|
|
|
Norður Evrópumót í
áhaldafimleikum
|
|
|
25/08 |
Skipulag námskeiða ÍSÍ
sept. - des 2007.
|
|
Skjal
II |
24/08 |
Námskeið í Reykjavík:
Þjálfarastig 1, hvert námskeið
er 20 kennslustundir: Þjálfaranámskeið
1a, 28.-30. sept. í íþróttamiðstöðinni
í Laugardal. Þjálfaranámskeið
1b, 12.-14. okt. í íþróttamiðstöðinni
í Laugardal. Þjálfaranámskeið
1c, 26.-28. okt. í íþróttamiðstöðinni
í Laugardal. Þjálfarastig 2 (sjá
hér neðar)
Stafganga. Leiðbeinendanámskeið í
Stafgöngu í Íþróttamiðstöðinni
í Laugardal 8. september.
Ofangreind námskeið ráðast af þátttöku
hverju sinni. Námskeið á Akureyri:
Þjálfarastig 1, hvert námskeið
er 20 kennslustundir: Þjálfaranámskeið
1a, 5.-6. okt. í aðstöðu ÍSÍ
að Glerárgötu 26. Þjálfaranámskeið
1b, 19.-20. okt. í aðstöðu ÍSÍ
að Glerárgötu 26. Þjálfaranámskeið
1c, 2.-3. nóv. í aðstöðu ÍSÍ
að Glerárgötu 26. Þjálfarastig
2 (sjá hér neðar)
Ofangreind þjálfaranámskeið ráðast
af þátttöku hverju sinni.
Námskeið á Reyðarfirði: Leiðbeinendanámskeið
í Stafgöngu á Reyðarfirði 15.
september. Þjálfarastig 2, kennt í
Reykjavík og á Akureyri: Þjálfaranámskeið
á 2. stigi þjálfaramenntunar ÍSÍ
verða með öðru sniði en námskeið
á 1. stigi. Um er að ræða 5 kennslustunda
lotur sem verða í boði á virkum
dögum á milli 17.00 og 21.00. Efnisflokkar
eru: Sálfræði íþrótta,
Starfsemi líkamans, Skipulag þjálfunar,
Íþróttameiðsl, Næring íþróttafólks,
Lyfjamál, Siðfræði, Forvarnir, Viðbragðs-
og hraðaþjálfuN. Samtals verða þetta
40 kennslustundir auk tveggja kennslustunda prófs.
Þessi námskeið munu hefjast í
október og verða auglýst á heimasíðu
ÍSÍ og í fjölmiðlum. Þau
verða í boði í Rvk og á Akureyri.
Fjarnám í þjálfaramenntun:
1. stig þjálfaramenntunar ÍSÍ
verður áfram í boði í fjarnámi
eins og undanfarin misseri. Næsta fjarnám
mun hefjast mánudaginn 24. september nk. og tekur
það átta vikur. Skráning á
namskeid@isi.is eða í síma 514-4000
og þarf henni að vera lokið fyrir miðvikudaginn
19. september. Með skráningu þarf að
fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og
símanúmer. Rétt til þátttöku
hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.
Allar nánari uppl. um þjálfaramenntun
ÍSÍ gefur sviðsstjóri Fræðslusviðs
í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is
|
Míla og Fimleikasamband Íslands
í samstarf:
|
Fréttatilkynning
frá Mílu. |
Skjal |
24/08 |
Efla á íslenska
landsliðið í áhaldafimleikum.
Míla ehf. hefur ákveðið
að efla íslenska landsliðið í
áhaldafimleikum. Skrifað var undir samning
þess efnis milli Mílu og Fimleikasambandsins
í Versölum, íþróttasal
Íþróttafélagsins Gerplu, í
dag að viðstöddum menntamálaráðherra,
Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.
Samningurinn er til þriggja ára. Í
ár er áhersla á stuðning við
för íslenska landsliðsins á Heimsmeistaramót
í áhaldafimleikum kvenna og karla. Mótið
verður haldið í Stuttgart í Þýskalandi
dagana 26. ágúst - 10. september næstkomandi.
