Fimleikahátíð FSÍ um Verslunarmannahelgi

26/04

Sjá meðfylgjandi skjal um auglýsingu um hátíð um Verslunarmannahelgi. Um er að ræða frábært mál sem allt fimleikafólk ætti að íhuga mjög gaumgæfulega. Sjá hér.


Evrópumót í áhaldafimleikum í Amsterdam

25/04

Nú fer fram Evrópumót í áhaldafimleikum í Amsterdam. Fyrir Íslands hönd keppa á mótinu Margrét Hulda Karlsdóttir, Rúnar Alexandersson, Róbert Kristmannsson og Viktor Kristmannsson. Á mótinu eru einnig Guðmundur Þór Brynjólfsson og Vladimir Antonov sem þjálfarar. Dómarar eru Björn Magnús Tómasson, Heimir Jón Gunnarsson og Sandra Dögg Árnadóttir.


Garpamót

25/04

Úrslit á Garpamótinu. Sjá hér 6. þrep. Sjá hér 2. - 5. þrep. Sjá hér strákar.


Fimleikadeild Aftureldingar

23/04

Fimleikadeild Aftureldingar óskar eftir að ráða hæfileikaríkan yfirþjálfara og fimleikaþjálfara til framtíðarstarfa til að styðja við mikla uppbyggingu deildarinnar. Möguleiki er á því að þjálfa keppnishópa en Afturelding er farin að láta til sín taka á mótum bæði byrjenda sem og FSÍ mótum. Einstakt tækifæri til þess að taka þátt í kraftmikilli uppbyggingu fimleika í Mosfellsbæ. Fimleikdadeild Aftureldingar er á sínu sjöunda starfsári og hefur vegur deildarinnar vaxið hratt. Nú stunda 230 börn fimleika hjá Aftureldingu. Þjáfarar sem hafa áhug á miklu uppbyggingastarfi vinsamlegast hafið samband við Önnu Margréti, framkvæmdastjóra í síma 566 6280 / 892 8298 eða á annamargret@simnet.is


Fimleikasamband Íslands heiðrar fimleikafólk

19/04


Ólafur Rafnsson, forseti ÍÓÍ

Fimleikasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar síðasta dag vetrar til þess að fagna árangri Íslensku keppendanna á Norðurlandamótunum sem fram fóru um liðna helgi.
Ólafur Rafnsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, óskaði keppendum til hamingju með frábæran árangur.
Kristján Erlendsson, formaður FSÍ, fagnaði þessum góða árangri sem þessi breiði hópur iðkenda frá mörgum félögum hafi staðið að.
Allir þátttakendur á mótunum voru heiðraðir ásamt því að Fríðu Rún Einarsdóttur var veitt sérstök viðurkenning.

Fríða Rún Einarsdóttir hlaut 6 gullverðlaun á NMJ


Hópur Stjörnunnar og Björk en þau tóku bæði þátt í stúlknaflokki sem og í blönduðum liðum. Líklega er þetta fjölmennasti hópur sem farið hefur sem eitt félag til keppnis erlendis á vegum FSÍ.
Blandað lið frá Gróttu og Ármann. Þau höfnuðu í 2. sæti og urðu þar með fyrst Íslenskra liða til þess að tryggja sér verðlaunasæti á Norðurlandamóti í hópfimleikum en P1 úr Gerplu halut einnig verðlaun á sama móti en þeirra keppni fór fram seinna um daginn.
P-1 úr Gerplu sem varð Norðurlandameistari í hópfimleikum. Hópur frá Íslandi hefur aldrei áður unnið Norðurlandamót í hópfimleikum.


Frá vinstri: Thelma Rut Hermannsdóttir, Þórdís Helga Kjartansdóttir, Dóra Guðmundsdóttir, Fríða Rún Einarsdóttir og Sigrún Dís Tryggvadóttir.

Stúlkurnar sem skipuðu landslið Íslands sem varð í fyrsta skiptið Norðurlandameistarar í áhaldafimleikum í liðakeppni. Sigrún Dís Tryggvadóttir (lengst til hægri) hlaut braunsverðlaun fyrir gólfæfingar. Piltarnir sem skipuðu landslið Íslands á Norðurlandamóti unglinga. Bjarki (lengst til vinstri) hlaut silfur á bogahesti og Ingvar (næstlengst til vinstri) hlaut brons á tvíslá).

