Vel heppnað námskeið

Fræðslunefnd FSÍ
27/8/2006

Nú um helgina stóð fræðslunefnd FSÍ fyrir námskeiði 1A í Reykjavík. Voru þátttakendur þrjátíu á öllum aldri og báðum kynjum og fögnum við því mjög. Í fyrsta sinn var fulltrúi frá Kjalarnesi en þar eru nú stundaðir fimleikar, gaman að fá nýjar deildir inn í fimleikana. Snemma varð ljóst að fullt yrði á námskeiðið og myndaðist langur biðlisti. Í framtíðinni eru félög beðin að fylgjast vel með auglýsingum um námskeiðin og hvort biðlisti sé. Einnig er nauðsynlegt að félög og þátttakendur kynni sér hvaða kröfur um inngöngu eru á námskeið hjá sambandinu. Um næstu helgi verður haldið námskeið 1C í Reykjavík. Fræðslunefnd vill þakka félögum sem veittu aðgang að húsnæði sínu vegna námskeiðsins sem og þeim fimleikastúlkum sem sýndu listir sínar á námskeiðinu.


Mótaskrá FSÍ
2006 - 2007

20/8/2006

Dagskrá á þjálfaranámskeiði FSÍ sérgreinahluti 1A
Reykjavík 23. – 24. September 2006

19/8/2006

Námskeiðið er ætlað þeim sem eru að hefja þjálfaramenntun sína í fimleikum.

Laugardagur 2. október:
09:00 – 09:15 Kynning á námskeiði og þátttakendum: Guðmundur Þór
09:15 – 10:40 Hlutverk þjálfarans I, skipulag í æfingasalnum kennari: Guðmundur Þór
10:50 – 12:00 Öryggisatriði í fimleikasalnum kennari Guðmundur Þór
Kennt í ÍSÍ fyrir hádegi
12:00 – 13:15 Matarhlé.
13:15 –14:00 Almenn upphitun yngri hópa, bóklegt
kennari: Sesselja
14:00 – 16:15 Upphitun, grunnhreyfingar, grunnstöður, grunnhopp í fimleikum. Leikir byrjenda og yngri barna í fimleikum verklegt, kennari: Sesselja
Kennt í íþróttahúsi Gróttu Seltjarnarnesi eftir hádegi

 

Sunnudagur 3. október:
09:00 – 10:30 Stökk á bretti og gripæfingar í rimlum og á rá kennarar: Guðmundur og Hlín
10:40 – 11:00 Grunnæfingar á tvíslá karla kennari Guðmundur
11:00 – 12:00 Virkni í þjálfunartímanum kennari Guðmundur
12:00 – 13:00 Matarhlé
13:00– 15:30 Grunnæfingar í fimleikum; kollhnísar, herðarstaða, höfuðstaða, handstaða, handahlaup, brú. Grunnhopp á dýnu/gólfi. Æfingar á jafnvægisslá kennarar: Sesselja og Olga
15:30 – 16:00 Verkefni:Sesselja og Olga
16:15 Áætluð námskeiðslok
Kennt í íþróttahúsi Gerplu Versölum Kópavogi
Fræðslunefnd FSÍ.

Áhaldafimleikar kvenna
Íslenski fimleikastiginn 2007 – 2009

17/8/2006

Tækninefnd kvenna í áhaldafimleikum (TKV) hefur sett fram innihald og uppbygging æfinga í Íslenska fimleikastigans í áhaldafimleikum kvenna sem kemur nú út í stjötta sinn, stiginn hefur þegar verið sendur til félaganna og einnig birtur á fimleikar.is.
Byrjað verður að keppa í honum á þrepamóti FSÍ í febrúar 2007 og einnig verður keppt í honum á Bikarmóti FSÍ í þrepum og á Íslandsmóti í þrepum. Líkt og áður er 6. þrep léttast og ætlað til keppni á innanfélags- og vinamótum en í öðrum þrepum er einnig keppt á mótum FSÍ.



Reykjavík:
Fimleikadeild Ármanns
í glænýjum fimleikasal í Laugardal
v/gervigrasið og félagshús Þróttar
opið hús frá kl.: 14:00 – 16:00
Allir geta prófað fimleika undir leiðsögn þjálfara og
hægt verður að fylgjast með æfingum iðkenda.
Fimleikdeild Fjölnis,
í Fimleikasalnum í Egilshöll
opið hús frá kl.: 15:30 – 18:00
Seltjarnarnes:
Fimleikadeild Gróttu
Íþróttahúsinu Seltjarnarnesi
opið hús frá kl.: 13:00 – 14:00
Kópavogur:
Íþróttafélagið Gerpla
Íþróttahúsinu v/Versali
kl: 15:00 – 15:45 og
kl: 16:00 – 16:45
Skipulagðar æfingar undir stjórn þjálfara, allir geta verið með.
Garðabær:
Fimleikadeild Stjörnunnar
Íþróttahúsinu v/Ásgarð í Garðabæ
opið hús kl.: 11:00 – 13:00.

