Áhaldafimleikar kvenna:
Ágætar einkunnir en vonbrigði að hafna í síðasta sæti



[30/04/2004]

Rúmensku stúlkurnar sigruðu með 112.772 stig í liðakeppni á Evrópumóti í áhaldafimleikum sem fram fór nú í dag í Hollandi og í öðru sæti varð Ukraina með 111.247 stig og Rússar höfnuðu í þriðja sæti með 111.423 stig. Íslenska landsliðið hafnaði í síðasta sæti af 24 liðum með 92,021 stig. Liðið varð fyrir því óláni að missa sinn sterkasta keppanda, m.v. úrslit á síðasta Íslandsmóti, þegar Inga Rós Gunnarsdóttir slasaðist við æfingar á stökki á sl. miðvikudag og gat hún aðeins keppt á einu áhaldi, tvíslá. Því þurfti að stilla liðinu upp með öðrum hætti en upphaflega hafði verið stefnt að. Engu að síður þá stóðu stúlkurnar undir þeim kröfum sem til þeirra mátti gera og náðu að bæta árangur sinn um 1,5 stig frá síðasta Íslandsmóti þrátt fyrir að þær hafi allar verið með fall í æfingum á slá og ein með fall á stökki.
Á mótinu var Hlín Bjarnadóttir og Ásta Ísberg dómarar fyrir hönd FSÍ og Berglind Pétursdóttir dómari fyrir hönd EUG.


Aftari röð frá vinstri: Harpa Snædís Hauksdóttir, Inga Rós Gunnarsdóttir, Tanja B. Jónsdóttir og Sara Sif Sveinsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Hera Jóhannesdóttir, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Sif Pálsdóttir, Margrét Hulda Karlsdóttir og Karitas Harpa Davíðsdóttir.
  Stökk   Tvíslá   Slá   Gólf   Samtals  
  EM Islm. EM Islm. EM Islm. EM Islm. EM Islm.
Hera 8,1 7,65  7,362 7,15  7,45 7,625 7,512 8,1 30,424 30,525
Tanja B. 7,937 8,35 7,562  7,05  7,2  6,4 7,612 6,85 30,311 28,65
Sif 8,337 8,2     7,437 7,425 8,125 7,975 23,899 23,6
Inga Rós     7,387 7,7         7,387 7,7
                  92,021 90,475

The Romanian seniors won the team competition (112.772), followed by Ukraine (111.247) and Russia (111.423) on the 25th European Championship. The Icelandic team was number 24 out of 24 teams and got 92,021 points. The team suffered from accident on last Wednesday when the strongest team member, according to last Icelandic championship competition, got injured and was only capable of competing on parallel bars. There for it was necessary to organize the team differently from the original plan. Never the less the girls stood up to expectations and improved there over all score of 1,5 points from last Icelandic Championship competition despite the fact that they all had 0,5 points deduction on balance beam and one of them on vault because of fall.
On the European Championship competition the Icelandic Gymnastic Federation sent two judges, Hlín Bjarnadóttir and Ásta Ísberg. Berglind Pétursdóttir was also judges on the competition but she was nominated by EUG.


Áhaldafimleikar kvenna:
Unglingalandsliðið stendur undir væntingum á EM



[29/04/2004]

Lið Russa sigraði í liðakeppni í með 107,559 stig og í öðru sæti varð Rumenía með 106,384 stig og Italya í þriðja sæti með 105,972 stig. Unglingalandslið Íslands hafnaði í 25. sæti með 89,171 stig en á mótinu kepptu 27 lið. Ásdís Pétursdóttir landsliðsþjálfari stúlkna sagði í samtali við okkur á www.fimleikar.is að stúlkurnar hafi fyllilega staðið undir þeim væntingum sem gera mátt til þeirra fyrir mótið og undir það tók Vlatimir Antonof landsliðsþjálfari sem var sérstaklega ánægður með árangur stúlknanna á stökki og framgöngu Margrétar Huldu á Gólfæfingum. Til samanburðar má bera saman einkunnir á EM við einkunnir úr úrslitum í fjölþraut á síðasta Íslandsmóti sem fór fram 20. mars eða fyrir um fimm vikum síðan. Það er ljóst að samtals þá hækkar niðurstöðutala stúlknanna úr 88,5 stigum í 89,171 stig eða um 0,671 stig.


