|
|
|
| Nú
um síðustu helgi fór fram Vormót í
hópfimleikum. Tíu lið kepptu í þremur
aldursflokkum. Í fyrsta sæti í yngri hóp
varð Gerpla P3 með 21,63 stig. Í fyrsta sæti
í mið hóp varð Selfoss T2 og sigurvegarar
í eldri hóp varð Grótta með 24,29
stig.
Grótta er kominn með mjög sterkt lið. Það
var skemmtilegt að sjá hversu stórstígum
framförum hópurinn hefur tekið í vetur.
Sérstaklega ber að nefna dans hópsins en 8,5
stig ber vott um að hópurinn sé búinn
að ná góðum tökum á æfingum
sínum. Einnig er mikill kraftur í stökkum bæði
á trampolíni og dýnu. Mikil liðsheild
og gleði ríkir meðal stúlknanna á
keppnisstað og kemur það greinilega fram í
æfingum þeirra.
Meira
|
Sigurlið
Gróttu í eldri flokk með 24,29 stig.
Myndir
af mótinu.
|
| Norðulandamót
unglinga, drengir |
|
|
Nú
um næstu helgi fer fram í Osló Norðurlandamót
unglinga í fimleikum. Eins og venjulega senda Íslendingar
full lið pilta og stúlkna. Tækninefnd karla tilkynnti
nú fyrir skemmstu lið íslands í piltaflokki
og athygli vekur að allir piltarnir fimm koma úr Ármanni.
Aðeins einn Gerplupiltur, Róbert Kristmannsson, var
valinn til fararinnar en hann gaf ekki kost á sér
vegna prófa. Það er slæmt að þessi
staða skuli koma upp á hverju vori að fimleikafólki
skuli ekki geta keppt á Norðurlandamótum vegna
prófa.
Meira
|
| Hera
Jóhannesdóttir, Gróttu, keppir á Norðulandamóti |
|
| Hera
Jóhannesdóttir, Gróttu, er nú að
undirbúa sig undir þátttöku á
sínu fyrsta Norðurlandamóti í áhaldafimleikum
sem fer fram í Noregi helgina 3. - 4. maí n.k.
Hera hefur æft fimleika í mörg ár, nú
í Gróttu en hún byrjaði í KR,
en nú æfir hún sex sinnum í viku þrjá
tíma í senn. Þjálfarar hennar eru Ásdís
Pétursdóttir og Berglind Pétursdóttir
(þó ekki systur!).
Hera er fædd 1988 og er í 9. bekk og stefnir á
nám í MR eða MH en hún býr í
vesturbæ Reykjavíkur. Foreldrar hennar eru Margrét
Sigmarsdóttir og Jóhannes Þórðarson.
Meira
|

Hera Jóhannesdóttir Gróttu er að fara
á Norðurlandamót í fimleikum eftir viku. |
| Edda
Dögg Ingibergsdóttir, keppir á Norðulandamóti |
|
| Edda
Dögg Ingibergsdóttir, Björk, er nú að
undirbúa sig undir þátttöku á
sínu fyrsta Norðurlandamóti í áhaldafimleikum
sem fer fram í Noregi helgina 3. - 4. maí n.k.
Edda Dögg hefur æft fimleika í Björk í
mörg ár en nú æfir hún sex sinnum
í viku þrjá tíma í senn. Þjálfari
hennar er Jóhanna Rósa Ágústsdóttir.
Edda Dögg er fædd 1988 og er í 9. bekk í
Setbergsskóla í Hafnarfirði þar sem hún
býr en hún hefur ekki enn ákveðið
hvaða framhaldsnám verður fyrir valinu.
Meira
|

Edda Dögg Ingibergsdóttir Bjrök er að fara
á Norðurlandamót í fimleikum eftir rúma
viku. |
| Námskeið
í Ólympíu í Grikklandi |
|
|
Íþrótta-
og Ólympíusamband Íslands hefur valið
Jón Finnbogason og Lisebet Hauksdóttir til að
vera fulltrúar Íslands á alþjóðlegu
námskeiði í Ólympíu í Grikklandi
30. júlí - 13. ágúst n.k. en námskeiðið
fjallar m.a. um "Education through Sport" en það
er þema ársins hjá Alþjóða
Ólympíunefndinni og sömuleiðis mun
Evrópusambandið kalla árið 2004 ár
menntunar í gegnum íþróttir.