Hafnarfjörður:
Fimleikafélagið Björk
Haukahrauni 1
opið hús kl.: 11:00 – 14:00
Akranes:
FIMA
Íþróttahúsinu v/Vesturgötu
opin æfing kl.: 09:00 – 11:00
Akureyri:
Fimleikafélag Akureyrar
Íþróttahúsi Glerárskóla
opið hús kl.: 10:00 – 12:30
Egilsstaðir:
Fimleikadeild Hattar
Íþróttahúsinu á Egilsstöðum
opið hús kl.: 10:00 – 12:30 fyrir alla sem vilja vera með
fimleikaiðkendur leika listir sínar.
Stjórnin verður með kaffi og meðlæti í tilefni dagsins
Hornafjörður:
Fimleikadeild Sindra
Íþróttahúsinu
opið hús kl.: 12:00 – 15:00
Vestmannaeyjar:
Fimleikafélagið Rán

Íþróttahúsinu
opið hús kl.: 13:00 – 15:00
Selfoss:
Fimleikadeild UMF Selfoss
Íþróttahúsi Vallaskóla Selfossi
opið hús kl. 10:00 - 13:00.
Kl. 10:00 - 11:00 Kynning á fimleikum fyrir börn og unglinga, allir geta fengið að prófa.
Kl. 11:00 -12:00 Æfing fyrir stráka, allir strákar kvattir til að mæta og prófa.
Kl. 11: 00 -12:00 Áheita-handahlaup T-1, T-2 og T-3, fjáröflun fyrir æfingaferð 2007.
Kl. 12:00 - 13:00 Opin æfing hjá T4, T5 og S1. Hægt að fylgjast með því hvernig fimleikaæfing fer fram.
Íþróttaálfurinn kemur í heimsókn kl. 10:30 til 11:30 og leiðbeinir börnunum í fimleikum.
Hveragerði:
Fimleikadeild Hamars
Íþróttahúsinu í Hveragerði
opið hús kl. 10:30 – 12:00

Ráðstefna og æfingabúðir í hópfimleikum

8/8/2006

Á morgun föstudaginn 8. september og laugardaginn 9. september verður efnt til ráðstefnu og æfingabúðum í hópfimleikum. Það er tækninefnd í hópfimleikum hjá Fimleikasambandinu sem stendur fyrir viðburðinum. Aðalkennarar í æfingabúðunum verða danirnir Johannes Julsgaard þjálfari HSG en félagið er Norðurlanda og Evrópumeistarar í hópfimleikum karla og Flemming S. Johansen frábær fimleikamaður sem er í liðinu.
Þátttakan hefur farið langt fram úr björtustu vonum en 80 þjálfarar og 150 iðkendur eru skráðir. 
Á laugardaginn frá 13.00 – 18.00 verður líf og fjör í Versölum íþróttahúsi Gerplu þegar krakkarnir ásamt þjáfurum verða
Föstudagur 8. september Kl. 18:00 - ca 22:00 verða verklegar æfingar fyrir þjálfara í Gerplu og f.hádegi á laugardag verður upplýsingarfundur um nýjar reglur og rætt um verkefni vetrarins í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Á laugardaginn frá 13.00 – 18.00 verður líf og fjör í Versölum íþróttahúsi Gerplu þegar krakkarnir ásamt þjáfurum verða við æfingar undir stjórn dönsku þjálfaranna með aðstoð fleiri þjálfara.


GIV GAS!!!
- Gymnastik og idrætshojskolen ved Viborg -

5/8/2006

Ævintýrið byrjaði þann 3. janúar 2006, ég sagði bless við alla hér heima á Íslandi og nú lá leiðin til Danaveldis þar sem ég ætaði að dvelja í hálft ár. Ég var með fiðrildi í maganum yfir þessu öllu saman, spenna, tilhlökkun og kvíði allt í bland. Spenna og tilhlökkun yfir því að vera að ,,flytja,, í nýtt land, fara í lýðháskóla, kynnast fullt af nýju fólki, stunda íþróttina mína af kappi og læra fullt af nýjum hlutum, en auðvitað var ég líka stressuð og kvíðin yfir því að vera að fara að ferðast svona ein, fara í burt frá öllum, fara að búa með einhverjum sem ég þekkti ekki og kunna ekki einu sinni tungumálið almennilega.

Sjá nánar hér.


Starf fræðslunefndar FSÍ vetur 2006 / 2007

3/8/2006

Nú í vetur mun fræðslunefnd FSÍ standa fyrir þjálfaranámskeiðum og fræðslukvöldi:
Sérgreinahluti 1A – helgin 23.- 24. september
Sérgreinahluti 1C – helgin 30.sept -1. október
Sérgreinahluti 2A - 11. – 12. nóvember
Sérgreinahluti 2B /Toppþjálfaranámskeið í áhaldafimleikum.
Fræðslukvöld í nóvember
Sérgreinahluti 2C/ Toppþjálfaranámskeið í hópfimleikum –
Sjá nánar hér.