Margrét Hulda Karlsdóttir úr Gerplu stóð sig mjög vel á EM og bætti sig nokkuð frá árangri sínum á Íslandsmótinu en hún var ásamt Karitas Hörpu Davíðsdóttir að keppa í fyrsta skiptið með landsliðinu en hún stóð sig einnig mjög vel.
  Stökk   Tvíslá   Slá   Gólf   Samtals  
  EM Islm. EM Islm. EM Islm. EM Islm. EM Islm.
Kristjana Sæunn 8,687 8,35  6,35 7,6  7,5 7,6 7,312 8,2 29,849 31,75
Harpa Snædís 8,087 7,75 6,912  5,6  6,462  7,45  7,737 7,3 29,198 28,1
Karitas Harpa 8,35 7,75     7,487 7,6     15,837 15,35
Margrét Hulda     6,675 6,05     7,612 7,25 14,287 13,3
                  89,171 88,5

Russian junior team won gold in Amsterdam with 107,559 points, followed by Romania (106,384) and Italy (105,972). The Icelandic junior team scored 89,171 points and ranked 25 out of 27 teams on the European Championship in team competition. Ásdís Pétursdóttir national coach sad that the team meet expectations and Vlatimir Antonof national coach was especially happy with the results on vault and with the performance of Margrétar Huldu in floor exercise. In comparison with the results on the Icelandic championship which took place five weeks ago (20. march) the team gets better results on EC, or 89,171 points compared 88,5 points or 0,671 points better on the EC.

Margrét Hulda Karlsdóttir from Gerpla did here best performance on the EC and proofed progress from the Icelandic championship but she along with here friend from Gerpla, Karitas Harpa Davíðsdóttir, was competing for there first time with the national team and she also did very good performance.

Áhaldafimleikar kvenna:
Landsliðið á Evrópumótinu í Hollandi



[28/04/2004]

Íslenska landslið kvenna í unglinga og eldri flokki eru nú á Evrópumótinu í Hollandi. Á morgun mun keppi í unglingaflokki fara fram og á föstudaginn í flokki fullorðinna. Í landsliðinu eru þær Sif Pálsdóttir, Hera Jóhannesdóttir, Inga Rós Gunnarsdóttir og Tanja B. Jónsdóttir og í unglingalandsliðinu eru þær Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Harpa Snædís Hauksdóttir, Karítas Harpa Davíðsdóttir og Margrét Hulda Karlsdóttir. Karítas Harpa og Margrét Hulda eru að keppa í fyrsta skiptið með landsliðinu. Við sendum þeim baráttu kveðju og einnig sendum við henni Ingu Rós afmæliskveðju en hún á 19 ára afmæli í dag. Heimasíða mótsins: http://www.ecgymnastics2004.nl/


Hera Jóhannesdóttir úr Gróttu keppir á föstudaginn á Evrópumótinu en henni hefur farið mikið fram á síðustu mánuðum og sem sönnun þess má nefna sigur á Eldriflokkamóti FSÍ og að hún varð stigahæst íslensku stúlknanna á síðasta Norðurlandamóti.

The Icelandic national team in artistic gymnastics will compete on the 25th European Championship in Amsterdam, Holland. On Thursday the 29th of April the junior team will compete and on Friday the 30th of April the senior team will compete. In the senior team are Sif Pálsdóttir, Hera Jóhannesdóttir, Inga Rós Gunnarsdóttir og Tanja B. Jónsdóttir and in the junior team are Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Harpa Snædís Hauksdóttir, Karítas Harpa Davíðsdóttir og Margrét Hulda Karlsdóttir. Karítas Harpa and Margrét Hulda are both competing for there first time with the national team. We sent them all our best wises for the competition and a special birthday wises to Ingu Rós on here 19th year birthday to day. The web for the competition: http://www.ecgymnastics2004.nl

Hera Jóhannesdóttir from Grótta will compete on Friday on the 25th European Championship in Amsterdam but she has had very much progress for the last months and to mention some of here grate performance for last four weeks is victory in the Icelandic senior competition and she got the highest score of the Icelandic competitors on the last Nordic championship.

NM Trupp::
Nordic competition in Team Gymnastic

pictures: seria A, seria B,
seria C and seria D

[24/04/2004]

Teams from Danmark walked away with gold medal in both mens and womens competiton when they beated teams from Sweden which came close to them in points, as you can se on the score table here below. But in mixed group GK Motus from Sweden was the winner.
We have put many pictures from the competition on the web and they spaek for them self. Enjoy.
Results here.

Bjarne Nielsen the president of the Team Gymnastic committee of the DGF and Lars Toft who is board member, are both very glad with the performance of the six teams who came from Danmark. Victory in both men’s and women’s competition is something that they are extremely happy about. They also mentioned that they were very satisfied with the work that the Icelandic Gymnastic Association has done regarding organizing the competition and likes to bring special thanks to Birnu Bjönsdóttur and Önnu Möller. From Danmark came 6 teams but that’s only a small fraction of the number of people that is practicing Team Gymnastic in Danmark. Bjarne mentioned that there has been very much increase in number of boys that are practicing Team Gymnastics. Now there are at least 23 teams with boys under 14 years old, 18 teams with boys from 14 to 18 years old and 12 teams with boys over 18 years old. Bjarne thinks that in one way the growth in boys Team Gymnastic is related to more quality of the equipments that are now used and he mentioned the new fibertrack floor.