Frá vinstri: Bjarki Ásgeirsson,
Ingvar Ágúst Jochumsson, Ólafur Gunnarsson og Brynjar Wilhelm Jochumsson.

Íþróttafélagið Grótta 40 ára

19/04
 

Íþróttafélagið Grótta verður 40 ára þann 24. apríl næstkomandi. Af því tilefni verður sérstök hátíðardagskrá í Íþróttahúsinu á sumardaginn fyrsta, þann 19.apríl, sem hefst kl 13.00 með skrúðgöngu frá Sundlaug Seltjarnarness undir stjórn Lúðrasveitar Seltjarnarness.
Eftir skrúðgöngu verður dagskrá í íþróttahúsinu þar sem ýmislegt skemmtilegt verður í boði s.s. sýningar og atriði frá íþróttadeildum Gróttu.  Íþróttamaður Gróttu verður heiðraður en einnig verða ávörp frá bæjarstjóra og formanni Gróttu. Einnig verða hoppukastalar og annað skemmtilegt í boði fyrir yngstu kynslóðina. Eftir dagskrá í íþróttahúsinu verður boðið upp á kaffi og afmælistertu í hátíðarsal félagsins.
Föstudaginn 20.apríl verður síðan hátíðarkvöldverður og diskótek í Félagsheimili Seltjarnarness og er miðaverð kr. 4.000.- með 3ja rétta máltíð.  Miðar verða til sölu á skrifstofu Gróttu frá 16.apríl til og með 18.apríl.  Símanúmer skrifstou er 561-1133 og er opið frá kl 10-12 og 14-16.


Íþróttafélagið Gerpla 36 ára

19/04
 

Íþróttafélagið Gerpla verður 36 ára í næstu viku og af því tilefni verður boðið upp á veitingar í Íþróttahúsi félagsins að Versölum í Kópavogi á laugardaginn n.k. (21. apríl) ásamt því að nýkrýndir Norðurlandameistarar félagsins mun sýna hluta af þeim æfingum sem tryggðu þeim þennan glæsilega árangur. Velunarar félagsins eru hvattir til þess að koma í heimsókn kl. 16.00 og eiga góðar stundir saman.


Fimleikadeild Gróttu óskar eftir þjálfurum til starfa

19/04
 

Fimleikadeild Gróttu óskar eftir þjálfurum til starfa næsta vetur (1. september 2007 til 31. maí 2008). Deildin er að leita að þjálfurum fyrir byrjendur og lengra komna í áhaldafimleikum drengja og stúlkna og hópfimleikum. Nánari upplýsingar veita Þóra formaður fimleikadeildar í síma 862-1045 og Sesselja yfirþjálfari í síma 893-6658. Umsóknir sendist á netföngin emo@simnet.is og/eða sesseljahj@simnet.is . Allir áhugasamir eru hvattir til þess að hafa samband.


Garpamót-Gerplu fer fram um helgina

19/04
 

Um næstu helgi, 21. til 22. apríl, fer fram Garpamót-Gerplu en um er að ræða eitt fjölmennast mót utan FSÍ sem fram fer á árinu en gert er ráð fyrir rétt innan við 500 keppendum á mótinu. Mótið fer fram í þremur hlutum. Fyrsti hluti mótsins fer fram á laugardaginn og byrjar keppni kl. 10:00 en þá verður keppt í 1., 3. og 4. þrepi karla og 4., 3. og 2. þrepi kvenna. Annar hluti mótsins er einnig á laugardaginn og hefst keppni kl. 12:30. Þá er kept í 6. þrepi kvenna og 5. þrepi karla. Þriðji hluti mótsins fer fram á Sunnudaginn og hefst keppn klukkan 13:00 og þá fer fram keppni í 5. þrep kvenna.