Þrír piltar og þrjár stúlkur
voru valin til að taka þátt fyrir Ísland
hönd. Sjá hér.
|
Umfjöllun um Fimleika í fréttum
RÚV
|
|
24/08 |
Umfjöllun um Fimleika í fréttum
Stöðvar 2
|
|
24/08 |
Fimleikadeild Fjölnis www.fjolnir.is/fimleikar
er á sínu sjöunda starfsári
og er fjöldi iðkenda í deildinni komin
í rúmlega 400. Deildin hefur staðið
í miklu uppbyggingarstarfi síðustu ár
og er árangurinn að skila sér. Okkur
vantar því metnaðarfulla þjálfara
til starfa bæði fyrir byrjendur og keppnishópa
í áhaldafimleikum kvenna og karla og fyrir
keppnishópa í hópfimleikum. Áhugasamir
sendi umsóknir sínar á netföngin
annabergmann@simnet.is
og/eða olofs@hive.is
Nánari upplýsingar veita Anna formaður
fimleikadeildar í síma 699-2365 og/eða
Ólöf yfirþjálfari áhaldafimleika
í síma 897-6569. Öllum umsóknum
verður svarað.
|
Blaðamannafundur fimmtudaginn 23.ágúst
kl. 13:30
|
|
21/08 |
Staðsetning: Versalir (Íþróttahús
Gerplu í Kópavogi).
Tími: Fimmtudagur 23. águst kl 13.30
Efni fundar: Samstarfssamningur milli Mílu ehf.
og Fimleikasambands Íslands.
Hrund Þorgeirsdóttir
|
Nýjar uppfærslur af fundargerðum
frá FSÍ. Sjá hér.
|
Heimsmeistaramótið í Þýskalandi
1. til 9. september
|
|
12/08 |
Þátttakendur á HM
í september verða: Róbert Kristmannsson,
Rúnar Alexandersson, Viktor Kristmannsson, Fríða
Rún Einarsdóttir, Margrét Hulda Karlsdóttir
og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir. Dómari
í ferðinni verða þau Berglind Pétursdóttir
og Björn M. Tómasson.
|
Please find attached invitation for
the 4th International competition in artistic gymnastics
“Bitola 2007”.
Sjá skjal.
|
The 19-21 of October 2007, the Malarcup
is held in Stockholm in Sweden. It is a team competition
in Artistic gymnastics for club teams. Gymnasts in all
ages are welcome to compete. Please visit our webpage
for more information:
http://www.malarcupen.se
Sjá skjöl skjal
1, skjal
2, skjal
3 og skjal
4.
|
Varðandi fatnað á mótum.
Sjá hér.
|
Íslenski fimleikastinginn
|
Tækninefnd
karla / GÞB |
12/08 |
Varðandi þrep hins íslenska
fimleikastiga (Tækninefnd karla)
1. Lágmarkseinkunn til að
ná þrepi og færast því
upp um þrep er sem hér segir, einungis er
mögulegt að ná þrepum á mótum
á vegum FSÍ það er haustmóti,
þrepamóti, bikarmóti og íslandsmóti
í þrepum
a. 5. þrep 84,00 stig einungis
er keppt í flokki 9 – 10 ára á
mótum á vegum FSÍ
b. 4. 3. og 2. þrep 84,00 stig
c. 1. þrep ekki gefin upp lágmarksstig.
2. Þegar keppandi hefur náð
þrepi er honum leyfilegt að halda áfram
í því þrepi út keppnistímabilinu
(september til maí)
3. Keppanda er leyfilegt að byrja
hvar sem er í stiganum og sleppa úr þrepi
eða þrepum
4. Þegar keppandi hefur einu sinni
hafið keppni í þrepi er honum óheimilt
að færa sig aftur niður um þrep
5. Þegar keppandi hefur keppt í
frjálsum æfingum á íslandsmeistamóti
eða bikarmóti í frjálsum æfingum
er honum leyfilegt að keppa í þrepum
íslenska fimleikastigans út það
keppnistímabil. Á næsta keppnistímabili
er honum ekki leyfilegt að keppa í fimleikastiganum
eingöngu í frjálsum æfingum.
6. Þjálfurum og dómurum
er skilt að kynna sér innihald og breyringar
sem kunna að verða á framkvæmd og
dómgæslu á þrepunum.
7. Allar breytingar sem gerða eru
á fimleikastiganum eru senda til aðildarfélaga
FSÍ með tölvupósti og er meginreglan
að breytingar séu aðeins gerðar við
lok keppnistímabils.
Þeir piltar sem náðu eftirfarandi stigum
á tímabilinu sem er lokið færast
því upp um þrep. Þeir piltar
sem uppfylla ekki aldursreglur í sambandi við
5. þrep færast því upp í
4. þrep og þeir sem hafa keppt í frjálsum
æfingum á vegum FSÍ færast upp
í frjálsar æfingar.