Herrar      
Eskilstrup G & IF
Brommagymnasterna
Ringsted IF
DAN
SVE
DAN
25,65
24,65
26,05
2
3
1
Damer      
GT Vikingarna
Bolbro G & IF
Asker
SVE
DAN
NOR
25,45
26,25
24,95
2
1
3

Mix      
Helsingborg Turn
GK Motus - Salto
Greve/Kalundborg
SVE
SVE
DAN
24,50
25,25
25,15
3
1
2
Level2      
Selfoss
Kolbotn Ils
Gerpla
ISL
NOR
ISL
24,60
23,75
22,65
1
2
3

NM Trupp:
Takk fyrir hjálpina


[24/04/2004]

Norðurlandamótið í hópfimleikum hefur verið í undirbúningi í nokkuð langan tíma enda bæði umfangsmikið og krefjandi verkefni að skipuleggja og framkvæma mót með um 300 þátttakendum frá öllum norðurlöndunum. Stjórn Fimleikasambands Íslands vill þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd mótsins fyrir þeirra hjálp sem var ómetanleg. Takk fyrir hjálpina.
Stjórn FSÍ

Preparation for the Nordic competition in Team Gymnastic has taken a long time and it has been very cahallenging task to organise and execute competition with 300 participants from all the Nordic region. The bord of Gymnastic Association thanks all the volunteers for their invaluable help.
Thank you all.


NM Trupp::
Nordic competition in Team Gymnastic


[22/04/2004]

Next weekend will be very exciting for everyone who are interested in Gymnastics in Iceland. On Saturday the Nordic competition in Team Gymnastic will take place in Reykjavík. The number of participants, coaches, administrators and other guest are close to 400 people. During the weekend it is our goal to publish all relevant information regarding the competition on the web www.fimleikar.is
On the right side corner on the opening page of www.fimleikar.is there is a link to special information web regarding the competition. Link to the web here.
If websides visitors have any questions regarding the competition then feel free to send email to the address fimleikar@fimleikar.is


Áhaldafimleikar karla:
Góð keppnisreynsla


[22/04/2004]


Unglingalandslið Íslands á Evrópumótinu fyrir viku síðan. Frá vinstri Anton H. Þórólfsson, Róbert Kristmannsson, Bjarki Ásgeirsson, Gunnar Sigurðsson og Jónas Valgerisson. Koma þeir allir úr Ármanni nema Róbert sem er úr Gerplu.

Eins og greint hefur verið frá þá sendi Fimleikasamband Íslands unglingalandsliðið til þess að taka þátt á Evrópmumóti í áhaldafimleikum sem fór fram fyrir um viku síðan. Einnig voru tveir þáttakendur í flokki fullorðina. Eins og gefur að skilja þá er hér um að ræða eitt af sterkustu fimleikamótunum sem við getum sent lið á og því mikil og dýrmæt reynsla fyrir okkar framtíðar fimleikamenn að fá að taka þátt á mótinu. Meðfylgjandi myndir sýna glögglega að hér er um að ræða mót á heimsmælikvarða.

Hópmynd í París

Sjá hér videoupptökur: 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11, 12, 13 og 14.


Almennar fimleikafréttir:
Fimleikaháskóli í danmörku

General gymnastik news:
Gymnastik university in danmark

[22/04/2004]

Fimleikaháskólin í Ollerup er nútíma íþróttaháskóli þar sem boðið er upp á 4ra, 5 og 9 mánaða nám. Nemendur í háskólanum búa á heimavist og því er mikið um félagslíf og íþróttastarf utan skólatíma. Háskólin er bæði með úti og innisundlaug, fullkomna aðstöðu fyrir fimleikakennslu með 6 stórum trampolínum, fiberstökkbraut, klifuraðstöðu o.fl. o.fl. Nánari upplýsingar á: http://www.ollerupgymhj.dk

Gymnastik university in Ollerup is modern university in sports where students can select from 4, 5 or 9 month seminars. Students live at the university while the seminars take place and there fore students do much sports activity along with the seminars. The university has both indoor and outdoor swimming pool, excellent gymnastic hall with 6 big trampoline, fiber-floor and many other facilities. For more detail information log on to the web : http://www.ollerupgymhj.dk


Almennar fimleikafréttir:
Flott heimasíða hjá Fimleikadeild Ármanns


[21/04/2004]

Að undanförnu hefur heimasíða Fimleikadeildar Ármanns tekið miklum breytingum og er nú svo komið að þar er að finna mikið af fróðleik um mót og starfsemi félagsins. Þar má einnig finna flottar myndir sem teknar hafa verið við ýmis tækifæri í starfssemi félagsins. Allt áhugafólk um fimleika er hvatt til þess að kíkja á síðuna. Sjá hér: http://www.armenningar.is/fimleikar/


Hópfimleikar:
Norðurlandamót unglinga í hópfimleikum


[18/04/2004]

Norðurlandamót unglinga í hópfimleikum fer fram 24. apríl n.k. í Laugardalshöll. Keppt verður í kvenna-, karla og blönduðum liðum.

