|
|
|
Ísland
á uppleið
- Evrópumeistaramót unglinga
í Grikklandi
|
GG |
30/4/2006 |
* |
| Samhliða
Evrópumeistaramóti kvenna í fullorðinsflokki
fer nú fram keppni í unglingaflokki þ.e.
stúlkur 16 ára og yngri. Af úrslitum þessa
móts má sjá að Ísland er í
mikilli framför á alþjóðlegum vettvangi
í kvennafimleikum.
Í
liðakeppninni varð Ísland í 20. sæti
af 26 landsliðum. Af Norðurlandaþjóðunum
var Finnland eina liðið sem var fyrir ofan okkar stelpur.
Eftir forkeppnina voru lið Rússlands, Rúmeníu,
Þýskalands og Ítalíu efst.
86
einstaklingar tóku þátt í fjölþraut
í forkeppninni. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir
varð í 44. sæti. (49,125 stig), Fríða
Einarsdóttir í 57. sæti (47,625), Anna Ívarsdóttir
í 79. sæti (44,075 stig) og Harpa Dögg Steindórsdóttir
í 84. sæti (42,925 stig). Rússar eru með
yfirburði í unglingaflokki en stúlkur frá
þeim röðuðu sér í þrjú
efstu sætin eftir forkeppnina.
Úrslit
af mótinu má finna hér.
Fleiri fréttir af EM hér. |
|
Úthlutað kr.
420.000,- úr Fimleikasjóð
Íslands
- samtals hefur verið greitt kr. 1.040.000
úr sjóðnum -
|
|
29/04/2006 |
* |
Að
þessu sinni er kr. 420.000,- úthlutað úr
Fimleikasjóði Íslands. Um er að ræða
fimleikafólk sem stefnir á keppnis eða æfingaferðir
erlendis eða til að stunda nám í fimleikakennslu.
Iðkendur fá kr. 10.000,- vegna hvers viðburðar.
Úthlutunin nú er töluvert hærri en
áður hefur tíðkast og stafar það
einkum af mjög góðri ávöxtun á
eignum sjóðsins á undanförnum misserum
og auknum inngreiðslum inn í sjóðinn.
Sjóðurinn hefur úthlutað til fimleikahreyfingarinnar
samtals kr. 1.040.000,- sem skiptist sem
hér segir: 2006 kr. 420.000,- 2004
kr. 200.000,- 2003 kr. 100.000,- 2002
kr. 180.000,- 2000 kr. 40.000,-
Auðvelt er að gerast styrktaraðili sjóðsins.
Aðeins þarf að senda email á fimleikar@fimleikar.is
og þú leggur þitt af mörkum við
að styrkja fimleikafólkið í landinu.
Þeir sem hljóta styrk úr sjóðnum
að þessu sinni eru:
|

Thelma
Rut Hermannsdóttir fær að þessu sinni
úthlutað í fyrsta skiptið úr
Fimleikasjóð íslands.
Styrkur er greiddur út þegar viðkomandi viðburður
hefur farið fram.
