þýskalands
og Berglind til Japans þar sem FIG stóð fyrir
námsstefnum um nýjar keppnisreglur.
Hefur sú grundvallarbreyting verið gerð á
dómarareglum í áhaldafimleikum að 10,0
er ekki lengur hæsta einkunnin. Notast er við opið
kerfi þar sem lagðar eru saman grunneinkunn fyrir
erfiðleika og framkvæmdareinkunn sem eftir sem áður
er dregin frá hinni fullkomnu 10,0. Gefur þetta
möguleika á betri samanburð á milli einstaklinga
og tekið verður upp að skrá heimsmet í
erfiðleika fyrir einstök áhöld og í
samanlögðum æfingar. Nú getur farið
svo að fimleikamenn fá einkunn sem verður yfir
10,0.
Á þessum markverðu tímamótum
er rétt að óska okkar dómurum innilega
til hamingju með þennan áfanga. Eru þau
meðal okkar reyndustu dómarar og munu eflaust hér
eftir sem hingað til miðla þekkingu sinni til
annarra dómara og iðkenda hérlendis en þess
má geta bæði Björn Magnús og Berglind
hafa hlotið verðskuldaða athygli hjá FIG
vegna framgöngu sinnar við dómgæslu á
erlendum stórmótum. Starfa þau öll
við fimleikakennslu, Björn Magnús hjá
Ármanni, Guðmundur Þór hjá Gerplu
og Berglind hjá Gróttu.
|
| Íslandsmet
!
- Íris Mist og Dýri gera glæsistökk á
trampolíni - |
|
22/12/05 |
Íris
Mist Magnúsdóttir og Dýri Kristjánsson
sýndu nú í vikunni stórglæsileg
stökk á trampolíni þegar þau
gerðu
tvöfallt framheljarstökk með beinum líkama
og tveimur og hálfri skrúfu. Þessa æfingu
hefur íslenskur fimleikamaður aldrei framkvæmt
á hópfimleikamóti hérlendis en það
er aldrei að vita nema það breytist á næstu
mótum. Eitt er þó víst að ekki
er um Íslandsmet að ræða í þessu
tilviki þar sem hvorki var um FSÍ keppni að
ræða né er haldin sérstök skrá
um Íslandsmet í þessum efnum. Það
breytist kannski líka í framtíðinni
!
Hópfimleikar hafa verið í miklum vexti á
undanförnum árum, keppendum fjölgar og æfingar
þeirra eru stöðugt að verða erfiðari
og erfiðari. Það er ljóst af þessum
myndböndum að spennandi verður að fylgjast
með næsta hópfimleikamóti.
|
| Úrslit fimleikamóta
- á alþjóðlegum fimleikamótum - |
|
21/12/05 |
Fimleikafólk
er hvatt til þess að skoða áhugaverða
heimasíðu sem safnað hefur saman úrslitum
á fimleikamótum undanfarna áratugi ásamt
ýmsum upplýsingum um fimleikamenn.
Slóðin er: http://www.gymn-forum.com
|
| Jólasveinamót
- 30. desember - |
|
20/12/05 |
Hið
árlega Jólasveinamót mun fara fram þann
30. desember n.k. og mun mótið fara fram að Versölum
í Kópavogi í nýju Íþróttahúsi
Gerplu. Keppendur sem hyggjast taka þátt á
mótinu skulu hafa samband við Aðalstein Finnbogason
(af@anza.is / 899-3732) en hann
ásamt Viktori Kristmannssyni eru mótstjórar
að þessu sinni. Keppni hefst stundvíslega kl.
17:00. Þegar keppni hefur verið lokið og Jólasveinn
ársins krýndur verður farið í sund
og keppendur slaka á eftir erfiðar keppnisæfingar.
Fyrir þá sem ekki til þekkja þá
er Jólasveinamótið aðeins fyrir fimleikamenn
(karla) sem náð hafa 18 ára aldri og keppt
hafa til margra ára á fimleikamótum á
vegum FSÍ. Að venju verður lokað fyrir alla
áhorfendur þrátt fyrir síendurteknar
beiðnir um að heimila slík áhorf.
Jólasveinar ... sjáumst hressir ...
|
| Kristjana Sæunn
í 3. sæti á stökki
- Alþjóðlegt boðsmót á vegum
Dinamo Moskva- |
|
16/12/05 |
Kristjana
Sæunn Ólafsdóttir, úr Gerplu, hafnaði
í 3. sæti í úrslitum á stökki
á alþjóðlegu boðsmóti sem
Dinamo Moskva stóð fyrir en það er einn
þekktasti fimleikafélag í heimi. Fyrir æfingar
sínar á stökki fékk hún 8,8
stig fyrir fyrra stökkið og 8,5 fyrir seinna stökkið
sem gaf henni 8,65 samtals. Kristjana Sæunn keppti einnig
í úrslitum í æfingum á gólf
(8,225 stig), slá (7,9 stig) og tvíslá
(7,0). Í fjölþraut hafnaði hún
í 18. sæti með 31,325 stig í yngri flokk.