Hér er um að ræða fjölmennast fimleikamót ársins í hópfimleikum og er búist við mjög skemmtilegu móti.

Aðgangseyrir er aðeins kr. 500.- fyrir 12 ára og eldri. Allir eru hvattir til þess að mæta tímanlega því búist er við miklum fjölda áhorfenda.

  Kl. 11:45
Setning

Kl. 12:00
Level II

Kl. 12:30
Karla- og blönduð lið

Kl. 14:10 Kvennalið

Búist er við sterkum liðum á Norðurlandamótið og þá sérstaklega frá Danmörku og Svíþjóð. Myndin var tekin af sigurliði í karlaflokki á fyrri hluta Danska meistaramótsins sem fór fram í byrjun mánaðarins.

Áhaldafimleikar karla:
Rúnar í 24. sæti í úrslitum í fjölþraut á EM

Jón
[17/04/2004]

Runar Alexandersson, Gerplu, hafnaði í 24. sæti með 50,075 stig fjölþrautarúrslitum sem fóru fram í dag. Hér má sjá einkunnir allra keppenda í fjölþrautarúrslitum á EM.
Hér má sjá nánari umfjöllun um mótið.


Áhaldafimleikar karla:
Rúnar í úrslit í fjölþraut á EM

Jón
[17/04/2004]

Runar Alexandersson, Gerplu, hafnaði í 23. sæti með 51,337 stig í undankeppni fyrir fjölþrautarúrslitum sem fór fram í gær (16.4) en þá fór jafnframt fram liðakeppni þar sem sigurvegararnir frá því í fyrra frá Rúmeníu sigruðu aftur með 171,084 stig (úrslit liðakeppni hér). Rúnar tryggði sér þátttökurétt í fjölþrautarúrslitum þar sem 24. efstu komast áfram (fjölþrautarlisti hér). Aðeins munaði 0,05 að Rúnar hefði komist í úrslit á Bogahesti (listi með úrslitum á áhöldum hér).
Núverandi Íslandsmeistari í áhaldafimleikum Viktor Kristmannsson Gerplu hafnaði í 41. sæti með 48,898 stig. Að sögn Guðmundar Þórs Brynjólfssonar þá er þetta hans besti árangur hingað til (mbl 17.4). (úrslit einstaklinga hér).


Rúnar komst ekki í úrslit á bogahesti á EM í Ljubliana í Slóveníu og eru það ákveðin vonbrigði fyrir hann.

Nánari upplýsingar um fréttir á mótinu má finna á heimasíðunni http://www.gymmedia.com/
Til samanburðar má bera saman einkunnir Viktors á EM við einkunnir úr úrslitum í fjölþraut á síðasta Íslandsmóti sem fór fram 20. mars eða fyrir um þremur vikum síðan. Það er ljóst að hann hækkar sig um 1 stig. Rúnar keppti ekki á s.l. Íslandsmóti.

  Gólf   Bogi   Hringir   Stökk   Tvíslá   Svifrá   EM Islm.
  EM Islm. EM Islm. EM Islm. EM Islm. EM Islm. EM Islm.    
Viktor 8,025 7,9 8,362  9,1  8,187, 7,4, 8,637, 8,45, 8,037 7,9, 7,65 7,1 48,898 47,85
Rúnar 8,825   9,6    8,575    8,7   9,187   6,45   51,337  

Áhaldafimleikar karla:
Unglingalandsliðið í 30 sæti á EM

Jón
[15/04/2004]

Unglingalandslið karla, skipað þeim Jónasi Valgeirssyni, Antoni Heiðari Þórólfssyni, Gunnari Sigurðssyni, Bjarka Ásgeirssyni, öllum úr Ármanni og Róberti Kristmannssyni Gerplu, fékk samtals 130,199 stig á Evrópumóti í áhaldafimleikum sem fór fram í dag í Ljubliana í Slóveníu. Hafnaði liðið í 30. sæti en keppnislið á mótinu voru 31. Að sögn Guðmundar Þórs Brynjólfssonar þá gengu æfingar á gófli vel en í hringjum fékk Bjarki ekki gilt kraftamóment og var með aukasveiflu og smávægileg mistöki hjá Jónasi. Keppni á stökki gekk mjög vel og einnig á tvíslá þrátt fyrir lága upphafseinkunn. Gunnar og Anton gerðu góða svifráæfingar en Jónas datt tvisvar í sínum æfingum á svifrá.
Nánari upplýsingar um fréttir á mótinu má finna á heimasíðunni http://www.gymmedia.com/

Til samanburðar má bera saman einkunnir á EM við einkunnir úr úrslitum í fjölþraut á síðasta Íslandsmóti sem fór fram 20. mars eða fyrir um þremur vikum síðan. Það er ljóst að allir keppendurnir eru að fá lægri einkunnir á EM heldur en á Íslandsmótinu og munar samtals um 5 stigum á einkunnum á EM og á Íslandsmótinu.

