|
|
|
| Vormót í
hópfimleikum
- síðasta
FSÍ mót keppnistímabilsins - |
|
|
30/4/05 |
Í
dag var Vormót í hópfimleikum haldið
á Selfossi. Var mótið einnig síðasta
hópfimleikamót vorsins. Mjög mikil þátttaka
var í mótinu eða alls 17 lið sem tóku
þátt. En um morguninn var haldið byrjendamót
í hópfimleikum þar sem kepptu 18 lið.
Þannig að alls tóku 35 lið þátt
í báðum mótum.
Úrslitin urðu eftirfarandi:
Yngri lið:
1. Ármann með 19.98
2. Björk I2 með 19.10
3. Fylkir með 18.87
Mið lið:
1. Björk með 22.32
2. Grótta 22.12
3. Fylkir 21.53
Aðeins keppt 1 eldra lið það var lið
Selfoss.
|
| Bergþóra
íþróttakona Umf. Selfoss
- fyrst
allra kvenna til að hljóta viðurkenninguna - |
|
|
30/4/05 |
Á
aðalfundi Umf. Selfoss sem haldinn var 19. apríl
sl. var Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir
fimleikamaður Umf. Selfoss kjörin Íþróttakona
Umf. Selfoss fyrst kvenna, en lögum félagsins
var breytt á sl. ári þannig að nú
eru kjörin Íþróttakona og Íþróttamaður
félagsins. Bergþóra Kristín hlaut
50.000 kr. styrk úr afreksmannasjóði Umf.
Selfoss, auk bikars og blóma. Við óskum
Bergþóru til hamingju með titilinn. (sjá
eldri frétt frá 14.01.2005).
Hér á fimleikar.is hefur áður verið
fjallað um gott uppbyggingarstarf fimleikadeildarinnar
á Selfossi. Er ljóst að sú viðurkenning
sem Berþóra hefur nú fengið er enn
ein staðfestingin á því. Jafnframt
að sú starfssemi sem fer fram í deildinni
er metin að verðleikum af forystumönnum íþróttamála
í sveitarfélaginu.
|
 |
| Innanfélagsmót
Gróttu
|
|
|
30/4/05 |
Innanfélagsmót
hjá stúlkuhópunum B-1-2-og3 og Strákahópum
S-1-2-og 3 í Gróttu fóru fram nú
í vikunni.
Hjá stúlkunum ,sem nær allar voru að
keppa á sínu fyrsta móti var mikil eftirvænting
og stóðu þær sig virkilega vel.
Að launum fengu þær mikið klapp frá
áhorfendum, gullpening um hálsinn og íþróttatösku
að gjöf frá Landsbankanum.
|
 |
| Innanhússmót
Fimleikadeildar Aftureldingar
- Lára
Kristín Aftureldingarmeistari í fimleikum
- |
|
|
27/4/05 |
Innanhússmót
Fimleikafélags Aftureldingar fór fram sunnudaginn
24. apríl síðastliðinn og sýndu
yfir 50 börn listir sínar. Lára Kristín
Pedersen var stigahæst á mótinu, og tryggði
sér því meistaratitil Aftureldingar. Næst
henni að stigum á mótinu öllu var Róshildur
Björnsdóttir og þriðja sætinu
deildu þær Ísabella Ýr Finnsdóttir
og Díana Mjöll Stefánsdóttir.
Í
2 þrepi kepptu fimm stúlkur og varð Lára
Kristín Pedersen hlutskörpust eins og áður
sagði, Brynja Ragnarsdóttir varð næststigahæst
og Lena Rós Þórarinsdóttir þriðja
hæst að stigum í 2. þrepi. Í
1 þrepi háðu 9 stúlkur mjög jafna
keppni og varð Róshildur Björnsdóttir
hæst í samanlögðum stigum, þá
voru þær stöllur Ísabella Ýr
Finnsdóttir og Díana Mjöll Stefánsdóttir
í öðru sæti og þriðja stigahæst
í 1. þrepi var Sveinbjörg Lilja Guðrúnardóttir.
Yngri
aldurshóparnir og byrjendur á öllum aldri
fengu viðurkenningarskjöl fyrir góða frammistöðu
en 14 stúlkur kepptu í 1 þrepi C og 21
stúlka kepptu í 1 þrepi B. Börnin
stóðu sig öll afar mjög vel á
mótinu og metnaður og einbeiting einkenndi alla
hópa. Veröldin okkar gaf medalíur og bikar.
|
| Iceland Cup
- Unglingameistaramót Íslands - |
|
|
24/4/05 |
Iceland
Cup mót Fimleikasamabands Íslands fór
fram í dag og lauk keppninni núna síðdegis.