Námskeiðið
var auglýst á www.fimleikar.is
11. mars sl.
Sjá frétt á www.isisport.is
Lisebet
Hauksdóttir útskrifast í vor sem íþróttafræðingur
frá KHÍ og hefur stundað skíðaíþróttina
í gegnum árin og orðið Íslandsmeistari
í skíðagöngu.
Jón Finnbogason er lögfræðingur og fyrrverandi
landsliðsmaður í fimleikum til margra ára
en hann þjálfaði einnig fimleika. Jón
hefur starfað innan FSÍ sem formaður tækninefndar
karla, stjórnarmaður í stjórn FSÍ
og nú í laganefnd FSÍ.
Jón er með heimasíðuna www.fimleikar.is
og stofnaði Fimleikasjóð Íslands. |
| Myndir
af NM í hópfimleikum |
|
|
Þröstur
Hrafnsson þjálfari í Björk tók
mikið af myndum á NM. Við sem ekki gátum
farið á þetta frábæra mót
getum hér séð lítið brot af því
hversu mikil skemmtun það er að taka þátt
í móti sem þessu. Ég vek sérstaka
athygli á nokkrum videomyndböndum. Þar má
sjá að bestu liðin eru greinilega að gera fimleika
á mjög háum standard. Stelpur! ef þið
eruð óánægðar með myndirnar þá
bara sendið þið mér póst og ég
redda því kannski! en það er engu að
síður gaman að sjá "lífið"
bak við tjöldin.
Meira
|
| NM
í hópfimleikum í Hróaskeldu |
|
| Úrslit
á NM í hópfimleikum liggja fyrir. Tvö
lið kepptu fyrir hönd Íslands á mótinu
og komu þau úr Björk og Stjörnunni en á
mótinu kepptu samtals 10 lið. Lið Bjarkar fékk
8,7 stig fyrir dans, 7,95 stig fyrir dýnu og 7,55 á
trampolíni og samtals 24,2 stig og hafnaði
í 7. sæti. Lið Stjörnunnar
fékk 8,3 stig fyrir dans, 7,45 stig fyrir dýnu og
8,0 á trampolíni og samtals 23,75
stig og hafnaði í 8. sæti.
Í fyrstu tveim sætunum voru lið frá Danmörku
og í þriðja sæti varð lið frá
Svíþjóð.
Nánar verður fjallað um mótið þegar
frekari upplýsingar liggja fyrir. |
| Sara
Sif Sveinsdóttir, Gerplu, keppir á Norðulandamóti |
|
| Sara
Sif Sveinsdóttir, Gerplu, hefur staðið sig mjög
vel í allan vetur og sigrað á hverju mótinu
af fætur öðru í keppni í fyrsta þerpi.
Hún stefnir nú á að taka þátt
í sínu fyrsta Norðurlandamóti sem fram
fer í Noregi helgina 3. - 4. maí n.k. en það
mun jafnframt verða hennar fyrsta mót sem hún
tekur þátt í erlendis.
Sara Sif hefur æft fimleika í Gerplu síðan
hún var 5 ára. Þjálfarar hennar eru
Svetlana Makaritseva og Vlatimir.
Meira
|

Sara Sif Sveinsdóttir Gerplu er að fara á Norðurlandamót
í fimleikum eftir tvær vikur.
Hér
eru 12 myndir.
|
| Íslensk
lið á NM í hópfimleikum í Hróaskeldu |
|
| Núna
á laugardaginn 19. apríl er Norðurlandamót
í hópfimleikum haldið í Roskilde "Hróaskeldu"
í Danmörku. Þar munu lið frá Björk
og Stjörnunni taka þátt en það eru
liðin sem voru efst á Íslandsmótinu nú
í mars.