|
Anna
Líney Ívarsdóttir Gerpla Evrópumót
í áhaldafimleikum
Arna Hjartardóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
Ása Inga Þorsteinsdóttir Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Ásdís Dagmar Þorsteinsdóttir Gerpla
Evrópumót í hópfimleikum
Ásdís Guðmundsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Auður Agla Óladóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
Auður Ólafsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Birta Benónýsdóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
Björk Óðinsdóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
Fríða Rún Einarsdóttir, Gerpla Evrópumót
í áhaldafimleikum
Harpa Hlíf Bárðardóttir, Grótta
Evrópumót í hópfimleikum
Harpa Snædís Hauksdóttir, Grótta
Evrópumót í hópfimleikum
Heiðdís Halldórsdóttir, Grótta
Evrópumót í hópfimleikum
Hildur Þórðardóttir, Grótta
Evrópumót í hópfimleikum
Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir, Gerpla
Evrópumót í hópfimleikum
Inam Rakel Yasin, Gerpla Evrópumót í
hópfimleikum
Inga Rós Gunnarsdóttir, Gerpla Evrópumót
í áhaldafimleikum
Ingvar Á. Jochumsson, Gerpla Evrópumót
í áhaldafimleikum
Íris Mist Magnúsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Íris Svavarsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
.Jóhanna Gunnarsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
|
Jónas Valgeirsson, Ármann HM í áhaldafimleikum
2006
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Gerpla Evrópumót
í áhaldafimleikum
Linda Óskar Þorvaldsdóttur, Umf. Selfoss
V/ náms erlendis v/ fimleika
Magdalena Rós Guðnadóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Margrét Hulda Karlsdóttir, Gerpla Evrópumót
í áhaldafimleikum
Marín Þrastardóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
Nanna Yngvadóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
Róbert Kristmannsson, Gerpla Evrópumót
í áhaldafimleikum
Sara Rut Ágústsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Sara Sif Sveinsdóttir, Gerpla Æfingabúðir
í USA 2006
Sif Pálsdóttir, Grótta Evrópumót
í áhalda- og hópfimleikum
Sigríður Harðardóttir, Grótta
Evrópumót í hópfimleikum
Sigurrós Jónsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Soffía Bergsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Sólveig Jónsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Thelma Rut Hermannsdóttir, Gerpla Æfingabúðir
í USA 2006
Þórunn Arnardóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Tinna Rut Traustadóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
Viktor Kristmannsson, Gerpla HM í áhaldafimleikum
2006
Vilborg Guðjónsdóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
|
Frábær
árangur Sifjar í Grikklandi
- Evrópumótið í fimleikum
|
GG |
27/4/2006 |
* |
|
Nú er forkeppni
lokið á Evrópumótinu í fimleikum
kvenna sem fram fer í Volos í Grikklandi. Sif
Pálsdóttir varð í 18. sæti af
47 sem kepptu á öllum áhöldum sem verður
að teljast frábær árangur. Í
allt tóku 115 keppendur þátt í keppninni
í dag. Margrét Hulda Karlsdóttir varð
í 36. sæti sem einnig er mjög góður
árangur.
Forkeppnin
ákvarðar hvaða 8 lið keppa til úrslita
um Evrópumeistaratitilinn nk laugardag og einnig hvaða
8 einstaklingar keppa til úrslita á áhöldum
á sunnudaginn. Efstu lið inn í
úrslitin eru Rússland, Rúmenía og
Ítalía. Ísland tók ekki þátt
í liðakeppninni og þrátt fyrir frábæra
frammistöðu beggja íslensku keppandanna komust
þær ekki í úrslit á áhöldum.
Hæst einstaklinga varð Vanessa Ferrari frá
Ítalíu með 60.925.
Á
morgun fer fram keppni í unglingaflokki
en þar tekur Ísland þátt í
liðakeppninni. Fyrir Íslands hönd keppa þær
Anna Líney Ívarsdóttir, Fríða
Rún Einarsdóttir, Harpa Dögg Steindórsdóttir
og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir. |
Evrópumót
í Grikklandi |
|
23/4/2006 |
* |
| Evrópumót
í áhaldafimleikum fer fram í Grikklandi
nú í lok apríl og byrjum maí. Að
þessu sinni keppa fyrir hönd Íslands flest
okkar fremsta fimleikafólk. Keppendur í kvennaflokki
lögðu af stað til Grikklands nú í
morgun (sunnudag) en keppendur í eldri flokk kvenna eru
þær Inga Rós Gunnarsdóttir, Margrét
Hulda Karlsdóttir og Sif Pálsdóttir. Í
yngri flokk kvenna keppa þær Anna Líney Ívarsdóttir,
Fríða Rún Einarsdóttir, Harpa Dögg
Steindórsdóttir og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir.
Þjálfarar eru í ferðinni eru þau
Ásdís Pétursdóttir og Vladimir Antonov.
Dómarar
fyrir FSÍ verða þær Sandra Árnadóttir
og Hlín Bjarnadóttir en auk þess hefur Berglindi
Pétursdóttir verið valinn sem yfirdómara
á slá. |
|
Rúnar
Alexandersson mun keppa á Evrópumótinu
í Grikklandi og verður spennandi að sjá
hvernig honum og öðrum keppendum frá Íslandi
muni ganga. |
|
Ásta Ísberg er farastjóri. Hópurinn
kemur aftur til Íslands 1. maí.