Keppendur sýndu glæsileg tilþrif og keppnin
var oft mjög spennandi, sérstaklega í unglingaflokki
stúlkna þar sem Kristjana Sæunn Ólafsdóttir
sigraði stöllu sína úr Gerplu, Fríðu
Rún Einarsdóttur, naumlega. Helstu úrslitin
voru eftirfarandi:
Meistarflokkur stúlkna
1. Harpa Snædís Hauksdóttir Grótta
30,900 stig
2. Margrét Huld Karlsdóttir Gerpla 29,500 stig
3. Elín Vigdís Andrésdóttir Grótta
25,900 stig
Unglingaflokkur stúlkna
1. Kristjana Sæjunn Ólafsdóttir Gerpla
32,000 stig
2. Fríða Rún Einarsdóttir Gerpla
31,750 stig
3. Fanney Hauksdóttir Grótta 28,700 stig
Teplnaflokkur
1. Thelma Hermannsdóttir Gerpla 26,900 stig
2. Tinna Óðinsdóttir Grótta 23,150
stig
3. Jóhanna Rakel Jónasdóttir Dynamov
Moskva 22,500 stig
Meistaraflokkur pilta
1. Jónas Valgeirsson Ármann 41,60 stig
2. Gunnar Sigurðsson Ármann 39,80 stig
Unglingaflokkur
pilta
1. Róbert Kristmannsson Gerpla 43,12 stig
2. Bjarki Ásgeirsson Ármann 41,15 stig
3. Ólafur Garðar Gunnarsson Gerpla 35,75 stig.
Unglingameistarmót Íslands er síðasta
mót vetrarins á móta og keppnisskrá
FSÍ í áhaldafimleikum. Um næstu
helgi verður Vormót í hópfimleikum.
Þá munu taka við vorsýningar félaganna
sem ávallt er skemmtilegt að fylgjast með enda
er þá slegið á léttari strengi.
Auk þess er Evrópumót í áhaldafimleikum
eftir um mánuð og einnig munu nokkrir taka þátt
í boðsmóti sem fram fer í Rússlandi
eftir um tvær vikur.
|

Sigurvegarar í hverjum flokk
fyrir sig (frá vinstri) Thelma Hermannsdóttir,
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Róbert
Kristmannsson, Jónas Valgeirsson og Harpa Snædís
Hauksdóttir.

Jóhanna Rakel Jónasdóttir
sýndi skemmtilegar æfingar á mótinu.
Fyrir áhorfendur og aðra keppendur var spennandi
að fylgjast með henni enda greinilega mjög efnileg
og með góðan grunn til að byggja á.
Gaman verður að fylgjast með henni í framtíðinni. |
| Innanfélagsmót
Gróttu |
|
Myndir
og texti eftir Guðrúnu Vilhjálmsdóttur |
23/4/05 |
Þessa
vikuna standa yfir innanfélagsmót fimleikadeildar
Gróttu en 18 hópar taka þátt að
þessu sinni. Á sumardaginn fyrsta kepptu 6 hópar
í 4 þrepi,3 þrepi, 1 þrepi og frjálsum
æfingum áhaldafimleika, ásamt meistarhópnum
í Trompfimleikum. Dómamar voru þær:
Hlín Bjarnadóttir, Sandra Dögg Árnadóttir,
Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Berglind Pétursdóttir.
Fá þær sumarkveðjur og þakkir
frá deildinni fyrir þeirra framlag á síðasta
degi vetrar.
Gróttumeistari í áhaldafimleikum 2005
varð Harpa Snædís Hauksdóttir með
einkunnina 32.00, í öðru sæti Sif Pálsdóttir
með einkunnina 31.80 og í þriðja sæti
Fanney Hauksdóttir með einkunnina 29.80.
Gróttumeistari í Trompfimleikum 2005 varð
Tinna Rut Traustadóttir , í öðru sæti
Vilborg Guðjónsdóttir og í þriðja
sæti Jónína Þóra Einarsdóttir.
Sigurvegarar í 1.þrepi urðu Ingunn Erlendsdóttir
og Domino Belany en í öðru sætinu lenti
Tinna Óðinsdóttir.
Sigurvegari í 3.þrepi er Rakel Vilhjálmsdóttir
en í öðru sætinu er Ída Pálsdóttir.
Sigurvegari í fjórða þrepi varð
Sylvia Spillaert, í öðru sæti Helga
kristín Einarsdóttir og í því
þriðja Eva Katrín Friðgeirsdóttir.
Við óskum keppendum til hamingju með þeirra
árangur og sendum fleyri úrslit og myndir síðar,
þegar þau liggja fyrir.
|

Keppendur í dag, F-5-6-7
og 8 og allir sigurvegarar!!!

Harpa og Tinna Gróttumeistarar
2005 |
Sérstakur
gestakeppandi var Jóhanna Rakel Jónasóttir(
Tryggvasonar fimleikamanns og Örnu Garðarsdóttur
fv.handboltakonu) en hún er stödd hér á
landi í nokkrar vikur. Hún býr nú
í Moskvi ásamt fjölskyldu sinni og æfir
með Dynamo Moskva. Hún vakti athygli viðstaddra,
upprennandi fimleikastjarna glæsilegar hreyfingar strekt
og flott.
Á
föstudaginn fóru fram innanfélagsmót
hjá byrjendum í áhaldafimleikum, hópum
F-5-6-7 og 8.
Keppnin var virkilega skemmtileg og allir sigurvegararnir
fengu verðlaunapening og bakpoka að gjöf frá
Landsbanka Íslands.
Í 5.þrepi hópur F-5 varð efst Tinna
Jónsdóttir, önnur Helga Laufey Hafsteinsdóttir
og þriðja Hjördís Ylfa Stefánsdóttir.
Í hópi F-6 var það Brynja Steinþórsdóttir,
önnur varð Hrafnhildur Sigurjónsdóttir
og þriðja Lilja Dís Pálsdóttir.
Hópur F-7,þar varð efst Tara Ólafsdóttir,
önnur Herdís Birta Bragadóttir og þriðja
Melkorka Pitt.