Árshátíð fimleikaáhugafólks

19/04
 

Nú er kominn tími til að við fimleikafólk þjáfarar, stjórninir, nefndir og eldri iðkendur og að sjálfsögðu allir “old hóparnir” hittumst og skemmtum okkur saman, og þótti okkur við hæfi að við njótum saman vorsins í Gullhömrum í Grafarholtinu þann 26 maí næstkomandi mæting kl 19:00 matur hefst kl 20:00. svo skemmtum við okkur saman fram á rauða nótt. 18 ára aldurstakmark.
Boðið verður uppá: Forréttur: Koníaksbætt humarsúpa, classic, með nýbökuðu brauði. Aðalréttur: Nautapiparsteik með koníakspiparsósu, sveppaterrine, djúpsteiktum laukhringjum og fylltum kartöflubátum.Ábætisréttur: Volg súkkulaði brownie með heslihnetum og vanilluís. Verð á mann 6000 krónur.  Hvert félag á að sjálfsögðu að koma með a.m.k eitt skemmtiatriði. Hvert félag á einnig að halda kosningu innan síns raða og kjósa mann/ konu ársins ( einhvern úr ykkar félagi ) og skila inn til okkar á annasporty@hotmail.com  Skráning og greiðsla berist fyrir 29 apríl nk,  inná bn:0115 hb:05 rn:069767 kt: 041182:3509 muna að setja nafn og félag í skýringu. Hlökkum til að sjá sem flesta kveðja Árshátíðarnefndin. Nánari upplýsingar hjá Önnu Gretu á annasporty@hotmail.com og í síma 663-5637


Umfjöllun fjölmiðla um NM-mótin

16/04
 
Morgunblaðið: Morgunglaðið gerði úrslitum helgarinnar ítarleg skil bæði með myndbirtingu á baksíðu og á forsíðu íþróttafrétta ásamt umfjöllun með viðtölum við Fríðu Rún Einarsdóttir, Guðmund Þór Brynjólfsson og Björn Björnsson. Sjá hér hluta af umfjöllun Morgunblaðsins á mbl.is Smella hér.
RÚV:
Sjá hér umfjöllun í íþróttafréttum RÚV á laugardag. Smella hér.
RÚV: Sjá hér umfjöllun í Íþróttafréttum RÚV á sunnudag. Smella hér.
RÚV:
Sjá hér viðtal við Fríðu Rún í Kastljósi á RÚV á mánudag. Smella hér.
Stöð 2:
Sjá hér viðtal við Fríðu Rún í íþróttafréttum Stöðvar 2 á mánudag (er í miðri frétt) Smella hér.
Stöð 2:
Sjá hér umfjöllun í íþróttafréttum Stöðvar 2 á sunnudegi (er í miðri frétt). Smella hér.
Morgunvaktin á RÚV. Viðtal við Björn Björnsson, einn af þálfurum P1 í Gerplu og Guðmund Þór Brynjólfsson, einn af þjálfurum Gerplu í áhaldafimleikum, ásamt Jóni Finnbogasyni formanni Gerplu. Smella hér.

FRÁBÆR ÁRANGUR
- fimleikafólk: til hamingju -

15/04
 
Sigur í stúlknaflokki á NMJ í áhaldafimleikum í liðakeppni, í fjölþraut stúlkna, á öllum áhöldum stúlkna og í stúlknaflokki á NM í hópfimleikum auk fjölda annarra verðlauna er frábær árangur sem Íslenskt fimleikafólk hefur ekki áður upplifað. Segja má að um sé að ræða útborgunardag uppbyggingarstarfs sem staðið hefur yfir í áraraðir. Frábær aðstaða til fimleikaiðkunar hérlendis, framúrskarandi þjálfarar og umfram allt keppendur með gríðarlegan metnað er jafna sem skilar okkur nú þessum einstaka árangri. Til hamingju öll.

Ísland vekur hin Norðurlöndin upp af svefni....

Segja má að árangur okkar keppenda á Norðurlandamótunum hafi verið ákveðin áminning til hinna Norðurlandaþjóðanna að vakna upp af værum svefni. Rétt fyrir helgi héldu héðan frá Íslandi 85 manna sveit á tvö Norðurlandamót. Fyrir nokkrum árum þurftu hinar Norðurlandaþjóðirnar svo sem ekki að hafa áhyggjur af slíkri heimsókn, enda voru þær kannski svona að hluta til kurteisi af okkar hálfu um að taka þátt í Norrænu samstarfi. Niðurstöður mótanna um helgina sendir aftur á móti þau skilaboð til hinna Norðurlandanna að við mætum ekki á Norðurlandamót til þess eins að taka þátt. Þangað eru keppendurnir komnir til þess að sækja sína bikara og Norðurlandameistaratitla. Um helgina sótti þessi hópur 7 stykki, en þar af Fríða Rún Einarsdóttir 6 stykki sem verður að teljast alveg einstakt íþróttalegt afrek.