Inga Rós Gunnarsdóttir keppti til úrslita
á gólfæfingum og hlaut 7,650 stig og í
fjölþraut hlaut hún 30,125 stig í eldri
flokk. Thelma Rut Hermannsdóttir keppti einnig í
úrslitum í gólfæfingum (7,050) og
hafnaði hún í 27. sæti með 29,125.
66 keppendur tóku þátt í mótnu
(38 yngri flokk og 28 í eldri flokk) og komu þeir
frá 15 þjóðum. Meðal keppenda voru
iðkendur frá Woga club í USA þar sem
Carly Peterson æfir en hún sigraði á
Ólympíuleikunum 2004 auk fjölda annarra keppenda
sem náð hafa góðum árangri á
alþjóðlegum mótum.
|
| Myndir
- Haustmót í hópfimleikum - |
|
11/12/05 |
| Afrekssjóður
ÍSÍ stykir FSÍ
- hækkun á milli ára - |
|
10/12/05 |
Afrekssjóður
ÍSÍ Ólympíufjölskyldu og sjóður
ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna
hefur tilkynnt um úthlutun styrkja 2006. Heildarstyrkur
FSÍ er metin á kr. 3.660.000.- en þar af
8 frífarseðlar en hver farseðill er metin á
35.000.- Á síðasta ári fékk
FSÍ samtals 3.370.000.- Stykir sjóðsins til
fimleikafólks hækka því á milli
ára eða um 290.000,- sem er ánægjuleg
þróun.
Rúnar Alexandersson fær áfram A styrk kr.
160.000 á mánuði og er það annað
árið sem hann er í þeim flokk íþróttamanna
sem fá mestan stuðning frá ÍSÍ.
Viktor Kristmannsson fær kr. 300.000 í styrk (28.
feb, 30 maí, 30 ág. og 30. okt.).
FSÍ fær kr. 500.000.- í styrk frá
Ólympíufjölskyldu til landsliðsverkefna
og 4 frí farseðla.
Í heild fá einstaklingar innan FSÍ kr.
800.000.- frá sjóði ungra og efnilegra, en
styrkþegarnir eru: Fríða Rún Einarsdóttir,
Gerplu kr. 200.000.- Kristjana Sæunn Ólafsdóttir,
Gerplu kr. 200.000.- Róbert Kristmannsson, Gerplu kr.
200.000.- Sif Pálsdóttir, Gróttu kr. 200.000.-
Greiðslunum verður skipt í 4 hluta , 31. mars,
30 júní, 30. ágúst og 30. okt en
skila þarf skýrslum 20. mars, 15. ág. og
20 okt.
Úthlutun 2005 hér.
Úthlutun 2004 hér.
|
| Aðventumót
Selfoss í hópfimleikum (byrjendamót)
|
|
8/12/05 |
Alls voru
15 lið frá 8 félögum skráð
til þátttöku í þremur flokkum.
Stúlknaflokkur 10 ára og yngri og 10,1 ára
og eldri. Siðan voru tvö strákalið mætt
sem var mjög skemmtilegt.
Mótið gekk vel fyrir sig og liðin sýndu
glæsileg tilþrif.
Í yngri aldursflokknum sigraði lið Selfyssinga
T5 með 23,3 stig, lið Ármanns var í öðru
sæti með 22 stig og lið Stjörnunnar (bláir)
voru í þriðja sæti með 20,7 stig.
Alls voru sjö lið í þessum flokki. Í
eldri flokknum sigraði einnig lið Selfyssinga T4 með
samtals 24,3 stig, lið Aftureldingar P2 voru í öðru
sæti með 22,45 stig og Björk J1 var í
þriðja sæti með 21,6 stig.
|
Mótaskrá
FSÍ fyrir næstkomandi keppnistímabil er
sem ég segir: sjá hér.
|
| Dómaranámskeið
í hópfimleikum |
|
7/12/05 |
Dómaranámskeið
í hópfimleikum verður haldið í
Íþróttamiðstöðinni í
Laugardal, 6. – 8. janúar 2006. Athugið
að námskeiðið er fyrir nýja dómara.
Við viljum hvetja félögin til að senda þátttakendur
á námskeiðið.
Senda þarf skráningar á námskeiðið
til skrifstofu FSÍ í síðasta lagi,
miðvikudaginn 4. janúar.
|
|
|
|