Í hópi F-8 varð efst Edda Ólafsdóttir,önnur
Una Hallgrímstóttir og sú þriðja
varð Viktoría Ísold Hannibalsdóttir.
|
| Glæsilegar fimleikastúlkur |
|
|
|
21/4/05 |
Meistarahópur
Fimleikadeildar Aftureldingar tók þátt
í sínu fyrsta móti í hópfimleikum
á dögunum. Um var að ræða byrjendamót
Þórs í Þorlákshöfn í
hópfimleikum. Stúlkurnar stóðu sig
með prýði undir stjórn yfirþjálfara
síns, Önnu Gretu Ólafsdóttur. Hér
hefur verið lagður fyrsti grunnur að áframhaldandi
þátttöku Aftureldingar í hópfimleikum.
Stúlkurnar á efri myndinni eru:
fremri röð frá vinstri Ástríður
Guðrún Einarsdóttir, Kristrún Kristmundsdóttir,
Díana Mjöll Stefánsdóttir, Brynja
Ragnarsdóttir, Lena Rós Þórarinsdóttir,
Inger Ósk Sandholt, Sveinbjörg Lilja Guðrúnardóttir
Efri röð frá vinstri, Ísabella Ýr
Finnsdóttir, Ragnheiður Erla Björnsdóttir,
Róshildur Björnsdóttir, Tinna Sif Guðmundsdóttir,
Lára Kristín Pedersen.
|

 |
Sunnudaginn
24. mars verður siðasta áhaldamót vetrarins
haldið í Íþróttamiðstöðinni
Björk kl. 12.30.
Mótið
er kallað Iceland Cup því ætlunin var
að hafa þetta opið mót og bjóða
erlendum liðum en sá draumur rættist ekki
að þessu sinni. Engu að síðu er flest
okkar besta fólk að keppa á mótinu.
Gaman verður að fylgjast með unga fimleikafólkinu
sem átti glæsilega keppni í Finnlandi
8 – 10. apríl s.l. Þar verður örugglega
hörð keppni á milli þeirra Kristjönu
Sæunnar Ólafsdóttur og Fríðu
Rúnar Einarsdóttur sem báðar eru
í Gerplu og fleiri munu örugglega blandast í
hópinn og þá verður einnig hörð
keppni á milli þeirra Róberts Kristmannssonar
úr Gerplu og Bjarka Ásgeirssonar úr Ármanni.
Þá eru Meistaraflokksfólkið að
undirbúa sig fyrir Evrópumót í
Ungverjalandi í byrjun júní.
Gaman
er að nefna að á mótin keppir Jóhanna
Rakel Jónasdóttir en hún er dóttir
Jónasar Tryggvasonar fyrrum Íslandsmeistara
karla í áhaldafimleikum en Jóhanna Rakel
æfir nú um þessar mundir með fimleikaklúbbnum
Dynamo Moskva þar sem fjölskyldan býr um
þessar munir þar sem Jónas vinnur hjá
Actavis. Frá félagi koma hetjur eins og Svetlana
Korkina og Anna Pavlova. Það er gaman að sjá
hvernig útrás Íslenskra fyrirtækja
blandast inn í Íslensk samfélag með
þessum hætti.
|
| Norðurlandamót
í hópfimleikum
- video - |
|
|
|
20/4/05 |
Þau
ykkar sem ekki sáuð frábært norðurlandamót
í hópfimleikum sem fram fóru í
Laugardalshöll fyrir um tveim vikum síðan
getið nú nálgast mikið af myndböndum
af mótinu á á heimasíðunni
www.teamgym.net og lista yfir öll myndböndin á
undirsíðu má sjá hér.
En þau ykkar sem viljið fara strax í
aðalatriðið þá er dýnustökksmyndbandið
af strákunum í HSG frá Danmörku
á algjört "must" að sjá HÉR
og einnig æfingarnar á trampolíni HÉR.
Norðurlandameistarar í hópfimleikum sýna
svo ekki verður framhjá því litið
að hópfimleikar er keppnisform sem á fullt
erindi til bestu fimleikamanna í heiminum í
dag.
|

Stúlkurnar frá Fjölni í Grafarvogi
voru valdar prúðustu stúlkur mótsins
og með bestu framkomu þeirra liða sem kepptu
fyrir hádagi og má sjá að þær
standa vel undir þeim titli.
|
Í
dag fór fram Mínervumót sem er boðsmót
sem Fimleikafélagið Björk stendur fyrir. Er
þetta annað árið í röð
sem mótið er haldið og er gríðarlega
mikil fjölgun keppenda á milli móta og
var nú nauðsynlegt að tvískipta mótinu
(fyrir og eftir hádegi).
Mótið var liðakeppni og í 6. þrepi
yngri sigraði Björk, Fjölnir sigraði í
6. þrep eldri og Gerpla sigraði í 5. þrepi.
|
 |
Prúðasta
liðið í 5. þrepi varð Björk
og í 6. þrepi eldri varð Akureyri. Mótið
heitir í höfuðið á Mínervu
Jónsdóttur, Hafnfirskum íþróttakennara,
sem var ein af stofnendum Fimleikafélagsins Björk.
