|
|
|
| |
100% aukning
í styrkjum Kópavogsbæjar
til foreldra og íþrótta- og tómstundafélaga
|
30/12/04 |
Kópavogsbær hefur tilkynnt um 100% aukningu á
beinum fjárframlögum til foreldra og íþrótta-
og tómstundafélaga í Kópavogi og
nema því alls um 44 milljónum króna
á komandi ári.
NIÐURGREIÐSLA ÆFINGAGJALDA
Gert er ráð fyrir að greiða 20 millj. aukaframlagi
til niðurgreiðslu æfingagjalda. Foreldrar barna
á aldrinum 6 - 12 ára verða styrktir með
framlagi um allt að 10 þúsund krónum
sem ranna til niðurgreiðslu á æfingagjöldum.
IÐKENDASTYRKIR
Framlag vegna iðkenda- og starfstyrkja til íþrótta-
og æskulýðsfélaga í Kópavogi
vegna iðkenda á aldrinum 6 - 20 ára hækka
um 20%. Fyrir iðkendur á aldrinum 13 til 20 ára
verður greiddur þrefaldur iðkendastyrkur sem er
hækkun um 45%.
AFREKSSTYRKIR
Varið verður 8,2 millj. til afreksstyrkja á árinu
2005 sem er 12% hækkun framlags frá fyrra ári.
Telja verður að ofangreint útspil Kópavogsbæjar
sé sérstaklega ánægjulegt og kemur
í beinu framhaldi af því að með
opnun á íþróttahúsinu í
Salahverfi, þar sem Gerpla verður með aðstöðu,
þá lýkur uppbyggingu á íþróttamannvirkjum
í Kópavogi fyrir um 5.000 milljónir á
síðustu árum. Af þessu er ljóst
að nú er stefnan tekin á að styrkja enn
frekar innvið íþróttafélaganna
og ber að fagna þessu framfaraspori.
|
Gunnar I Birgisson formaður Bæjarráðs
Kópavogs gerði grein fyrir verulegri hækkun á
framlagi til innra starfs íþrótta og tómstundafélaga. |
| |
Rúnar
Alexandersson í þriðja sæti
í vali á íþróttamanni ársins
2004
|
29/12/04
|

Rúnar Alexandersson
|
Rúnar
Alexandersson fimleikamaður í Íþróttafélaginu
Gerplu í Kópavogi varð í þriðja
sæti í vali um Íþróttamann ársins
2004. Er þetta mikill heiður fyrir hann og viðurkenning
á að árangur hans á undanförnum
misserum setur hann í röð allra fremstu íþróttamanna
þjóðarinnar. Rúnar hefur keppt á
síðustu þremur Olympíuleikum og náði
þeim frábæra árangri að komast í
úrslit á bogahesti á Olympíuleikunum
í Aþenu í sumar. Það má því
segja að Rúnar sé búinn að vera í
hópi bestu íþróttamanna Íslands
undanfarin 8 ár. |

Fimleikafólkið Rúnar Alexandersson og Þórey
Edda Elísdóttir. |
Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður
og leikmaður Chelsea í Englandi varð valinn íþróttamaður
ársins og Í öðru sæti varð
Þórey Edda Elísdóttir frjálsíþróttakona.
En segja má að fimleikafólk hafi verið
í tveimur af þremur efstu sætunum að
þessu sinni því Þórey Edda stundaði
fimleika hjá Björk í Hafnarfirði frá
8 ára aldri til tvítugs en hún sagði
m.a. í viðtali á Stöð 2 í
morgun að hún þakkaði fimleikaiðkun
sínum góða árangri í frjálsíþróttum.
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir fimleikakona
úr Gerplu komst einnig hóp bestu íþróttamanna
síðasta árs en hún hafnaði í
24. - 25. sæti. Sjá nánari umfjöllun
á mbl.is
|
| |
Rúnar
og Kristjana Sæunn
fimleikafólk ársins 2004
|
29/12/04 |
Stjórn Fimleikasambands Íslands hefur valið
Rúnar Alexandersson og Kristjönu Sæunni Ólafsdóttur,
bæði úr Íþróttafélaginu
Gerplu í Kópavogi, sem fimleikamann og fimleikakonu
2004. Við val á fimleikamanni og konu ársins
er horft til árangurs á mótum hérlendis
og erlendis. Þar hafa þau bæði verið
glæsilegir fulltrúar fimleikafólks á
Íslandi á undanförnum árum.
Rúnar er óumdeilanlega besti fimleikamaður
Íslands frá upphafi.