Hvað er að gerast ... heyrðist úr herbúðum Silkeborg !
Helgin byrjaði á því að keppni í blönduðum liðum í hópfimleikum fór fram í Stokhólmi í Svíþjóð. Þar kepptu tvö lið frá Íslandi. Ármann-Grótta og Stjarnan-Björk. Skemmst er frá því að segja að Grótta-Ármann leiddi keppnina eftir tvö fyrstu áhöldin. Silkeborg P&D (24.85 stig) frá Danmörku mátti því þakka fyrir að sigra naumlega fyrir sterku liði Ármanns-Gróttu (24.5 stig) (sjá liðsmenn og þjálfara hér að neðan). Er það ótvírætt frábær árangur og sérstaklega í því ljósi að um er að ræða frumraun liðsins á Norðurlandamóti eftir aðeins nokkurra mánaða undirbúning. Liðin frá hinum Norðurlandaþjóðunum þurfa klárlega að nýta tímann vel fram að næsta móti ef þau ætla að reyna af veikum mætti að koma í veg fyrir að Norðurlandameistaratitill á næsta móti verði ekki með öruggt sæti í Icelandair.
Erum bara að sækja bikarinn okkar ...
Eftir góða byrjun Íslensku keppendanna var komið að stúlkunum úr P-1 í Gerplu að sýna að silfurverðlaun á Evrópumótinu 2006 var engin tilviljun. Þær voru bara mættar til þess að sækja bikarinn. Með glæsilegum æfingum tryggðu þær sér flest stig allra keppenda eða 26.35 stig. Með því að fá 9.05 stig í dansi og 9.2 stig á dýnustökki má segja að þær hafi stimplað sig inn sem klárlega langbesta liðið á mótinu enda ekkert annað lið sem hlaut yfir 9 stig í stúlknaflokki eða í blönduðum flokki. Þrátt fyrir að engum hafi dulist að hér var á ferðinni sterkasta lið mótsins braust út gríðarlegur fögnuður hjá Íslensku keppendunum þegar úrslitin lágu fyrir. Gleði sem þau munu aldrei geyma.
P-1 Norðurlandameistarar
Norðurlandameistarar 2007 í stúlknaflokki í hópfimleikum var því P-1 úr Íþróttafélaginu Gerplu í Kópavogi. Stúlkurnar í hópnum og þjálfarar þeirra eru tilgreindar hér að neðan.
Er hér um einstaklega sætan sigur að ræða. Ísland hefur ekki áður sigrað á Norðurlandamóti í hópfimleikum. Hinum Norðurlöndunum ætti þó ekki að láta sér þetta koma á óvart. Á síðustu misserum hafa þátttakendur frá Íslandi verið að taka fram úr hverju liðinu af fætur öðru þar sem síðasta skrefið í þeim efnum var stigið í gær.
Frábær dagur rétt að byrja ...
Silfurverðlaun Ármanns-Gróttu og gullverðlaun P-1 úr Gerplu var frábær uppskera laugardagsins, þeas ef hann hefði verið búinn en hann var bara rétt að byrja. Um svipað leyti og Íslensku þátttakendurnir í hópfimleikamótinu höfðu lokið keppni í Stokhólmi í Svíþjóð þá bárust fréttir af Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum sem fram fór í Kaupmannahöfn í Danmörku.
Piltarnir standa sig ágætlega ...
Norðurlandamótið í áhaldafimleikum unglinga byrjaði á keppni pilta. Þar stóðu okkar piltar sig ágætlega. Bjarki Ásgeirsson varð 4. efstur í fjölþraut og komst í úrslit á bogahesti, hringjum og svifrá. Einnig komst Ingvar Jochumsson í úrslit á tvíslá þar sem hann varð efstur inn í úrslitin.
Í liðakeppni urðu strákarnir í 5. sæti.