Árið 2002 var stofnaður minningarsjóður
Mínervu Jónsdóttur og fékk Steinunn
Ketilsdóttir úthlutað úr sjóðnum
180.000 árið 2004. Þeir geta sótt
um styrk úr sjóðnum sem kenna fimleika og
dans en það var hennar sérgrein og uppáhald.
|
| Fjör í íþróttaskóla
hjá Björk
- heimsókn frá www.fimleikar.is
á æfingu hjá Björk - |
|
17/4/05 |

Í frjálsu falli, ekkert mál!
|
Samhæfing
og öryggi í hreyfingum hjá börnum
er undirstaða fyrir alla íþróttaiðkun
þeirra í framtíðinni. Því
er gjarnan nefnt að ástundun fimleika sé
best til þess fallin að byggja upp góðan
grunn að frekari færni í íþróttum.
Þess vegna er m.a. gaman að sjá hversu vinsæl
námskeiðin eru hjá Fimleikafélaginu
Björk. Boðið er upp á námskeið
3ja, 4ra og 5 ára barna þar sem foreldrarnir
taka þátt í æfingunum sem veitir
börnum á þessum aldri mikið öryggi.
Meðfylgjandi myndir lýsa ágætlega
áskorun barnanna að takast á við æfingarnar
og þeirri gleði sem þeim fylgir.
|
 |
| Innanfélagsmót
Gerplu |
|
17/4/05 |
| |
Nú
um helgina fór fram innanfélagsmót Gerplu
í 6. þrepi Íslenska fimleikastigans. Eins
og sjá má á meðfylgjandi myndum þá
mættu stúlkurnar til leiks til þess að
gera sitt besta enda mikil framundan hjá þessum
stúlkum um helgina þar sem þær kepptu
á tveimur mótum, þeas innanfélagsmótinu
og Mínervumóti í Björk.
Stúlkurnar voru ánægðar að leikslokum
og fengu þær allar verðlaunapening fyrir framistöðu
sína á mótinu.
|
 |
| Viðurkenningar fyrir
góðan árangur |
|
16/4/05 |

Una María Óskarsdóttir, formaður íþrótta
og tómstundaráðs Kópavogsbæjar,
veitti nýkrýndum Norðurlandameisturum viðureknningu
fyrir hönd Kópavogsbæjar og tók fram
hversu gaman það væri að fylgjast með
kraftmiklu starfi sem fram færi hjá félaginu.
|

Iðkendur og þjálfarar þeirra fengu viðurkenningar
fyrir þeirra árangur á mótunum og
mikið klapp fyir að hafa náð þeim markmiðum
sem þau hafa stefnt að í allan vetur.
Eftir annasama
helgi þá var tekið vel á móti
iðkendum í Íþróttafélaginu
Gerplu sem tóku þátt á Norðurlandamóti
í hópfimleikum sem fór fram í Laugardalshöll
og þeim sem tóku þátt á Norðurlandamóti
unglinga í áhaldafimleikum sem fram fór
í Finnlandi. Það var ánægjuleg
stund sem iðkendur félagsins áttu saman þar
sem viðurkenningar voru veittar að viðstöddum
formanni Íþrótta og tómstundaráðs
Kópavogsbæjar, Unu Maríu Óskarsdóttur
og framkvæmdastjóra Fimleikasambands Íslands,
Önnu Möller, ásamt því sem formaður
Gerplu Kristján Erlendsson og varaformaður Jón
Finnbogason fögnuðu framúrskarandi árangri
sem iðkendurnir sýndu.
|
| DANSleikhúsið
frumsýnir |
|
14/4/05 |
DANSleikhúsið
frumsýnir 4 tímabundin verk á Nýja
sviði Borgarleikhússins 21.apríl, 24.apríl
og 1.maí. Undir yfirskriftinni Augnablikið fangað!Ath.
Breyttur leikhústími kl.19:09. Miðasala er
hafin í Borgarleikhúsinu sjá www.borgarleikhus.is
og í sími 568-8000.
Það sem tengir verk sýningarinnar eru tímabundnar
aðstæður og hvernig lífið og tíðarandinn
stjórnast af tímanum. Verkin eru:
núna e. Irmu Gunnarsdóttur
Kólnandi kaffi e. Lovísu Ósk
Gunnarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur
í samstarfi við Sigurð Halldórsson sellóleikara.
Í ræktinni! e. Katrínu
Ingvadóttur
Hetkinen – minningarbrot frá Finnlandi
e. Ólöfu Ingólfsdóttur
Dansarar / leikarar: Aðalheiður Halldórsdóttir,
Ásdís Ingvadóttir, Ásta Bærings,
Guðrún Óskarsdóttir, Halla Ólafsdóttir,
Íris María Stefánsdóttir, Ívar
Örn Sverrisson, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir,
Ólöf G.Söebech og Þórdís
Schram.
|
|
| Tvenn gullverðlaun
í úrslitum á áhöldum
Kristjana Sæunn og Róbert Norðurlandameistarar
í gólfæfingum og á bogahesti |
|
9/4/05 |

Kristjana
Sæunn með 4 verðaun á mótinu.
|
Í
úrslitum á áhöldum á Norðurlandameistaramóti
unglinga sem fram fór í Finnlandi í dag tryggðu
þau Kristjana Sæunn Ólafsdóttir og Róbert
Kristmannsson sér Norðurlandameistaratitil í
gólfæfingum stúlkna og á bogahesti
en þau koma bæði úr Gerplu í Kópavogi.