Að sjálsögðu vonumst við eftir góðum
árangri á mótinu. Liðið frá
Björk er í góðu formu og vel stemmt fyrir
keppnina. Lið Stjörnunnar hefur á hinn bóginn
orðið fyrir miklum hremmingum. Tvær stúlkur
hafa slasast frá því á Íslandsmótinu
Ragnheiður Ragnarsdóttir fótbrotnaði á
æfingu í vikunni eftir mótið og nú
fyrir 10 dögum lennti Sólveig Jónsdóttir
í alvarlegu bílslysi og liggur ennþá
á sjúkrahúsi. Bættust þessi slys
við mörg sem dunið hafa á liðinu á
síðasta ári. Varamenn eru komnir inn í
liðið í þeirra stað og er liðið
staðráðið í að gera sitt besta. |

Sólveig Jónsdóttir á afmælissýningu
Stjörnunnar í janúar. |
| Halldór
B. Jóhannsson þolfimimeistari er að fara að
keppa þann 19. apríl í Japan á mjög
sterku móti í þolfimi. Halldóri var
sérstaklega boðið á þetta mót
og er það mikill heiður fyrir hann enda er hann
í 4. sæti á Heimslista FIG Alþjóðafimleikasambandsins. |
| Unglinga-
og eldriflokkamót, Ármann og Grótta sigursæl |
|
| Unglinga-
og eldriflokkamótið fór fram í Íþróttamiðstöðinn
Björk laugardaginn 12. apríl. Keppt var sex flokkum.
Mikið var um glæsilegar æfingar á mótinu
og mátti einnig sjá nokkra keppendur sem voru að
taka þátt í sínu fyrsta móti
í frjálsum æfingum.
Keppendur frá Ármanni
í drengjaflokki og Gróttu í stúlknaflokki
voru sigursæl á mótinu. Teitur
Páll Reynisson úr Ármanni sigraði
í flokki 15 ára og yngri með 36,4 stig. Jónas
Valgeirsson úr Ármanni sigraði í
flokki 16 - 18 ára með 43 stig. Erlendur
Kristjánsson úr Gerplu sigraði í
eldri flokk drengja með 29,2 stig. Kristjana
Sæunn Ólafsdóttir sigraði í
telpnaflokki (´91 og síðar) með 29,967 stig.
Harpa Snædís Hauksdóttir sigraði í
stúlknaflokki (´88 - ´90) með 30,901 stig.
Sif
Pálsdóttir sigraði í eldri flokk
stúlkna (´87 og fyrr) með 32,317 stig.
Meira
|

Jónas Valgeirsson
Sigurvegari í flokki 16 - 18 ára.
Hér eru
150 myndir.
|
| Fimleikasjóður
Íslands úthlutar kr. 110.000 |
[12/4/03] |
| Fimleikasjóður
Íslands veitti í dag fimleikafólki styrki.
Að þessu sinni var aðeins samþykktir styrkir
til afreksfólks og ákveðið að bíða
með frekari styrki til uppbyggingarstarfs. Úthlutað
var kr. 110.000. Stjórn sjóðsins þakkar
öllum styrktaraðilum sjóðsins fyrir framlög
þeirra og vonast til að fleiri sjái sér
fært að taka þátt í að styrkja
fimleikafólk til keppnisferða og uppbyggingastarfs
innan fimleikahreyfingarinnar. Upplýsingar um sjóðinn
má finna á þessari heimasíðu.
| Styrkþegar |
Styrkur |
|
| HM
hópur í Björk |
Björk |
kr.
30.000 |
| Sif
Pálsdóttir |
Grótta |
kr.
10.000 |
| Hera
Jóhannesdóttir |
Grótta |
kr.
10.000 |
| Harpa
Snædís Hauksdóttir |
Grótta |
kr.
10.000 |
| Elín
Andrésdóttir |
Grótta |
kr.
10.000 |
| Rúnar
Alexandersson |
Gerpla |
kr.
10.000 |
| Dýri
Kristjánsson |
Gerpla |
kr.
10.000 |
| Grétar
K. Sigþórsson |
Ármann |
kr.
10.000 |
| Anton
Heiðar Þórólfsson |
Ármann |
kr.
10.000 |
Samtals |
|
kr.