Stúlkurnar Norðurlandameistarar í liðakeppni í áhaldafimleikum
Ísland sigrar í liðakeppni stúlkna í áhaldafimleikum í fyrsta skiptið ...
Stúlkurnar í Íslenska landsliðinu gerðu sér
lítið fyrir og sigruðu allar hinar Norðurlandaþjóðirnar. Hópurinn er skipaður stúlkunum Dóru Guðmundsdóttur (Gerplu), Fríðu Rún Einarsdóttur (Gerplu), Sigrún Dís Tryggvadóttur (Gerplu), Thelmu Rut Hermannsdóttur (Gerplu) og Þórdísi Helgu Kjartansdóttur (Fylki). Er hér um að ræða fyrsta skiptið sem Ísland sigrar í liðakeppni í áhaldafimleikum stúlkna á Norðurlandamóti unglinga. Fyrir 2 árum höfnuðu stúlkurnar í 3. sæti á eftir Svíþjóð (2. sæti) og Finnlandi (1. sæti). Við hækkum okkur því um tvö sæti á milli móta.
Fríða Rún Einarsdóttir
Norðurlandameistari
í fjölþraut

Fríða Rún Norðurlandameistari unglinga í fjölþraut stúlkna, fyrst allra Íslenskra keppenda ...
Fríða Rún Einarsdóttir sigraði örugglega á Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum með um 4 stiga mun í næsta keppenda. Það má því segja að hún hafi verið í algjörum sérflokki keppenda í fjölþraut og mátti vera ljóst eftir fyrstu áhöldin í hvað stefndi.
Á Norðurlandamótinu fyrir tveimur árum varð Fríða Rún í 4. sæti. Hún hefur því verið meðal efstu keppenda í sínum aldursflokk um nokkurt skeið og því var ljóst fyrir mótið að hún myndi klárlega blanda sér í baráttu efstu keppenda. Að hún myndi aftur á mót sigra með yfirburðum þorði enginn að láta sér dreyma um.

Fríða Rún Einarsdóttir
Norðurlandameistari

á öllum áhöldum

Fríða Rún Norðurlandameistari unglinga á öllum áhöldum ...
Fríða Rún Einarsdóttir sigraði á öllum áhöldum í úrslitum á einstökum áhöldum sem fram fór í dag. Engum blöðum er um það að fletta að hér er um einstakt íþróttaafrek að ræða og óskum við henni innilega til hamingju með þennan stórmerkilega árangur í íslenskri fimleikasögu. Að sögn Guðmundar Þórs Brynjólfssonar, yfirþjálfara pilta í Gerplu og dómara á mótinu, þá voru dómarar og þjálfarar sem margir hverjir hafa verið viðloðandi Norðurlandamót í áratugi á einu máli um að þeir muna ekki eftir því að einn iðkandi hafi mætt á Norðurlandamót og sigrað í fjölþraut ásamt því að sigra í liðakeppni auk þess að keppa svo til úrslita á öllum áhöldum og sigra á þeim öllum. Það man hreinlega enginn eftir því að slíkt íþróttalegt afrek hafi nokkurntímann verið unnið áður. Það er því full ástæða til þess að óska Fríðu Rún Einarsdóttur úr Gerplu innilega til hamingju með þennan einstæða árangur.
Á mótinu fengu okkar keppendur einnig fleiri verðlaun í úrslitum á einstökum áhöldum. Í gólfæfingum hlaut Sigrún Dís Tryggvadóttir bronsverðlaun. Bjarki Ásgeirsson hlaut silfurverðlaun á bogahesti og Ingvar Jochumsson hlaut brons á tvíslá.

Einstök helgi fyrir fimleikafólk
7 Norðurlandameistaratitlar ...
Árangur Ármanns-Gróttu og P-1 úr Gerplu var glæsilegur. Árangur á Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum var glæsilegur. Fyrir fimleikafólk er í raun erfitt að innbyrða þennan glæsilega árangur á einni helgi. Ljóst er að fimleikafólk mun muna eftir þessari helgi vel og lengi.
Full ástæða er að óska öllum keppendum, þjálfurum, dómurum, fararstjórum og öllu fimleikaáhugafólki innilega til hamingju með árangurinn.