Í
fokki karla keppa í eldri flokki þeir Dýri
Kristjánsson, Róbert Kristmansson og Rúnar
Alexandersson. Keppendur í yngri flokk eru Bjarki Ásgeirsson
og Ingvar Á. Jochumsson. Þjálfarar eru Guðmundur
Þór Brynjólfsson og Mykola Vovk. Dómarar
verða þeir Björn M. Tómasson og Heimir
J. Gunnarsson. Fararstjóri er Jón Finnbogason.
Hópurinn mun leggja af stað þann 30. apríl
og koma svo aftur heim þann 8. maí. |
| 
|
Þrefallt
heljarstökk með heilli skrúfu er frekar flott
stökk en það er meðal þess sem sjá
má í myndbandi hér til vinstri. Vissulega
eru fimleikaæfingar ekki án mistaka eins á
sjá má á myndband til hægri. |
 |
Bjarki
og Thelma Íslandsmeistarar unglinga
- Sif og Jónas unnu eldri flokkinn |
GG |
21/4/2006 |
* |
Íslandsmeistari
unglinga í fimleikum, Bjarki Ásgeirsson úr
Ármanni, ásamt Ólafi Garðari Gunnarssyni
úr Gerplu (t.v. (2. sæti)) og Sigurði Hrafni
Péturssyni úr Gerplu (t.h. (3. sæti)).
|
|
Bjarki
Ásgeirsson úr Ármanni og Thelma Rut Hermannsdóttir
úr Gerplu urðu í gær Íslandsmeistarar
unglinga í fimleikum.
Bjarki fékk hæstu einkunn á öllum áhöldum
nema á svifránni en þar varð hann í
2. sæti.
Thelma var með hæstu einkunn á öllum áhöldum.
Það má því segja að bæði
hafi sigrað með yfirburðum. Framtíðarmeistarar
hér á ferð! |
|
Íslandsmeistari
unglinga í fimleikum, Thelma Rut Hermannsdóttir
úr Gerplu, ásamt Sigrúnu Dís Tryggvadóttur
úr Fylki (t.v. (2. sæti)) og Þórdísi
Helgu Kjartansdóttur úr Fylki (t.h. (3. sæti)).
|
Einnig
var keppt á Eldri flokka meistaramóti og þar
sigraði nýkrýndur Norðurlandameistari, Sif
Pálsdóttir úr Gróttu, í kvennaflokki
og Jónas Valgeirsson, Ármanni, í karlaflokki.
Sigur
beggja var mjög sannfærandi.
Átta piltar og níu stúlkur tóku þátt
í Unglingameistaramótinu en aðeins tveir piltar
og þrjár stúlkur í Eldri flokka meistaramótinu.
Keppendur komu frá fimm félögum þ.e.
Ármanni, Gerplu, Gróttu, Fylki og Björk.
Úrslit má nálgast hér! |
| Nú
loksins er birt í fjölmiðlum grein þar
sem athygli er vakin á undarlegu mati á hvað
teljist eftirtektarverður árangur og hvað ekki.
Hvað skuli hljóta almennilega umfjöllun í
fjölmiðlum og undir hvaða kringumstæðum
sérstakar viðurkenningar skulu veittar.
Vísa ég hér til Fréttablaðsins
þann 19. apríl en á baksíðu
eru Bakþankar Gerðar Kristnýjar undir fyrirsögninni
"Til hamingju Ísland!" Vekur hún athygli
á frábærum árangri Sifjar Pálsdóttur
og um leið veltir upp þeirri spurningu hvers vegna
árangur hennar hefur ekki enn vakið meiri athygli
en raun ber vitni.
Vonandi hefur greinin vakið þá athygli sem
hún á skilið. Gerður Kristný, takk
fyrir góða grein.