  Gólf   Bogi   Hringir   Stökk   Tvíslá   Svifrá   EM Islm.
  EM Islm. EM Islm. EM Islm. EM Islm. EM Islm. EM Islm.    
Jónas 7,9 8,15     7,337 7,7 8,475 8,5 7,025 7,7 6,55 7,35 37,287 39,4
Gunnar 7,875 7,7         8,5 8,4 6,7 7,4 5,75 5,6 28,825 29,1
Róbert 7,925 8,25 6,4 7,35 5,962 5,8             20,287 21,4
Bjarki     7,5 7,6 5,5 6     7,1 7,8     20,1 21,4
Anton     7,825 8,05     8,425 8,3     7,45 7,5 23,7 23,85
                          130,199 135,15

 


Fimleikar í Noregi:
Tilhlökkun fyrir Norðurlandamót í hópfimleikum

Auður Inga
[14/04/2004]

“Af hverju eru svona mörg íþróttahús í Ræghjavíg” segja stelpurnar undrandi þegar hópurinn fór í æfingabúðir til íslands haustið 2002. Já það er kannski svolítið til í þessu hjá stelpunum og þessi frábæri aðbúnaður sem þær fengu að upplifa í Gerplu og Björk var eitthvað sem þær og nánast allir aðrir fimleikaiðkendur í Noregi eru ekki vanir. Það er ein “fimleikahöll” í Oslo en annars æfa flest félög við “mislélegar” aðstæður í skólaíþróttahúsum eða íþróttaháskólanum (þar sem m.a. við leigjum 4 sinnum í viku ásamt öðru félagi). meira
Flottar myndir frá Auði í meðfylgjandi skjali, sjá hér.


Áhaldafimleikar karla:
Gengur vel hjá strákunum og mikill áhugi fjölmiðla

GÞB / JF
[13/04/2004]

Þær fréttir berast frá okkar keppendum á EM í Ljubliana í Slóveníu að æfingar gangi mjög vel. Unglingalandsliðið var á lokaæfingu fyrir mót í keppnishöllinni í dag. Hún fer þannig fram að stutt upphitun á sér stað á hverju áhaldi og svo gerir hver keppandi sínar æfingar á áhöldunum. Allir dómarar eru skyldugir til þess að fylgjast með á þessari æfingu og því má segja að um sé að ræða æfingamót fyrir keppendur. Lokaæfing í keppnishöllinni fyrir eldri hópinn fer fram á morgun. Mættir eru um 30 keppendur á motið.
Áhugi fjölmiðla er mikill fyrir mótinu og er nú þegar búið að setja upp 29 sjónvarpsvélar í keppnishöllinni og munu 16 sjónvarpsstöðvar koma að útsendingu frá keppninni sem fer fram í lok vikunnar. Við á www.fimleikar.is munum fylgjast með keppninni eftir bestu getu þó svo að við höfum ekki margar sjónvarpsvélar á svæðinu !


Áhaldafimleikar stúlkna:
Eydís Lilja sýnir miklar framfarir

Jón F
[12/04/2004]

Eydís Lilja Eysteinsdóttir úr Stjörnunni varð Íslandsmeistari í 4. þrepi á Íslandsmóti í þrepum fimleikastigans sem fór fram fyrir um viku síðan. Eydís er 11 ára og býr í Garðabæ en hún á þrjá eldri bræður, Bjarka Pál 18 ára, Axel Þór 25 ára og Kristinn Jón 28 ára. Eydís hefur æft fimleika í nokkur ár með Stjörnunni. Þjálfarar hennar eru Florin og Mirella Paun en þess má geta að Hanna Lóa Friðjónsdóttir, fyrrverandi Íslandsmeistari í fimleikum, þjálfaði hana fyrir nokkrum árum. Þá hefur Hrafnhildur María Gunnarsdóttir einnig komið að þjálfun Eydísar en Hrafnhildur hefur leikið stórt hlutverk í liði Stjörnunnar í hópfimleikum.
Ef litið er á feril Eydísar er ljóst að henni fer stöðugt fram. Það verður því spennandi að fylgjast með henni keppa í 3. þrepi.
Þrepamót 2003: 30,5 stig.
Bikarmót 2003: 31,598 stig. Hækkun = 1,098
Haustmót 2003: 33,58 stig. Hækkun = 1,986
Þrepamót 2004: 35,151 stig. Hækkun = 1,567
Íslandsmót í þrepum 2004: 37,05 stig. Hækkun = 1,899

Margir aðrir keppendur hafa sýnt sambærilegar framfarir að undanförnu eins og sjá má á einkunnum síðustu tveggja keppnistímabila, sækja skjal hér.