110.000 |
|
Hera Jóhannesdóttir
fékk styrk úr sjóðnum í fyrsta
skiptið. Með öflugu samstarfi frá fimleikaáhugafólki
mun hún og annað efnilegt fimleikafólk njóta
góðs af því í framtíðinni.
|
| Fróðleiksmoli
dagsins ! |
[10/4/03] |
|
Breyttir
tímar og breyttar áherslur kalla oft á ný
vinnubrögð. Í ársskýrslu FSÍ
1980 - 81 má sjá hvernig valið var í
landslið kvenna á NM 1980 og hvernig veglegt fylgdarlið
fór með keppendum á mótið en þetta
var í fyrsta sinn sem stúlkur frá Íslandi
voru sendar á NM :
|
"Norðurlandameistarmót
í fimleikum kvenna var haldið 2 - 3. maí
í Rovaniemi í Finnlandi sem er lítil
en vinaleg borg nyrst í landinu. Í febrúar
bárust tvö bréf til stjórnar
FSÍ frá Íþróttafélaginu
Gerplu í Kópavogi og Fimleikafélaginu
Björk í Hafnarfirði og höfðu
þau áhuga á að senda stúlkur
á NM. Var þegar hafist handa með að
kanna kröfur í æfingum og annað
sem vita þurfti. Var síðan ákveðið
að Ísland sendi keppendur og var það
í fyrsta sinn sem við sendum stúlkur
til keppni á NM. Val á keppendum fór
þannig fram að félögin komu með
uppástungur um hvaða stúlkur kæmu
til greina, en lokaákvörðun var tekin
á sameiginlegum fundi sem haldinn var með stjórn
og þjálfurum Gerplu og Bjarka ásamt
stjórn FSÍ.
Stúlkurnar voru: Berglind Pétursdóttir
Gerplu, Áslaug Óskarsdóttir Gerplu,
Kristín Gísladóttir Gerplu, Brynhildur
Skarphéðinsdóttir Björk,
Rannveig Guðmundsdóttir Björk og til vara:
Svava Mathiesen Björk.
Þjálfarar voru Margrét Bjarnadóttir
Gerplu og Karólína Valtýsdóttir
Björki. Farastjóri: Birna Björnsdóttir.
Með í ferðinni voru Guðrún B.
Kristinsdóttir Björk, Katrín Guðmundsdóttir
Gerplu, ásamt form. FSÍ Ástbjörgu
Gunnarsdóttir sem stödd var á egin
vegum í Danmörku og slóst í
för með okkur til Finnlands." |
|
| TKV
birtir lágmörk fyrir HM í áhaldafimleikum
kvenna ´03 |
|
|
Í
dag sendi FSÍ frá sér tilkynningu þar
sem birt var bréf Tækninefnd
kvenna (frá
2. apríl) þar sem gert var
grein fyrir ákvörðun um lágmörk fyrir
þátttöku á Heimsmeistaramóti kvenna
2003.
Tilkynning
tækninefndarinnar er svo hljóðandi:
|
"TKV
hefur ákveðið viðmiðunar lágmörk
fyrir þátttöku íslenskra keppenda
í kvennaflokki á HM í áhaldafimleikum
kvenna 2003. Á sl. áratugi hefur TKV haft
32 og 33 stig í fjölþraut til viðmiðunar
sem jafngildir 8.0 og 8.25 stigum í meðaleinkunn
á áhaldi.
TKV
hefur að þessu sinni ákveðið
að setja 31 stig til viðmiðunar eða 7.75
stig í meðaleinkunn á áhöldunum
fjórum. Líkt og ávallt áður
mun núverandi keppnistímabil hérlendis
og erlendis telja fyrir keppendur.
TKV áskilur sér samt sem áður
rétt til breytinga fyrir lokaskráningu á
þátttökufjölda á mótið.