Jón
Finnbogason |
Gerður
Kristný óskar Sif Pálsdóttur til
hamingju með árangurinn og þjóðinni
fyrir að hafa eignast þessa afrekskonu. |
|
Unglingameistaramót og
Eldri flokka meistaramót FSÍ á sumardaginn
fyrsta |
|
17/4/2006 |
* |
| Næstkomandi
fimmtudag (sumardaginn fyrsta) fer fram Unglingameistaramót
og Eldri flokka meistaramót FSÍ. Mótið
verður haldið í nýja Gerplu-húsinu
í Versölum í Kópavogi.
Mótið hefst kl. 17:00. Upplýsingar
um mótaskipulag ofl. hér.
Mótshaldari er fimleikadeild Ármanns.
Á þessu móti mun flest af besta fimleikafólki
landsins keppa, m.a. nýbakaður Norðurlandameistari
í fimleikum, Sif Pálsdóttir úr Gróttu.
Á mótinu keppa einnig Kristjana Sæunn Ólafsdóttir
og Fríða Rún Einarsdóttir úr
Gerplu í unglingaflokki en þær höfðu
ekki aldur til að keppa á Norðulandamótinu
um daginn. |
|
Óskað
er eftir umsóknum um styrk úr
Fimleikasjóð Íslands |
|
13/4/2006 |
| Fimleikasjóður
Íslands óskar eftur umsóknum um styrk úr
sjóðnum. Umsóknir skulu sendar með tölvupósti
á fimleikar@fimleikar.is
með samrit á fsi@isisport.is
Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl 2006.
Nánar um sjóðinn hér. |
Norðurlandamót
unglinga í hópfimleikum
- Þátttakendur frá Fylki
og Gerplu - |
|
13/4/06
| * |
| Um
helgina fór fram Norðurlandamót Juniora í
hópfimleikum. Mótið var haldið í
Hróarskeldu, Danmörku. Á vegum Íslands
kepptu lið frá Gerplu og Fylki. 10 lið kepptu
í stúlknaflokki, 2 lið frá hverri norðurlandaþjóðanna
5. Úrslitin urðu þau að Gerpla lenti í
8 sæti en Fylkir í því 10. Við
fengum Björn Björnsson einn þjálfara
Gerplustúlknanna til að segja okkur frá mótinu:
“Við erum stolt af stelpunum, þær sýndu
mikinn karakter á mótinu og létu stressið
ekki hlaupa með sig í gönur. Engu að síður
vorum við með 5 föll sem var meira en við vonuðumst
til. Keppnin var geysihörð sem sést á
því að ekki munar nema 0,6 á 3 og 8
sæti. Það má því leiða
líkur að því að með fullkomu
móti af okkar hálfu hefðum við getað
lent í 3 sæti. Svona er þetta annars bara
í hópfimleikunum dagsformið skiptir rosalega
miklu máli og enginn getur sagt fyrir hvað gerist
þegar til keppni er komið. Til dæmis gerði
Örebro, annað sænska liði, erfiða framumferð
á dýnu. Á æfingunni á föstudeginum
og í upphitun á mótinu gerðu þær
þessa umferð af miklu öryggi. Í keppninni
voru þær búnar að gera 2 umferðir
og höfðu lent öll stökkin. Svo kom að
framumferðinni og á endanum kláraði einungis
1 keppandi þá umferð klakklaust.” meira
hér |
Sif
og Rúnar Norðurlandameistarar á áhöldum
- Vel heppnað mót - |
|
13/4/06
| * |
| 
Sif Pálsdóttir,
Norðurlandameistari í fjölþraut og í
æfingum á tvíslá.
|
Í
úrslitum á einstökum áhöldum
á Norðurlandamótinu kepptu fimm keppendur
frá Íslandi. Það voru:
Anton H. Þórólfsson (bogahest),
Róbert Kristmannsson (gólfæfingum og stökk),
Rúnar Alexandersson (bogahest og tvíslá),
Sif Pálsdóttir (gólfæfingum, jafnvægisslá
og tvíslá) og
Margrét Hulda Karlsdóttir (jafnvægisslá).
Öll stóðu þau sig mjög vel en þrátt
fyrir mjög harða keppni stóð Sif Pálsdóttir
uppi sem sigurvegari í æfingum á tvíslá
og í öðru
|
Rúnar
Alexandersson, Norðurlandameistari í æfingum
á tvíslá. |
| 
Veronika
Wagner varð Norðurlandameistari í æfingum
á jafnvægisslá, gólfæfingum
og á stökki. Slæm útreið hennar
á tvíslá kostaði hana .
|
sæti
á slá og sama má segja um Rúnar
Alexandersson sem sigraði í
æfingum á tvíslá og varð annar
í æfingum á bogahesti.