Auk þess að sigra í gólfæfingum
þá varð Kristjana Sæunn í 2. sæti
á stökki og í þriðja sæti á
slá þrátt fyrir fall sem kostaði hana
gullverðlaunin. Næst á eftir Kristjönu Sæunni
á gólfæfingum var æfingarfélagi
hennar Fríða Rún Einarsdóttir en hún
varð í 2. sæti á gólfi og 3. sæti
á stökki. |

Fríða Rún með silfur á gólfæfingum
og brons á stökki |

Landslið
Íslands ásamt þjálfurum. Fv. Ásdís
Pétursdóttir þjálfari, Unnur Ósk
Rúnarsdóttir, Harpa Dögg Steindórsdóttir,
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, allar úr
Gerplu, Fanney Hauksdóttir Gróttu, Fríða
Rún Einarsdóttir Gerplu og Vladimir Antonov.
|
Róbert
keppti einnig til úrslita í gólfæfingum
þar sem hann hafnaði í 4. sæti og á
stökki sem hann hafnaði í 6. sæti. Bjarki
Ásgeirsson úr Ármanni keppti einnig í
úrslitum á bogahesti og tvíslá en
hann hefur sýnt áður að þetta eru
hans sterkustu áhöld. |

Róbert
á bogahesti en hann hefur nú náð nokkuð
góðum tökum á æfingum sínum.
Myndir og texti frá NMJ hér. |
| Bjarki
hafnaði í 4. sæti á bogahesti en hann
var með næsthæstu einkunn keppenda inn í
úrslitin. Á tvíslá varð Bjarki
í 5. sæti.
Ef tekið er mið að sigurum þá varð
niðurstaða mótsins sú að landslið
stúlkna varð í þriðja sæti í
liðakeppni. Kristjana Sæunn varð í 2. sæti
í fjölþraut, 1. sæti á gólfi,
3. sæti á slá, 2. sæti á stökki.
Fríða Rún varð í 2. sæti á
gólfi og 3. sæti á stökki. Róbert
varð í 1. sæti á bogahesti og 3. sæti
í fjölþraut. |
Árangur
okkar keppenda er því góður og sú
staða nú komin upp að á Norðurlandamótum
þá geta frændþjóðir okkar
ekki gert ráð fyrir því lengur að
ganga að sigurum vísum þar sem íslensku
keppendurnir koma nú ítrekað heim með
gullverðlaun af áhaldafimleikamótum þar
sem þjóðirnar mætast. Rétt er
að óska öllum keppendum til hamingju með
þeirra árangur og einnig þjálfurum
og dómurum sem einnig fóru á mótið.
Heimasíða hjá Finnska fimleikasambandið
er http://www.svoli.fi/
og heimasíða hjá félaginu sem hélt
keppnina er http://www.stvk.net/
|
| Norðurlandamót
í hópfimleikum |
|
|
9/4/05 |
Norðurlandamót
í hópfimleikum fór fram í Laugardalshöll
í dag. Keppt var í þremur keppnisflokkum,
kvennaflokki, karlaflokki og blönduðum flokki. Í
kvennaflokki sigraði Stockh. Top Gym frá Svíþjóð
og varð Stjarnan í Garðabæ í 5.
sæti og Gerpla úr Kópavogi í 7. sæti.
Í
karlaflokki sigraði HSG Slagelse frá Danmörku
með 27,95 stig eftir harða keppni við landa sína
frá Silkeborg sem fengu 27,9 stig. Þessi tvö
lið voru í sérflokki og sýndu algjörlega
ótrúlegar æfingar. Í
blönduðum flokki sigraði Motus Salto frá
Svíþjóð með 24,95 stig eftir harða
keppni frá Rödovre frá Danmörku með
24,9 stig. Keppendur voru rúmlega þrjúhundruð.
|
Sigurvegarar
í karlaflokki, HSG Slagelse frá Danmörku |
| |
Fyrir
fimleikaáhugafólk var dagurinn í dag sannkölluð
fimleikaveisla og sem dæmi um hversu ótrúlega
sterkir keppendur eru í karlaflokki þá má
nefna að í fyrstu stökkseríu af þremur
þá stökkva strákarnir í HSG Slagelse
frá Danmörku tvöfallt heljarstökk með
tvöfalldri skrúfu og á trampolíni mátti
sjá þá gera tvöfallt heljarstökk
með beinum líkama og tveimur og hálfri skrúfu.
Í síðustu stökkseríu í dýnustökki
þá gerðu tveir keppendur tvöfallt herljar
með beinum líkama og þrefalldri skrúfu
en það hefur aldrei áður verði sýnt
á hópfimleikamóti áður. |
Já
það má með sanni segja að okkur hafi
verið sýndar stórkostlegar æfingar en
þess má geta að í keppnum þá
eru þessir strákar í raun stoppaðir
af reglunum því t.d. geta þrír af
keppendum í HSG Slagelse gert þrefallt herljarstökk
með tveimur og hálfri skrúfu á trampolíni
en slíkt stökk meiga þeir ekki gera í
keppni. Einnig má nefna að HSG Slagelse óskaði
eftir því að fá að gera á
trampolíni tvöfallt heljarstökk með þremur
og hálfri skrúfu og einnig að gera þrefallt
heljarstökk en slíkt samþykki lá ekki
fyrir en reglurnar heimila ekki þessi stökk.
|
|
Stemmingin
var ótrúlega góð í höllinni
og mátti sjá nánast troðfulla stúkuna
skemmta sér stórvel. Tónlistin hljómaði
mjög vel og kunnu áhorfendur vel að meta það.