Tvö Norðurlandamót um helgina
Áhaldafimleikar í Danmörku
Hópfimleikar í Svíþjóð

Til skýringa fyrir fjölmiðla
15/04
Norðurlandamót í áhaldafimleikum unglinga:
Kaupmannahöfn, Danmörk - 14. og 15. apríl 2007.
Liðakeppni: Stúlkur 1. sæti.
Liðakeppni: Piltar 5. sæti.
Fjölþraut: Stúlkur 1. sæti Fríða Rún Einarsdóttir (Gerpla)
Fjölþraut: Piltar 4. sæti Bjarki Ásgeirsson (Ármann)
Úrslit á einstökum áhöldum:
Stökk: Stúlkur 1. sæti Fríðar Rún Einarsdóttir (Gerpla)
Slá: Stúlkur 1. sæti Fríða Rún Einarsdóttir (Gerpla)
Tvíslá: Stúlkur 1. sæti Fríða Rún Einarsdóttir (Gerpla)
Gólf: Stúlkur 1. sæti Fríða Rún Einarsdóttir (Gerpla)
Gólf: Stúlkur 3. sæti Sigrún Dís Tryggvadóttir (Gerpla)
Bogahestur: Piltar 2. sæti Bjarki Ásgeirsson (Ármann)
Tvíslá: Piltar 3. sæti Ingvar Jochumsson (Gerpla)
Norðurlandamót í hópfimleikum:
Stokholm: Svíþjóð - 14. apríl 2007.
Liðakeppni: Stúlkur
1. sæti: P-1 úr Íþróttafélaginu Gerplu, Kópavogi. 26,35 stig.
8. sæti: Stjarnan / Björk. 23,35 stig.
Liðakeppni: Blönduð lið
2. sæti Ármann / Grótta. 24,5 stig.
7. sæti Stjarnan / Björk. 22,9 stig.

Sjá nánar hér www.nm2007.se
NM í áhaldafimleikum. Í hverju er keppt.
NM í hópfimleikum. Í hverju er keppt:
Stúlkur keppa á stökki, slá, tvíslá og gólfæfingum.
Piltar keppa í gólfæfingum, bogahest, hringjum, stökki, tvíslá og svifrá.
Keppni fer fram á tveim dögum. Á fyrri keppnisdegi er keppt til sigurs í liðakeppni ásamt því að Norðurlandameistari er kríndur í einstaklingskeppni samanlagt á öllum áhöldum í pilta og stúlknaflokki. Stig keppenda á fyrri keppnisdegi ráða því hvort viðkomandi keppandi öðlist rétt á að keppa til úrslita á hverju áhaldi fyrir sig. Úrslit á áhöldum fer fram á seinni keppnisdeginum.
Norðurlandamót í hópfimleikum.
Keppt er á þremur áhöldum sem eru dýnustökk, trampolín og dans.
Keppt er í þremur flokkum. Kvennaflokki, karlaflokki og blönduðum flokk.
Keppni fer fram á einum degi. Fyrst fer fram keppni í blönduðum liðum. Næst er keppt í kvennaflokki. Að lokum er keppt í karlaflokki. Úrslit í hverjum keppnisflokk ráðast af samanlögðum stigum viðkomandi keppnishóps á öllum þremur áhöldunum. Krýndir eru Norðurlandameistarar í hverjum flokk ásamt því að veitt eru gull, silfur og bronsverðlaun.
Uppselt fyrir löngu ...
Norðurlandamótið í hópfimleikum er einstakur íþróttaviðburður í fimleikum. Frábær skemmtun sem lýsir sér meðal annars í þeirri staðreynd að uppselt er á mótið löngu áður en það fer fram en það er því miður ekki algengt þegar fimleikamót eru annars vegar.

Fimleikadeild Umf. Selfoss óskar eftir þjálfurum til starfa

12/04

Fimleikadeild Umf. Selfoss óskar eftir þjálfurum til starfa á næsta starfsári haust 2007 og vor 2008. Auglýst er eftir þjálfurum til að hafa umsjón með hópum og aðstoðarþjálfurum.
Æskilegt er að þjálfarar hafi lokið einhverjum þjálfaranámskeiðum á vegum ÍSÍ og FSÍ. Nánari upplýsingar gefa Brynja Hjálmtýsdóttir formaður í s. 856-7454 og Olga Bjarnadóttir yfirþjálfari í s. 897-3074. Umsóknareyðublað má nálgast hér. Umsóknum ber að skila í síðasta lagi 20. apríl nk. í Tíbrá v. Engjaveg 50, 800 Selfoss eða til Olgu Bjarnadóttur Dverghólum 25, 800 Selfoss. Öllum umsóknum verður svarað.