Veronika Wagner frá Svíþjóð varð
sigursælust í stúlknaflokki með þrjá
Norðurlandameistaratitla, fyrir æfingar á jafnvægisslá,
gólfæfingar og fyrir stökk. Hún gerði
afdrifarík mistök í æfingum sínum
á tvíslá í keppni í fjölþraut
sem segja má að hafi kostað hana Norðurlandameistaratitilinn.
Hún endurtók svo leikinn í keppni til úrslita
á tvíslá þar sem hún gjörsamlega
klúðraði æfingum sínum og hætti
án þess að klára þær.
|
Margrét
Hulda Karlsdóttir í úrslitum á jafnvægisslá
en hún varð önnur inn í úrslit
eftir feiknargóðar æfingar í fjölþraut. |
| Sami
Aalto frá Finnlandi sýndi í úrslitum
að hann er nokkuð jafn á öllum áhöldum
og var með fremstu mönnum á fimm áhöldum
af sex þar sem hann sigraði í æfingum
á bogahesti.
Almennt má segja að mótið hafi gengið
mjög vel og voru gestir okkar ánægðir
með góða umgjörð mótsins og þá
aðstöðu sem boðið var upp á. Fimleikaáhugafólk
fjölmennti á mótið og mátti sjá
marga af frumkvöðlum fimleikaiðkunnar á
Íslandi. Þar á meðal var Ásgeir
Guðmundsson fyrsti formaður FSÍ en hann þakkaði
fyrir sig með bréfi sem hann sendi FSÍ en
þar tók hann eftirfarandi fram: "Mótið
var ykkur til sóma, glæsileg umgjörð,
starfsmenn til eftirbreytni í umgengni og klæðaburði,
hraðinn góður og keppendur okkar betri eða
jafnfætis frændum okkar, frábært. Til
hamingju." |
| 
|
| Það
er við hæfi að ljúka umfjöllun um
Norðurlandamótið á glæsilegri mynd
af Sif Pálsdóttur í æfingum á
tvíslá en eins og fram hefur komið varð
hún Norðurlandameistari í æfingum á
tvíslá og í fjölþraut. Myndina
tók Auður Sigbergsdóttir en segja má
að myndin grípi vel þá spennu sem ríkti
í Versölum þegar Sif framkvæmdi æfingar
sínar á tvíslá en myndin sýnir
einnig þá nákvæmni og fegurð í
æfingum sem þarf til að bera til að hampa
Norðurlandameistaratitli. Myndin rifjar einnig upp orð
Sigríðar Jónsdóttur, varaforseta ÍSÍ,
sem sagði eftir vígslusýningu Íþróttamiðstöðvarinnar
að Versölum í Kópavogi nú í
janúar sl. "að horfa á fimleika fengi
áhorfandan til að hugsa hver væru mörk
íþróttar og listgreinar". Fleiri myndir
eftir Auði Sigbergsdóttur hér
og hér.
|
| Sif
Pálsdóttir Norðurlandameistari
|
|
8/4/06
| * |
|
Sif Pálsdóttir sigraði í
fjölþraut á Norðurlandamót í
áhaldafimleikum sem fór fram um helgina í
Versölum í Kópavogi. Sif varð þar
með fyrst Íslenskra kvenna til þess að
sigra Norðurlandameistaratitil í frjálsum
æfingum í áhaldafimeikum kvenna. Í
fyrstu umferð varð strax ljóst að keppnin
yrði á milli hennar og Veroniku Wagner frá
Svíþjóð en í annarri umferð
tók Sif forystu og hélt henni allt til enda í
geysilega spennandi keppni milli þeirra tveggja en Sif
hlaut samtals 54,8 stig en Veronika Wagner fékk 54,45
stig. Engum blöðum er um það að fletta
að hér er um einstakt íþróttaafrek
að ræða og óskum við henni innilega
til hamingju með þennan stórmerkilega árangur
í íslenskri fimleikasögu. Í þiðja
sæti varð Charlotte Buer með 52,55 stig.