Bætt hefur verið eftirfarandi töflu inn
í dómarabókina til að gera meiri
mun á þeim sem reyna við allar æfingarnar
í þrepinu í stað þess að
sleppa æfingu. Gildir í 5. – 2. þrepi.
Iðkandi missir að sjálfsögðu einnig
gildi æfingarinnar sem hann sleppir auk þessa
sérfrádráttar.
Frádráttur sem á sérstaklega
við þrep hins íslenska fimleikastiga:
|
| |
Lítil
0,1 |
Meðal
0,3 |
Stór
0,5 |
Æfingar
ekki gerðar í réttri röð |
|
X |
|
Ekki
reynt við æfingu / æfingu sleppt |
|
|
X |
Ekki
reynt við afstökk afstökki sleppt |
|
|
X |
Auka
æfing þar sem hún á ekki að
vera |
|
X |
|
Auka
sveifla í 5,4,3 þrepi á svifrá
og hringjum |
|
|
|
Auka
sveifla í 5,4,3 þrepi á svifrá
og hringjum
|
Ekki
frádráttur (en tekið frá fyrir framkvæmd) |
| |
Tækninefnd
karla / GÞB |
12/08 |
Varðandi lágmörk og þátttökurétt
í þrepum íslenska fimleikstigans:
Þeir piltar sem náð hafa tilteknum stigafjölda
á keppnistímabilinu 2006 - 2007 flytjast
upp um þrep á tímabilinu 2007 –
2008 og hafa ekki þátttökurétt
í sama þrepi og keppt var á því
tímabili. Þeir sem lokið hafa þrepum
eftir keppnistímabilið 2006 – 2007 og
hafa því ekki þátttökurétt
í viðkomandi þrepi og færast upp
um þrep.
5. þrep – 84 stig
4. þrep – 84 stig
3. þrep – 84 stig
2. þrep – 84. stig
1. þrep – þeir sem kepptu í frjáslum
æfingum á tímabilinu.
Á tímabilinu 2007 – 2008
5. þrep – 84 stig eingöngu verður
keppt í aldursflokknum 9 – 10 ára
á mótum FSÍ í þrepinu.
Á haustmóti piltar fæddir 1998 og
1997 og eftir jól drengir fæddir 1998 og
1999.
4. þrep – 84 stig
3. þrep – 84 stig
2. þrep – 84. stig
1. þrep – engin stigalágmörk gefin.
Þeir drengir sem ekki hafa þátttökurétt
á næsta tímabili eru þeir sem
keppa á Íslandsmeistaramóti eða
Bikarmóti í frjálsum æfingum.
Í þrepum íslenska fimleikastigans
keppa piltar 16 ára og yngri það er drengir
fæddir 1991 fyrir áramót og 1992 eftir
áramót.
|
2. stig þjálfaramenntunar ÍSÍ,
almenns hluta.
|
|
12/08 |
2. stig þjálfaramenntunar
ÍSÍ, almenns hluta.
Í haust býður ÍSÍ upp
á nám á 2. stigi þjálfaramenntunar
ÍSÍ, almenns hluta þar sem m.a. verður
farið í þætti eins og sálarfræði,
siðfræði, næringarfræði,
forvarnir, lyfjanotkun, starfsemi líkamans og íþróttameiðsl.
Þetta nám mun hefjast í október,
gilda jafnt fyrir allar íþróttagreinar
og verða með nokkuð öðru sniði
en nám á 1. stigi. Um er að ræða
5 kennslustunda áfanga sem kenndir verða á
virkum dögum, líklega á bilinu 17-21.
Rétt til að sækja nám á
2. stigi hafa allir sem lokið hafa 1. stigi hjá
ÍSÍ eða í framhaldsskólum
(ÍÞF 1024). Einnig þurfa þjálfarar
að hafa lokið skyndihjálparnámskeiði
og eiga að baki 6 mánaða starfsreynslu
sem þjálfarar.
Námið verður auglýst vel í
ágúst og september næstkomandi, á
heimasíðu ÍSÍ og í fjölmiðlum.
Allar frekari upplýsingar veitir sviðsstjóri
Fræðslusviðs ÍSÍ á
vidar@isi.is eða
í síma 460-1467.
|
 |
|
|
|