Norðurlandamót um helgina

JF
12/04

Nú í morgun hélt fjölmennur hópur af stað á Norðurlandamót í áhaldafimleikum og hópfimleikum sem munu fara fram um helgina í Danmörku og Svíþjóð. Líklega hefur aldrei áður haldið jafn fjölmennur hópur af stað til keppni í fimleikum um sömu helgi. Að sjálfssögu verður spennandi að fylgjast með úrslitum helgarinnar. Miklar vonir eru bundnar við frammistöðu okkar fólks og er aldrei að vita nema úrslit helgarinnar muni hlýja okkur um hjartaræturnar. Í hópfimleikum eru sterkir hópar að taka þátt og má allt eins búast við að hóparnir muni blanda sér í toppbaráttuna. Sama má segja um þátttakendur á Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum en innan hópsins eru svo sannarlega keppendur sem eru líklegir til þess vera meðal efstu keppenda í fjölþraut. Umfram allt er þó að allir þátttakendurnir geri sitt besta og hafi gaman af því að taka þátt í mótunum. Við hér heima eru stollt af ykkur öllum. Gangi ykkur vel.

Norðurlandamót unglinga í áhaldafimleikum mun fara fram í Kaupmannahöfn í Danmörku. Þátttakendur eru sem hér segir:
Bjarki Ásgeirsson, Brynjar Wilhelm Jochumsson, Dóra Guðmundsdóttir, Fríða Rún Einarsdóttir, Ingvar Ágúst Jochumsson, Jón Sigurður Gunnarsson, Ólafur Gunnarsson, Sigrún Dís Tryggvadóttir, Thelma Rut Hermannsdóttir og Þórdís Helga Kjartansdóttir. Þjálfarar eru Mikola Vovk, Svetlana Makaritseva, Vladimir Antonov og Þorbjörg Gísladóttir. Dómarar eru Berglind Pétursdóttir, Björn Magnús Tómasson, Guðmundur Þór Brynjólfsson og Sandra Dögg Árnadóttir.
Norðurlandamótið í hópfimleikum fer fram í Svíþjóð. Þátttakendur eru sem hér segir:
Grótta-Ármann: Andri Vilberg Orrason, Birta Benonísdóttir, Björk Óðinsdóttir,Björn Birgisson, Daði Snær Pálsson, Daniel Ingi Þórisson, Elín Vigdís Andrésdóttir, Gunnar Sigurðsson, Hera Jóhannesdóttir, Hjalti Geir Erlendsson, Hrafnhildur Héðinsdóttir, Jónas Valgeirsson, Sif Pálsdóttir og Tinna Rut Traustadóttir. Þjálfarar; Christian Vilppola, Sigríður Harðardóttir og Marin Þrastardóttir.
Stjarnar-Björk: Andrea dan Arnadottir, Anna Runa Kristinsdóttir, Ágústa Dan Árnadóttir, Ásgerður Ragnarsdóttir, Birgitta Gunnarsdóttir, Bjarni Gíslason, Brynhildur Hlín Eggertsdóttir, Eva Magnúsdóttir, Fanney Rós Magnúsdóttir, Fjölnir Þrastarson, Harpa B Óskarsdóttir, Helga Svana Ólafsdóttir, Hulda Magnúsdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Katarina Nordbeck, Kristbjörg T Ásbjörnsdóttir, Nicklas Landqvist, Petrína Ýr Friðbjörnsd, Ragna Björk Bragadóttir, Rúnar Bogi Gíslason, Sigríður Lína Viðarsdóttir, Tanja Björk Jónsdóttir, Thoarinn Valgeirsson, Tinna Magnúsdóttir, Vala Jónsdóttir og Vilborg Sif Valdimarsdóttir. Þjálfarar: Hrafnhildur Gunnarsdottir og Jimmy Ekstedt.
Gerpla: Auður Ólafsdóttir, Ásdís Dagmar Þorsteinsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Guro Hansen Andersson, Hafdís Jónsdóttir, Hrefna Hákonardóttir, Íris Mist Magnúsdóttir, Karen Sif Viktorsdóttir, Kolbrún Sveinsdóttir, Magdalena Rós Guðnadóttir, Rakel Reynisdóttir, Rut Valgeirsdóttir, Sara Rut Agústsdóttir, Svava Björg Örlygsdóttir og Þórunn Arnardóttir.  Þjálfarar: Ása Inga Þorsteinsdóttir, Björn Björnson og Michel Christensen.
Dómarar: Auður Inga Þorsteinsdóttir, Gyða Kristmannsdóttir og Sigríður Ósk Harðardóttir. Fjölmiðlafulltrúi: Sólveig Jónsdóttir.