Eydís Lilja Eysteinsdóttir úr Stjörnunni er Íslandsmeistari í 4. þrepi 2004.

Áhaldafimleikar karla:
Landslið í áhaldafimleikum karla að keppa á EM

Axel Bragason
[11/04/2004]


Keppendur og þjálfarar sem fara á EM en á myndina vantar Rúnar Alexandersson

Dagana 15.-18. apríl mun unglingalandslið og landslið karla í fimleikum keppa á Evrópumóti sem haldið er í Ljubliana í Slóveníu. Unglingalandsliðið skipa þeir Jónas Valgeirsson Ármanni, Anton Heiðar Þórólfsson Ármanni, Gunnar Sigurðsson Ármanni, Bjarki Ásgeirsson Ármanni og Róbert Kristmannsson Gerplu. Þjálfari er Axel Bragason. Landslið karla skipa Rúnar Alexandersson og Viktor Kristmannsson Gerplu. Þjálfari er Guðmundur Brynjólfsson.

Aðsendar myndir og fréttir:
Ánægðir keppendur eftir meistaramót í almennum fimleikum

JF / Ragnheiður
[11/04/2004]

Mikið af fréttum sem birtast á www.fimleikar.is eru aðsendar frá ýmsum fimleikafélögum út um allt land. Vel hefur tekist til við að fá fólk til þess að senda inn fréttir og myndir. Hér til hliðar má sjá ánægða keppendur eftir Meistaramót í almennum fimleikum sem fór fram í byrjun febrúar. Myndir af fimleikafólki á góðri stundu eru aldrei of gamlar til þess að birta á síðunni og því eru þið öll hvött til þess að senda enn frekari fréttir og myndir. Við höfum öll svo gaman af því að fá að vita sem mest um hvað er að gerast í fimleikahreyfingunni.
Netfangið er: fimleikar@fimleikar.is


Olympiuleikar:
Dýrustu miðarnir á úrslit í fimleikum á Ólympiuleikunum

Auður Inga / JF
[10/04/2004]

Þegar miðaverð á viðburði Olympiuleikanna eru skoðaðir þá kemur í ljós að eftirspurn eftir miðum á úrslit í áhaldafimleikum er svo mikil að miðarnir eru verðlagðir hærra en inn á aðra viðburði á Olympiuleikunum. Inn á opnunar- og lokaatöfnina eru dýrustu miðarnir en svo koma fimleikar.
Gaman er að bera saman verð inn á handbolta og fimleika. Sú staðreynd blasir við hérlendis að fjölmiðlar fjalla nánast ekkert um fimleika ef umfjöllunin er borin saman við umfjöllun um handbolta. Á Olympiuleikum er þó mikill munur á miðaverði inn á úrslitaviðburði þessara greina.

Handbolti:
10-15 evrur á undankeppni í handbolta
15-25 evrur á undanúrslit í handbolta
30-45 evrur á úrslit í handbolta
Fimleikar:
35-65 evrur á undankeppni í fimleikum
120-200 evrur á úrslit í fimleikum

Sjá nánar hér: http://www.tickets.athens2004.com/

Video:
Dianne Dos heimsmeistara í gólfæfingum kvenna o.fl.

Guðmundur Þór
[10/04/2004]

Hér má sjá nokkur flott myndbönd.
Dianne Dos Santos heimsmeistarinn á gólfi, myndband fyrsta stökkseria, píruett og þrefölld skrúfa.
Rúnar Alexandersson á bogahesti, myndband upphitun og keppni.
Önnur flott myndbönd: yfirslag tvöfallt heljar, shukahara tvöfallt, tvöfallt heljar með tvöfalldri skrúfu í afstökk á hringjum.

 


Dianne Dos Santos heimsmeistari í gólfæfingum frá því í USA í fyrra ásamt félögum sínum á góðri stundu.

Íslandsmótið í þrepum íslenska fimleikastigans:
Grótta, Stjarnan, Gerpla og Fylkir næla sér í Íslandsmeistara

Guðrún V.
[7/04/2004]


Íslandsmeistari í fyrsta þrepi varð Karitas Harpa Davíðsdóttir úr Gerplu, í öðru sæti varð Fanney Hauksdóttir Gróttu og Fríða Rún Einarsdóttir Gerpu varð í þriðja sæti.