Þrátt fyrir ungan aldur þá hefur Kristjana
Sæunn skipað sér í raðir bestu fimleikakvenna
á Norðurlöndum. Til marks um það má
nefna glæsilegan árangur á sl. Norður-Evrópumóti
þar sem hún sigraði í opnum flokki í
æfingum á gólfi og stökki.
Árangur þeirra verður örugglega öðru
fimleikafólki hvattning til enn frekari afreka hérlendis
sem og erlendis.
|
Meðfylgjandi mynd var tekin við afhendingu
verðlaunanna á Grand Hótel í kvöld.
Frá vinstri: Anna Möller, framkvæmdastjóri
FSÍ, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Rúnar
Alexandersson og Gunnar Einarsson, formaður FSÍ. |
| |
Óskað
eftir þjálfara í Aftureldingu
|
16/12/04 |
Eins og greint var frá hér á www.fimleikar.is
í desember í fyrra (sjá hér)
þá hefur fimleikadeild Aftureldingar vaxið
gríðarlega á síðustu árum.
Samfara mikilli aukningu í allri starfssemi deildarinnar
þá óskar fimleikadeildin hér með
eftir að ráða reynda og metnaðarfulla þjálfara
til fimleikaþjálfunar stráka og stelpna.
Reynsla og menntun í fimleikaþjálfun skilyrði.
Við deildina stunda 130 börn, á aldrinum 4-13
ára, æfingar. Verið er að byggja upp deildina
og er markmiðið að efla hana og styrkja enn frekar.
Eitt af markmiðum deildarinnar er að fjölga iðkendum
og ráða metnaðarfulla og reynslumikla þjálfara.
Áhugasamir hafi samband við Önnu Margréti
Arnardóttur, framkvæmdastjóra deildarinnar,
í síma 566 6280 eða senda tölvupóst
á netfangið annamargret@simnet.is
|
| |
Fræðslunefnd
minnir á námskeið 1B og 2A
sem haldin verða í janúar 2005
|
|
16/12/04 |
Sérgreinahluti 1B – helgin 15. –
16. janúar 2005
Námskeiðið er ætlað þeim sem
eru að hefja þjálfaramenntun sína eða
hafa lokið öðrum hlutum á stigi 1. Áhersla
lögð á grunnþætti í þjálfræði,
áhaldahringi, móttöku í fimleikaæfingum,
undirbúning fimleikasýninga, tónlist og
hreyfingu o.fl. Námskeiðið verður haldið
í Reykjavík og er 20 klukkustundir bæði
verklegt og bóklegt, námskeiðsgjald er 9.000
krónur. Áætlaður fjöldi þátttakenda
er 25 manns, skráning fer fram á skrifstofu FSÍ,
póstur fsi@isisport.is (fylla út skráningarblað)
eða í síma 514-4060 fyrir 31.desember.
Sérgreinahluti 2A - 15. – 16. janúar
2005
Ætlað þeim sem hafa lokið þjálfaramenntun
á stigi 1 bæði í almennum og sérgreinahluta
eða B-stigi í gamla kerfinu. Áhersla lögð
á fimleikaæfingar framhaldshópa á
hinum ýmsu áhöldum í áhalda-,
hóp- og almennum fimleikum fyrir bæði kynin,
einnig styrkþjálfun og teygjur. Námskeiði
verður haldið í Reykjavík og er 20 kennslustundi
bæði verklegt og bóklegt, námskeiðsgjald
er 10.000 krónur. Áætlaður fjöldi
þátttakenda er 15 manns, skráning fer fram
á skrifstofu FSÍ, póstur fsi@isisport.is
(fylla út skráningarblað) eða í
síma 514-4060 fyrir 31.desember.
Athygli er vakin að þessi námskeið
verða ekki haldin aftur fyrr en í janúar 2006.
Undanþágubeiðnir um þátttöku
berast á fsi@isisport.is
|
| Eftir
góðan árangur hjá iðkendum Íþróttafélagsins
Gerplu nú í haust þá var efnt til jólamyndatöku.
Tekar voru myndir af öllum fulltrúm félagsins
á mótum sem fram hafa farið nú í
haust. Ljóst er af meðfylgjandi myndum að hópurinn
er stór og glæsilegur.
|
 |
| Fimleikafélagið
Björk í Hafnarfirði verður með sína
árlegu jólasýningu dagana 15. og 16. desember
n.k. Í Íþróttamiðstöðinni
Björk, Haukahrauni 1. Þar koma fram nemendur félagsins
í fimleikadeild, klifur og taekwondo. Búast má
við húsfylli á öllum sýningunum.
Yngstu nemendur félagsins áttu sameiginlega stund
29. nóvember s.l.