Mótið var í höndum FSÍ og tókst
skipulagning og framkvæmd þess sérstaklega
vel. Mótstjórar voru Anna Möller og Birna
Björnsdóttir.
|
| Norðurlandamót
unglinda í áhaldafimleikum |
|
9/4/05 |
Liðakeppni
og fjölþraut einstaklinga á Norðurlandamót
unglinga í áhaldafimleikum fór fram í
finnlandi í dag. Í stúlknaflokki varð
landslið stúlkna í 3. sæti með 91,0
stig. Í piltaflokki varð landslið pilta í
4. sæti með 120,95 stig. Í fjölþraut
stúlkna varð Kristjana Sæunn Ólafsdóttir
í öðru sæti og Róbert Kristmannsson
varð í 3. sæti en þau eru bæði
úr Gerplu.
|
Úrlsit
í piltaflokki:
1. Finnland 132.25
2. Noregur 131,10
3. Svíþjóð 128,75
4. Ísland 120,95
5. Danmörk 120,30
|
Úrslit
í stúlknaflokki:
1. Finnland 93,35
2. Svíþjóð 91,325
3. Ísland 91,000
4. Noregur 90,950
5. Danmörk 78,375 |
Róbert
mun taka þátt í úrslitum á
gólfi, bogahesti og stökki. Bjarki Ásgeirsson
varð í 6. sæti í fjölþraut
og mun keppa í úrslitum á bogahesti og
tvíslá. Kristjana Sæunn mun keppa í
úrslitum á tvíslá en hún
fékk hæstu einkunn á mótinu á
tvíslá. Fríða Rún Einarsdóttir
varð í 4. sæti í fjölþraut.
|
| Byrjendamót Fylkis
í hópfimleikum 29.apríl |
|
11/4/05 |
Fimleikadeild
Fylkis ætlar að halda byrjendamót í
hópfimleikum föstudaginn 29.apríl næstkomandi.
Mótið fer fram í Fylkishöll. Keppt verður
eftir byrjendareglum. Mótið verður aldurskipt
ef þátttaka er næg. Mótagjald er 1000
kr. á keppanda og greiðist það á
mótstað. Skila skal inn einum dómara á
lið, ef lið getur ekki reddað dómara þá
skal greiða 2000 kr. aukalega. Keppt verður á
Gymnova loftdýnu með stillanlegum stífleika
(hægt að stilla eins og loftdýnu eða eins
og fibergólf). Skráningu skal skilað fyrir
19.apríl á netfangið: olofs@internet.is. Stökklistum
skal skilað á mótstað í 3 eintökum.
Áætlað er að keppendur mæti milli
16:30 og 17:00. Boðið verður uppá afslátt
fyrir keppendur og þjálfara í Árbæjarsundlaug
að móti loknu. Allar nánari upplýsingar
veita Ólöf í s: 897-6569 eða Þorbjörg
í s: 698-1436.
Vonumst til að sjá sem flesta.
|
| Norðurlandamót í
hópfimleikum 2005 – NORDIK TEAMGYM 2005 |
|
Á
laugardaginn 9. apríl verður NORDIK TEMAGYM 2005
- Norðurlandamót í hópfimleikum haldið
í Laugardalshöll.
Mótið er sett kl. 12.30 og því líkur
kl. 16.10 með verðlaunaafhendingu. Fyrst er keppni blandaðra
liða, kl. 13.30 hefst keppni kvenna og kl. 15.15 keppni
karla.
Blönduðu liðin eru 5 þ.e. 2 lið frá
Danmörku, og 1 lið frá Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð. Í blönduðum
liðum er jöfn skipting karla og venna. Rødovre
frá Danmörku er á meðal keppenda en þau
urðu Evrópumeista í Austurríki í
október s.l. Liðin í 2. og 3 sæti eru
einnig meðal keppenda.
Í kvennakeppninni eru 8 lið og þar á
meðal lið Gerplu og Stjörnunnar auk þeirra
2 lið frá Danmörku, 1 frá Finnlandi,
1 frá Noregi og 2 frá Svíþjóð.
Team Asker frá Noregi Evrópumeistararnir frá
því í haust er á meðal keppenda
og einnig liðið í 2. sæti Stockholm Top
Gymnastarna en á Evrópumótinu varð
Stjarnan í 3. sæti.
Í karlakeppninni eru 5 lið og þar á
meðal eru einnig Evrópumeistararnir frá HSG
Slagelse og einnig liðið sem varð í 3. sæti
SK Stags frá Noregi.
Þannig að ljóst er að besta fimleikafólk
Evrópu í hópfimleikum verður við
keppni í Laugardalshöll á laugardaginn. Æfingarnar
eru frábærar hjá öllum og það
sem karlarnir eru t.d. að framkvæma er hreint ótrúlegt.
Norðulandamót unglinga í áhaldafimleikum
verður einnig haldið um næstu helgi í Finnlandi
þangað fara 5 stúlkur og 5 piltar ásamt
þjálfurum og dómurum.
|
Árið
1983 skaust 16 ára strákur, Dmitry Bilozerchev
(Dima), frá Rússlandi (þá Sovétríkjunum)
heldur betur upp á stjörnuhimininn í fimleikaheiminum.