Spennandi upphitunarmót

05/04

Á laugardaginn mun fara fram mót þar sem allir þátttakendur á Norðurlandamóti í hópfimleikum munu sýna æfingar sýnar eins og þær munu verða framkvæmdar á Norðurlandamótinu sjálfu eftur um tvær vikur. Það verður því án vafa góð skemmtun að fylgjast með okkar bestu keppendum í hópfimleikum sýna okkur æfingar sýnar í síðasta skiptið fyrir mótið sjálft. Að sjálfsögðu munum við fjölmenna í Versali í Kópavogi kl. 16:00 á Laugardaginn 7. apríl til að hvetja okkar keppendur. Vissulega verður gaman að fylgjast með hvernig þeim mun svo ganga á mótinu sjálfu en skemmst er að minnast góðs árangurs stúlknanna úr Gerplu á Evrópumóti sem og að miklar vonir eru bundnar við hóp Ármanns-Gróttu í blönduðum liðum. Fjölmennum og hverjum keppendur á síðasta mótnu fyrir þátttöku á þýðingarmiklu Norðurlandamót.
Versalir, Kópavogi (Gerpluhúsið), kl. 16:00, 7. apríl. Aðgangseyrir 300 (fyrir 12 ára og eldri) sem rennur í fararsjóð fyrir þátttakendur á mótinu vegna fjáröflunar fyrir Norðurlandamótið sjálft. Skipulag mótsins verður sem hér segir:

  • Ármann Grótta gólf
  • Stjarnan Björk mix gólf
  • Ármann Grótta dýna
  • Stjarnan Björk mix dýna
  • Ármann Grótta tramp
  • Stjarnan Björk tramp
  • Gerpla tramp
  • Stjarnan Björk konur gólf
  • Gerpla dýna
  • Stjarnan Björk konur dýna
  • Gerpla gólf
  • Stjarnan Björk tramp


Fimleikasjóður Íslands styrkir FSÍ um 100.000,-

04/04

Þann 30 mars sl. styrkti Fimleikasjóður Íslands Fimleikasamband Íslands vegna Norðurlandamóts unglinga í áhaldafimleikum um kr. 100.000,- Styrkurinn er ætlað að greiða kostnað vegna tveggja þjálfara á Norðurlandamótið.
Fimleikasjóð Íslands er ætlað að vera bakhjarl við afreksstefnu í fimleikum á Íslandi.  Frá stofnun hefur sjóðurinn greitt út styrki að fjárhæð kr. 1.140.000 sem fimleikafólk hefur notið góðs af. Á undanförnum árum hafa nokkrir velunnarar fimleikahreyfingarinnar stutt Fimleikasjóð Íslands með fjárframlögum en sjóðurinn nýtur einnig ávöxtunar af eignum sínum sem eru í dag um 900.000.
Er þetta í fyrsta skiptið sem Fimleikasamband Íslands er styrkt með beinum hætti eins og nú hefur verið gert.  Vel kann að vera að það verði gert í auknu mæli í framtíðinni.
Fyrir hönd Fimleikasjóðs Íslands
Jón Finnbogason



Öll almenn notkun á efni sem birtist á www.fimleikar.is
er heimil án sérstaks samþykkis
Sjá hér
.

Allar myndir © www.fimleikar.is
H eimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.

Fimleikar ehf.