Í fimmta þrepi varð Ingunn Erlendsdóttir Gróttu Íslandsmeistari með 37.075 stig, í öðru til þriðja sæti saman Tinna Óðinsdóttir Gróttu og Linda Björk Árnadóttir Gerplu með 36.600 stig. Fjórða varð sigrún Dís Tryggvadóttir Fylki með 36.450 og fimmta Harpa Rún Ásmundsdóttir Björk með 36.300.stig. meira hér

Stúlkurnar í fimmtaþrepi ánægðar með verðlaunin.
Aðrar myndir hér

Unglinga og eldriflokkamót FSÍ:
Grótta og Gerpla skipta með sér unglinga og eldriflokka meistaratitlum

Guðrún V.
[7/04/2004]

Unglinga og eldriflokkamótið fór fram í Bjarkarhúsinu og hófst kl. 18.30. var það tvískipt að þessu sinni, en Fríða Rún og Fanney voru einar í telpnaflokki svo þær kepptu með unglingaflokknum. Þar voru 13 keppendur frá einungis tveimur félögum. Gerplu og Gróttu.
Í fjölþraut í unglingaflokki, varð Kristjana Sæunn Ólafsdóttir Gerplu unglingameistari með 31.47 í einkunn. Í öðru sæti varð Harpa Snædís Hauksdóttir Gróttu með 30.50. Í þriðja sæti Karítas Harpa Davísðdóttir Gerplu með 29.60. Í fjórða sæti Fanney Hauksdóttir Gróttu með 29.40 og í fimmta sæti Fríða Rún Einarsdóttir Gerplu með 29.30.
Í Eldriflokki voru 6 keppendur frá þremur félögum: Eldriflokkameistari varð Hera Jóhannesdóttiir, Gróttu með 31.52 samtals. Í öðru sæti Inga Rós Gunnarsdóttir Gerplu með 31.18 og í þriðja sæti Tanja Björk Jónsdóttir, Björk með samtals 30.57. Sif Pálsdóttir Gróttu í fjórða sæti með 30.02 stig og í fimmta sæti Björk Óðinsdóttir Gróttu með 27.57 stig. meira hér


Norðurlandamót í áhaldafimleikum:
Viðurkenning eftir góðan árangur á norðurlandamóti

Guðrún V. & Jón
[7/04/2004]

Eftir góða frammistöðu stúlknalandsliðsins á nýafstöðnu Norðurlandamóti þá var tekið vel á móti þeim Heru Jóhannesdóttur, Sif Pálsdóttur og Auði Jónu Guðmundsdóttur við heimkomu í Gróttu. Þær þrjár ásamt Tönju B. Jónsdóttur úr Björk og Ingu Rós Gunnarsdóttir úr Gerplu skipuðu landslið stúlkna sem náði þeim góða árangri að hafna í þriðja sæti á liðakeppni á Norðurlandamóti í áhaldafimleikum sem fram fór í Svíþjóð dagama 26. og 27. mars.
Þegar okkar fólk stendur sig vel á mótum á alþjóðlegum vettvangi er nauðsynlegt að staldra við og líta yfir farinn veg en aðeins tvisvar sinnum hefur íslenska stúlknalandsliðinu tekist að komast á verðlaunapall í liðakeppni á norðurlandamóti.


Hera Jóhannesdóttir, Sif Pálsdóttir og Auður Jóna Guðmundsdóttir allar úr Gróttu.

Unglinga og eldriflokkamót FSÍ:
Ármenningar vinna í báðum aldursflokkum á Unglingameistaramóti

Kristín Ó.
[7/04/2004]

Þann 2. apríl fór fram Unglinga og eldriflokkamót FSÍ í fimleikahúsi Bjarkanna í Hafnarfirði. Í karlaflokki var keppt í tveimur aldurshópum, 14-15 ára og 16-18 ára. Í yngri flokknum kepptu 5 drengir frá Ármanni og Gerplu. Bjarki Ásgeirsson, Ármanni sýndi mikla yfirburði og sigraði á öllum áhöldum með 42,75 stig samtals. Í öðru sæti lenti Ingvar Jochumsson, Gerplu og í þriðja sæti var Ólafur Gunnarsson, Gerplu. Í eldri flokknum kepptu 11 ungir menn frá Ármanni og Gerplu. Þar sigraði Jónas Valgeirsson, Ármanni, með 46,25 stig. Jónas er því unglingameistari FSÍ 2004. Í öðru sæti var Anton H. Þórólfsson, Ármanni og í því þriðja Róbert Kristmannsson, Gerplu. Á einstökum áhöldum sigraði Róbert á gólfi og bogahesti, Jónas sigraði í hringjum og á tvíslá, Anton sigraði á svifrá og Gunnar Sigurðsson og Róbert urðu jafnir í efsta sæti á stökki.




Íslandsmót í þrepum íslenska fimleikastigans:
Íslandsmeistarar framtíðarinnar standa sig vel í þrepunum

Kristín Ó.
[7/04/2004]

Þann 3. apríl var haldið Íslandsmót í þrepum. Drengjamegin kepptu einstaklingar frá tveimur félögum, Ármanni og Gerplu í öllum þrepum. Þarna er örugglega að finna nokkra Íslandsmeistara næstu ára. Í 1. þrepi sigraði Bjarki Ásgeirsson, Ármanni, Ingvar Jochumsson, Gerplu var annar og Ólafur Gunnarsson, Gerplu þriðji. Í öðru þrepi voru allir keppendur frá Gerplu, þar sigraði Hlynur Kristjánsson, Helgi Steinsson var í öðru sæti og Brynjar Jochumsson í því þriðja. Í þriðja þrepi sigraði Sindri Steinn Davíðsson, Ármanni, Hávar Helgi Helgason, Ármanni var í öðru sæti og Atli Jasonarson, Ármanni var í þriðja sæti. Í fjórða þrepi varð Garðar Guðmundsson, Gerplu í 1. sæti, Gústav Óli Jónsson, Ármanni í öðru sæti og Víðir Helgi Helgason, Ármanni í þriðja sæti.