Hann fékk viðurnefnið “Boy wonder”
(undrastrákurinn) þegar hann varð, á
heimsmeistaramótinu í Budapest í Ungverjalandi,
yngsti heimsmeistari í fimleikum karla frá upphafi.
Með sérstaklega stílhreinum og tæknilega
fullkomnum æfingum sigraði þessi nánast
óþekkti pjakkur allar helstu fimleikastjörnum
þess tíma. Dima sigraði á öllum
stórmótum sem hann tók þátt
í á árunum 1983 til 1985 m.a. varð
hann Evrópumeistari bæði árin. Vegna
pólitískra ástæðna tóku
Sovétmenn ekki þátt í Ólympíuleikunum
í Los Angeles árið 1984. Það var
Dima mikið áfall að fá ekki að taka
þátt í þeim leikunum þar sem
hann var á hátindi síns ferils og mjög
líklegur til að vinna gullið. Dima er fyrir löngu
orðin goðsögn í fimleikaheiminum en ekki
aðeins vegna afrekanna á þessum árum
heldur miklu frekar vegna þeirra ótrúlegu
afreka sem á eftir fylgdu.
Meira hér.
|
 |
| Norðurlandamót í
áhaldafimleikum 2005 (yngri) |
|
Norðurlandamót
juniora í áhaldafimleikum verður haldið
um næstu helgi í Helsinki í Finnlandi. (juniorar
eru 18 ára og yngri í strákaflokki en 16
ára og yngri í stúlknaflokki). Eftirtaldir
keppendur verið valdir til þátttöku fyrir
Íslands hönd: Stúlkur: Fanney Hauksdóttir
- Gróttu, Fríða Rún Einarsdóttir
- Gerplu, Harpa Dögg Steindórsdóttir - Gerplu,
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir - Gerplu og
Unnur Ósk Rúnarsdóttir - Gerplu. Piltar:
Bjarki Ásgeirsson - Ármanni, Daði Snær
Pálsson - Ármanni, Ingvar Jochumsson - Gerplu,
Ólafur Garðar Gunnarsson - Gerplu og Róbert
Kristmannsson - Gerplu.
Þjálfarar stelpnanna eru Vladimir Antonov og Ásdis
Pétursdóttir, sem jafnframt er fararstjóri
hópsins (gsm: 896 59 60). Þjálfarar strákanna
eru Nikolay Vovk og Björn M. Tómasson (gsm: 893
30 72). Liðakeppnin fer fram á laugardeginum og má
búast við hörku keppni um fyrstu sætin.
Líklegt er að stúlknalið Íslands
blandi sér í þá keppni. Liðið
er skipað sterkum einstaklingum og með Íslandsmeistarann,
Kristjönu Sæunni Ólafsdóttur, fremstann
í flokki en hún sigraði í gólfæfingum
og í stökki á síðasta norður-evrópumóti.
Þrátt fyrir að liðið sé ungt
og óreynt, en einungis Kristjana hefur keppt fyrir íslands
hönd áður, er liðsheildin sterk og til alls
líkleg.
Strákaliðið er frekar ungt. Róbert Kristmannsson
er sá einstaklingur í liðinu sem hefur náð
bestum árangri en hann er núverandi Íslandsmeistari
í stökki. Einnig má nefna hinn unga og efnilega
Bjarka Ásgeirsson sem er til alls líklegur á
góðum degi, en Bjarki er núverandi norðurlandameistari
á bogahesti í aldursflokki 13-16 ára pilta.
Sex stigahæstu einstaklingar á hverju áhaldi
keppa til úrslita á sunnudeginum
|
| Byrjendamót Selfoss í
hópfimleikum 30. apríl 2005 |
|
Byrjendamót
Selfoss í hópfimleikum verður haldið 30.apríl
2005 í tengslum við Vormót FSÍ í
hópfimleikum sem fram fer á Selfossi þennan
sama dag. Keppt verður eftir byrjendareglum með þeirri
breytingu að liðin mega gera eina umferð á
hesti og eina á trampólíni. Yfirslag gildir
þá jafnmikið og strekkt heljarstökk á
trampólíni. Mótið verður aldursskipt
ef næg þátttaka verður. Skráning
nafnalista þarf að berast fyrir 20.apríl á
netfangið olgu@simnet.is. Stökklista skal koma með
á mótsstað í 3 eintökum. Ef liðum
vantar eyðublöð og/eða reglur er hægt
að senda mér póst og ég sendi ykkur
gögnin um hæl. Mótagjald eru krónur
10.000 á lið og skal þátttökulið
tilkynna einn dómara á félag. Keppt er
á fiberglass stökkgólfi. Boðið verður
uppá gistingu fyrir þá sem koma lengra að
og kostar nóttin 300 kr. Ef einhverjir huga að gistingu
bið ég þá um að vera í sambandi
við Olgu Bjarnadóttur til að fá nánari
upplýsingar. Vonumst til að sjá sem flesta
!!!
|
| Norðurlandamót í
hópfimleikum 2005 – NORDIK TEAMGYM 2005 |
|
Á
laugardaginn 9. apríl verður NORDIK TEMAGYM 2005
- Norðurlandamót í hópfimleikum haldið
í Laugardalshöll.
Mótið er sett kl. 12.30 og því líkur
kl. 16.10 með verðlaunaafhendingu. Fyrst er keppni blandaðra
liða, kl. 13.30 hefst keppni kvenna og kl. 15.15 keppni
karla.