Í fjölþraut karla sigraði Sami Aalto frá
Finnlandi með 86,1 stig, í öðru sæti
varð Björn Slånvall frá Svíþjóð
með 83,1 stig og í þriðja sæti varð
Riku Koivunen með 82,1 stig frá Finnlandi.
Í liðakeppni stúlkan sigraði Svíþjóð
með 154,25 stig, í öðru sæti varð
Finnland með 153,15 stig og í því þriðja
varð Noregur með 152,4 stig.
Í liðakeppni karla sigraði Finnland með 251,75
stig, í öðru sæti varð Danmörk
með 245,35 stig, og í þriðja sæti
varð Svíþjóð með 242,35 stig. |
Sif Pálsdóttir,
Norðurlandameistari
Sif Pálsdóttir úr Gróttu á
að baki glæstan feril í fimleikum og hefur
nú í vetur sýnt að hún er sérstaklega
fjölhæf fimleikakona en hún sigraði á
sl. Íslandsmeistaramóti í áhaldafimleikum,
en hún hefur samtals unnið titilinn fimm sinnum,
sem og að hún varð í örðu sæti
á Íslandsmóti í hópfimleikum
með hóp Gróttu. Mjög sjaldgæft
er að stúlkur keppi hérlendis bæði
í áhalda- og hópfimleikum en Sif hefur
sýnt að það gerir ekkert annað en að
stykja hana sem fimleikakonu.
Umfjöllun um Sif t.d. hér
og hér.
|
Norðurlandamót
seniora 2006 í áhaldafimleikum
- haldið í Versölum (Gerplu)
næstu helgi |
|
4/4/06
| * |
Næstu
helgi er stórviðburður í
áhaldafimleikum hér á landi. Fram fer í
Versölum, fimleikahúsi Gerplu Kópavogi,
Norðurlandamót seniora í áhaldafimleikum.
Bestu fimleikakonur og karlar Norðurlanda taka þátt.
Á meðal þeirra eru nokkrir af besta
fimleikafólki heims. Mótið hefst
á laugardaginn kl. 14:00 og verður
þá keppt í liðakeppni og í einstaklingskeppni
í fjölþraut. Á sunnudeginum
kl. 11:00 er síðan keppt til úrslita
á einstökum áhöldum. Áhugafólk
um glæsilega fimleika er hvatt til að mæta og
hvetja Ísland í keppni við hin Norðurlöndin.
Meira um mótið síðar í vikunni
hér á fimleikar.is. |
Mínervumótið
2006 |
|
4/4/06
| * |
Fimleikafélagið
Björk heldur Mínervumótið þann
10. apríl. Mótið er haldið til heiðurs
Mínervu Jónsdóttur sem var einn af stofnendum
fimleikafélagsins. Þetta mót er fyrir þá
sem eru að stíga sín fyrstu skref í
fimleikum. Nánar má lesa um mótið hér.
|
Garpamót
Gerplu 2006 |
|
2/4/06
| * |
| Garpamót
Gerplu 2006 fór fram um helgina en alls tóku um
400 iðkendur þátt á mótinu sem
í held gekk nokkuð vel þrátt fyrir mikinn
fjölda. Í 6. þrepi stúlkna vortu t.d.
21 lið sem tóku þátt en veitt voru verðlaun
fyrir 1. - 6. sætið í liðakeppni en auk
þess fengu allir keppendur viðurkenningar frá
KB banka, Glitni og GK fimleikavörum en auk þess
gaf Íþróttafélagið Gerpla öllum
keppendum bol merktan keppninni sem getur verið gaman fyrir
marga iðkendur sem voru að taka þátt í
sínu fyrsta fimleikamóti. Hér birtum við
úrsit úr keppni á Sunnudeginum. Stúlkur
hér
og strákar hér.
|
Öll
almenn notkun á efni sem birtist á www.fimleikar.is
er heimil án sérstaks samþykkis
Sjá hér.
Allar
myndir © www.fimleikar.is
H eimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni
að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.
|
|
|