Flottar myndir af hópfimleikamóti í Danmörk:
Danska meistaramótið

Jón Finnbogason
[6/04/2004]


Stjarnan hafnaði í öðru sæti á Danska meistaramótinu í hópfimleikum sem fram fór um síðustu hlegi. Er það frábær árangur hjá Íslands- og Bikarmeisturum í hópfimleikum.

Fimleikadeild á uppleið:
Innanfélagsmót Fjölnis

Ólöf Sigríður E.
[6/04/2004]

Iðkendum Fimleikadeildar Fjölnis fer stöðugt vaxandi og fer iðkendafjöldinn að nálgast 200. Á dögunum hélt fimleikadeild Fjölnis í fyrsta skipti innanfélagsmót dagana 25.-27. mars. Í fyrri hluta mótsins kepptu 30 piltar á einu til þremur áhöldum, í öðrum hluta kepptu 28 stúlkur í 6.þrepi áhaldafimleikastigans og 16 stúlkur kepptu í 1. þrepi almenna stigans. Í þriðja og fjórða hluta kepptu 97 stúlkur í svokallaðri gellugráðu (sem var miserfið eftir aldri keppendana). Þar sem að þetta var fyrsta innanfélagsmótið sem að Fjölnir heldur og allir að stíga sín fyrstu spor í keppni þá fengu allir verðlaunapening fyrir að taka þátt. Keppendur voru einungis dæmdir útfrá einkunnum í fyrsta og öðrum hluta. Lögð var áhersla á að kenna iðkendum hvernig mót fara fram og að koma fram fyrir dómara. Myndir hér I og fleiri myndir hér II


Hressir strákar með þjálfaranum Ómari Erni Ólafssyni sem er þekktur fyrir að halda uppi fjöri hvar sem hann kemur.

Fyrsta héraðsmót HSK í fimleikum:
Fjölmenni á vel heppnuðu fimleikamóti

Engilbert Ó.
[6/04/2004]

Föstudaginn 2. apríl sl. var fyrsta HSK-mótið í hópfimleikum haldið í íþróttahúsinu á Selfossi. Sextán lið, um 180 börn og unglingar, mættu til keppni. Framkvæmdin gekk mjög vel og var öllum þeim sem að henni komu til mikils sóma.
Fimleikanefnd HSK, en í henni eiga sæti Olga Bjarnadóttir, Steinunn Eggertsdóttir og Dröfn Guðbjörnsdóttir, skipulagði mótið í samvinnu við Fimleikadeild Umf. Selfoss sem var mótshaldari.
Veitingasala var í höndum foreldraráðs meistaraflokksins á Selfossi og um leið fjáröflun fyrir ferð hópsins á sýninga- og æfingaferð til Finnlands í júlí nk. meira hér


Nýir þjálfarar:
Gerpla býður velkomin þau Mette, Jakob og Karl Gustav til Íslands

Hrund Þ.
[6/04/2004]

Mette og Jakob eru danskt par sem ætla að þjálfa hópfimleika í Gerplu næsta árið. Með í för er tæplega tveggja ára sonur þeirra Karl Gustav. Jakob hefur aðstoðað við þjálfun danska unglingalandsliðsins, þjálfað Danmerkurmeistara yngri og mið í hópfimleikum til fjölda ára og lið hans fékk silfur á Norðurlandamótinu 2002. Jakob er lærður þjálfari sem og sjúkraþjálfi með sérhæfingu í bakmeiðslum.
Mette hefur þjálfað vinningslið Danmerkur í hópfimleikum: 1989-94 mið hóp, 1995-96 yngri hóp og var þjálfari blandaða liðsins (mix) sem vann Norðurlandamótið 1998. Mette er dómari í hópfimleikum. Hún er kennari með sérmenntun í uppeldis- og sálfræði. Hún hefur starfað með börnum með Down-syndrom og í almennri í sérkennslu í skóla. Bæði hafa þau unnið mikið með danska fimleikasambandinu.
Þetta er mikill fengur fyrir Gerplu. Þau munu koma að þjálfun flestra hópfimleikahópanna með einum eða öðrum hætti.

Myndir frá Heimsbikarmótinu í Lyon í Frakklandi

[17/03/2004]






Allar myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.

Fimleikar ehf.