Blönduðu liðin eru 5 þ.e. 2 lið frá
Danmörku, og 1 lið frá Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð. Í blönduðum
liðum er jöfn skipting karla og venna. Rødovre
frá Danmörku er á meðal keppenda en þau
urðu Evrópumeista í Austurríki í
október s.l. Liðin í 2. og 3 sæti eru
einnig meðal keppenda.
Í kvennakeppninni eru 8 lið og þar á
meðal lið Gerplu og Stjörnunnar auk þeirra
2 lið frá Danmörku, 1 frá Finnlandi,
1 frá Noregi og 2 frá Svíþjóð.
Team Asker frá Noregi Evrópumeistararnir frá
því í haust er á meðal keppenda
og einnig liðið í 2. sæti Stockholm Top
Gymnastarna en á Evrópumótinu varð
Stjarnan í 3. sæti.
Í karlakeppninni eru 5 lið og þar á
meðal eru einnig Evrópumeistararnir frá HSG
Slagelse og einnig liðið sem varð í 3. sæti
SK Stags frá Noregi.
Þannig að ljóst er að besta fimleikafólk
Evrópu í hópfimleikum verður við
keppni í Laugardalshöll á laugardaginn. Æfingarnar
eru frábærar hjá öllum og það
sem karlarnir eru t.d. að framkvæma er hreint ótrúlegt.
Norðulandamót unglinga í áhaldafimleikum
verður einnig haldið um næstu helgi í Finnlandi
þangað fara 5 stúlkur og 5 piltar ásamt
þjálfurum og dómurum.
|
Fimleikafélagið
Björk hélt Ponsumót síðasta sunnudag.
Ponsumót er vinamót þriggja félaga,
Fimleikafélag Keflavíkur, Fimleikadeild Stjörnunnar
og Bjarkanna. Að þessu sinni öttu nær 100
stúlkur á aldrinum 6 til 10 ára keppni.
Keppt var í 6. þrepi fimleikastigans í áhaldafimleikum.
Gleðin var alsráðandi og stúlkurnar hvöttu
óspart hvor aðra. Áhorfendapallarnir voru
fullir af spenntum foreldrum, ömmum og öfum, systkinum
og öðrum ættmennum sem horfðu stoltir á
framtíðar stjörnur fimleikanna.
|
|
Ponsumótið
er liðakeppni þar sem 6 stúlkur eru saman í
liði og árangur 5 bestu teljast til stiga. Keppt
var í A, B og C hópum bæði yngri og
eldri. Lið Bjarkanna urðu sigursæl og sigruðu
A lið eldri og yngri, B lið yngri og C lið yngri.
B og C lið eldri stúlknanna frá Keflavík
sigruðu sína keppni. Síðan var stigahæðsti
keppandinn útnefndur Ponsumeistarinn sem var Dóra
Sóldís Ásmundardóttir frá
Björkunum.
|
| Velhepnaður strákadagur
í Björk |
|
| 3/4/05 |
Nú
um helgina bauð Fimleikafélagið Björk strákunum
í Fimleikadeild Gróttu á Seltjarnarnesi
og Íþróttafélaginu Gerplu í
Kópavogi til sameiginlegrar æfingar. Um 70 strákar
tóku þátt í samæfingunni sem
var m.a. byggð upp til þess að gefa strákunum
tækifæri til þess að kynnast hvor öðrum
og æfa saman auk þess að æfa með Íslandsmeistaranum
Viktori Kristmannssyni. Þröstur Hrafnsson, Guðjón
Guðmundsson og Guðmundur Þór Brynjólfsson
skipulögðu æfingarnar. Tekin voru upp myndbönd
af strákunum sem þeir svo horfðu á sameiginlega
yfir pizzum í félagsaðstöðu Bjarkanna.
Mjög vel tókst til og var almenn ánægja
með þetta framtak.
|

Fjölmenn samæfing drengja úr
þremur félögum til að styrkja tengslin á
milli strákanna. |
| Hvernig á að búa
til dans? |
|
| 2/4/05 |
Namskeið
fyrir hópfimleikaþjalfara 2. - 4. juni 2005.
Farið verður í gegnum ýmsar aðferðir
við að búa til hópfimleikadans. Einnig
verður reynt að leita svara við spurningum og vandamálum
sem kunna að koma upp í ferlinu. Tekið verður
mið af nýjustu reglum í hópfimleikum.
Einnig verður litið á danssmíðina
frá choreografisku sjónarhorni og lögð
verður áhersla á skapandi hreyfingar.
Dagskrá:
Fim 2. juni 18:00 - 20:00
Fös 3. juni 18:00 - 20:00
Lau 4. juni 10:00 - 13:00
Samtals 7 klst.
Verð: 10.000-
Namskeiðið verður haldið í Íþróttamiðstoðinni
Björk í Hafnarfirði. Kennari a namskeiðinu
er Steinunn Ketilsdóttir, dansari og danshöfundur.
Steinunn útskrifast með BA í dansi frá
Hunter College í New York í maí nk. Hún
var dansþjálfari liðs F. Björk sem voru
Íslandsmeistarar í dansi og kepptu fyrir Íslands
hönd á Nordurlanda- og Evrópumótum
á árunum 2000 - 2003. Sjá dans hópsins
hér
og hér.
|
|
|
|