Sýningarnar verða 4 og er 1 sýningin miðvikudaginn
15. desember kl. 17 og sýning 2 kl. 19:00, sýning
3 16. desember kl. 17:00 og sýning 4 kl. 19:00
|

Norma Dögg
Róbertsdóttir á Jólasýningunni
í fyrra. |
| |
Val á
Íþróttamanni ársins á visir.is
|
|
10/12/04 |
| |
Nú fer fram val á
Íþróttamanni ársins á www.visir.is
Rúnar Alexandersson er einn af sex íþróttamönnum
sem valið er á milli. Árangur hans á árinu
er meðal annars: • Ólympíuleikar 2004
- 7. sæti í úrslit á bogahesti, 6. sæti
í undankeppninni • Ólympíuleikar
2004 - 35. sæti í fjölþraut. •
World Cup Cottbus í mars 2004 – 8. – 9. sæti
á bogahesti • World Cup Lyon 2004 í mars
- 4. sæti á bogahesti • Evrópumót
Slóveníu í maí – 24. sæti
í fjölþraut (23. sæti inn í úrslit)
|
 |
Fréttir
af heimsbikarmóti sem fram fer nú um helgina. Sjá
hverjir eru í úrslitum hjá karla og kvennaflokki
hér.
Sjá frétt hér. |
| |
Jólasýning
Fimleikadeildar Keflavíkur
|
|
7/12/04 |
| Næstkomandi
laugardag fer fram jólasýning Fimleikadeildar Keflavíkur
(17:00 - 18:30). Um er að ræða einn stærsta
viðburð ársins hjá deildinni og er nú
svo komið að engin vill missa af henni og á seinasta
ári var íþróttahúsið troðfullt
eða um það bil 1000 gestir. Iðkendur eru rúmlega
250 og leggja allir sig sérstaklega fram þennan dag
enda verður sýningin ein sú sú glæsilegasta
í sögu félagsins.
Við á fimleikar.is hvetjum fimleikafólk til
þess að taka sér smá laugardagsbíltúr
og skella sér til Keflavíkur og horfa á sýninguna.
Það er styttra en ykkur grunar ... Góða skemmtun. |
| |
38.000,- myndir
á fimleikar.is
|
|
5/12/04 |
| Frá
því að heimasíðan www.fimleikar.is
var opnuð þá hafa rúmlega 38.000,- myndir
verið birtar á síðunni en hver mynd er að
jafnaði birt bæði í lítilli og stærri
upplausn. Vonandi hefur áhugafólk um fimleika haft
gaman af. Forystumenn fimleikafélaga og aðrir eru hvattir
til þess að senda myndir á fimleikar@fimleikar.is
til birtingar á síðunni. |
| |
Fulltrúm
Gerplu á Norður-Evrópumóti
fagnað af stjórn Gerplu og stjórn FSÍ
|
|
2/12/2004 |
Stjórn Íþróttafélagsins Gerplu
fagnaði fulltrúum félagsins vel á fyrstu
æfingu þeirra eftir þátttöku þeirra
á Norður-Evrópumóti sem fram fór
í Nakskov í Danmörku 19. - 21. nóvember
sl.
Kristján Erlendsson formaður og Jón Finnbogason
varaformaður veittu keppendum, þjálfurum og
dómurum félagsins á mótinu blómvönd
og færðu þeim hamingjuóskir frá
stjórninni og félaginu öllu. Mikil ánægja
var með þátttöku hópsins á
mótinu. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir
sigraði í úrslitum í gólfæfingum
og stökki og færði þar með félaginu
fyrsta Norður-Evrópumeistaratitlana í stúlknaflokki.
Bræðurnir Viktor og Róbert Kristmannsson og
Inga Rós Gunnarsdóttir stóðu sig einnig
mjög vel á mótinu. Ástæða
þótti til að veita þjálfurum og
dómurum einnig viðurkenningu en bak við árangur
iðkenda félagsins stendur stór hópur
af þjálfurum og sjálfboðaliðum.
Birna Björnsdóttir stjórnarmaður FSÍ
og Anna Möller framkvæmdastjóri FSÍ
komu einnig á æfingu hjá Gerplu og veittu
keppendum félagsins viðurkenningu vegna árangurs
þeirra á mótinu.
|
Frá
vinstri: Vladimir Antonov, Jón Finnbogason, Viktor Kristmannsson,
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Inga Rós
Gunnarsdóttir, Róbert Kristmannsson, Mykola Vovk,
Guðmundur Þór Brynjólfsson, Kristján
Erlendsson og Svetlana Makaricheva. |
|
|
|