Samkvæmt þessum kröfum TKV hafa nú
þrjár stúlkur náð þessum
lágmörkum. Þær Sif Pálsdóttir
Gróttu, Inga Rós Gunnarsdóttir Gerplu
og Tanja B Jónsdóttir Björk."
|
|
Sjá
umfjöllun hér. |
| Dýra
gekk vel á stærsta móti vetrarins |
|
|
|
Dýri
Kristjánsson Gerplu var að keppa á einu stærsta
háskólamóti keppnistímabilsins, BIG
10 Championships, sem er mót þar sem 6 háskolalið
koma saman og keppa hvert við annað. Þetta er mjög
sterkt mót sem allir bíða í ofvæni
eftir allt tímabilið.
Með umfjölluninni má sjá mikið af myndum
af Dýra.
Meira
|
 |
| 200
keppendur á hópfimleikamóti |
|
| Gymneastrata-hópur
Gerplu bauð til Byrjendatrompmóts laugardaginn 29.mars
í Gerpluhúsinu. Þátttakan fór
fram úr öllum vonum og skráðu sig 18 lið
til keppni sem varð til þess að mótinu var
skipti í 2 hluta, yngri keppendur og eldri. Gaman var að
sjá hve góð mæting var utan að landi
en helmingur liðanna kom einmitt frá Þorlákshöfn,
Hveragerði, Keflavík, Selfossi og alla leið frá
Egilsstöðum. Þetta sýnir hve vel þetta
form fimleika hentar fyrir öll félög stór
og smá. |
| Dýri
keppti um síðustu helgi |
[27/3/03] |
| Betra
er seint en aldrei ! en Dýri Kristjánsson keppti
um síðustu helgi og fékk 7,95 stig á
bogahest, 8,15 stig á tvíslá og 7,75 stig
á svifrá. Hér
má sjá nánar um mótið. |
| GK
byrjendamót í áhaldafimleikum |
[27/3/03] |
| Meistaraflokkur
Fimleikadeildar Gróttu stendur fyrir byrjendamót
í 5. og 6. þrepi n.k. sunnudag kl. 10:00 í
íþróttahúsi Gróttu, Seltjarnarnesi.
Mótið verður mjög fjölmennt þar
sem m.a. 13 lið taka þátt í 6. þrepi.
Fyrst og fremst er um liðakeppni að ræða en
einnig verða veitt verðlaun fyrir 3 stigahæstu einstaklingana.
Auk þess verður valið prúðasta liðið
en dómarar mótsins munu velja það út
frá því hvaða lið skapar mikla stemmningu,
hvetur liðsmenn sína er kurteist og snyrtilegt, svo
eitthvað sé nefnt. Mótið er liður í
fjármögnun keppnisferða meistaraflokks nú
í vetur en þær ferðir sem um ræðir
eru m.a. NMJ
og Ólympíuleikar æskunnar svo eitthvað
sé nefnt. Frekari upplýsingar veitir Ásdís. |
| Fimleikasjóður
Íslands óskar eftir umsóknum um styrki |
|
|
Fimleikasjóður
Íslands óskar eftir því að sjóðnum
verði sendar umsóknir um styrkveitingu. Til stendur
að úthluta kr. 50.000,- í tveimur
styrkjum. Sjóðurinn hefur verið starfræktur
síðan 1999 og er nokkrir fimleikaáhugamenn og
konur sem styrkja sjóðinn mánaðarlega með
fjárframlögum (sjá félagatal).
Nú þegar hafa sex einstaklingar og sex fimleikafélög
um land allt fengið styrki úr sjóðnum (sjá
lista yfir styrkþega).
Umsóknir skal senda með tölvupóst á
fimleikar@fimleikar.is
í síðasta lagi 7. apríl n.k. Á
heimasíðu sjóðsins má sjá
úthlutunarreglur sjóðsins. Allir geta gerst
félagar í sjóðnum og hjálpað
til við að styðja við bakið á okkar
frábæra fimleikafólki (hér
má skrá sig í sjóðinn). Frekari
upplýsingar veitir undirritaður og Guðmundur
Þór Brynjólfsson.
Fyrir hönd Fimleikasjóðs Íslands
Jón Finnbogason |
| Unglinga-
og eldriflokkamót
FSÍ |
[25/3/03] |
| Laugardaginn
29. mars næastkomandi mun fara fram Byrjendamót Gerplu
í hópfimleikum í Íþróttahúsi
Gerplu.
Meira. |
|
|
|