Fleiri myndbönd

Dýri Kristjánsson
21/8/2006

Með því að smella hér: http://youtube.com/watch?v=2lAXdDREEaE&mode=related&search=


Fleiri myndbönd

Þyrí Imsland
21/8/2006

Með því að smella hér: http://www.blog.central.is/pin?page=viewPage&id=844812


Safn af flottum myndböndum

Þyrí Imsland
20/8/2006

Með því að smella á eftirfarandi link má finna fjölda af flottum myndböndum.

Sjá hér: http://www.youtube.com/watch?v=3trvr7cu9BI


" flikk þrefölld skrúfa ! "

20/8/2006

Það má segja að þessi ungi piltur að nafni Tye Hill hafi náð góðum tökum á "skrúfutækninni". Hann leikur sé að því að gera úr kyrrstöðu, flikk og beint í heljarstökk með þrefalldri skrúfu! auk annarra flottra samsetninga. Tye Hill er greinilega töff fimleikamaður !
Hann sést t.d. á löngu tramplíni en vinsældir þeirra hafa verið að aukast en Gerpla er með eitt slíkt í notkun.

Það er ávallt gaman að sjá svona myndbönd. Þið eruð því hvött til þess að senda á fimleikar@fimleikar.is upplýsingar um flott myndbönd sem væri hægt að birta hér.



Vetrarstarf Gerplu

13/8/2006

Íþróttafélagið Gerpla í Kópavogi mun hefja vetrarstarfssemi sína 1. september. Skráning iðkenda hefur ferið vel fram og er allt úthlit fyrir enn frekari aukningu iðkenda hjá félaginu eftir að starfssemi þess flutti í nýtt og glæsilegt íþróttahús að Versölum. Auk hefðbundinnar starfssemi hjá félaginu verður nú boðið upp á ýmsar nýjungar.

Krílahópur 3 til 4 ára
Sérstakur Krílahópur fyrir 3 til 4 ára verður á laugardagsmorgnum þar sem foreldrum verður boðið að taka þátt og innifalið er svo ferð í sund í kjölfarið. Lögð verður áhersla á að fyrstu viðkynni barnanna við íþróttiðkun verð jákvæð og þægileg. Fjölbreytt dagskrá sem byggir á leikjum og notkun á þeirri sérhæfðu aðstöðu sem félagið hefur upp á að bjóða fyrir börn auk þess sem tenging við sundlaugina gerir Krílamorgna að skemmtilegri fjölskyldustund.


Skráning hjá Gerplu er í fullum gangi m.a. í netfangi gerpla@gerpla.is


Þessi ungi piltur kann vel að meta öryggið sem dýnurnar veita og er ófeiminn við að stökkva!

Old-girls
Sérstakur Old-girls hópur með áherslu á alhliða hreyfingu og styrktaræfingar án þess að þátttakendur þurfi að byggja á sérstökum fimleikalegum bakgrunn. Námskeiðið byggir á alhliða fimleikaiðkun með brennslu, teygjum og styrkaræfingum og ýmiskonar fimleikaæfingum sem hentar hverjum og einum.

Fjölbreytt starf
Nánari upplýsingar um ýmsa aðra starfssemi hjá félaginu í vetur má finna á www.gerpla.is

Opinn dagur
Þeir sem hafa ekki enn skráð sig hjá félaginu eiga kost að á kynna sér starfssemi þess og þá frábæru aðstöðu sem iðkendur félagsins hafa til afnota á sérstök opnum degi sem mun fara fram 20. ágúst n.k. milli kl. 12:00 og 15:00.

Keppnishópar þegar byrjaðir
Í byrjun ágúst hófst starfssemi í keppnishópum (hópar A, L, P1 og P2) en í byrjun september mun önnur starfssemi hefjast (hópar G, E, R og P).

Skráningarferli Dagsetningar   Klukkan
Opin kynningardagur 20. ágúst allir velkomnir, sjá gerpla.is 12:00 til 15:00
Skráning lýkur 21. ágúst allir hópar  
Afhending stundaskrár 26. ágúst piltar 12:00 til 15:00
Afhending stundaskrár 27. ágúst stúlkur 12:00 til 15:00
Æfingar hefjast 1. september samkvæmt stundaskrá  

Auður Inga Þorsteinsdóttir veitir nánari upplýsingar um starfssemi félagsins í vetur í síma 557-4925 eða 570-0480.
Þá má einnig fá ítarlegri upplýsingar um vetrarstarf félagsins á heimasíðunni www.gerpla.is
Fyrirspurnum í tölvupósti verður svarað eins fljót og kostur er.
Email: gerpla@gerpla.is


Allar myndir © www.fimleikar.is
Öll almenn notkun á efni sem birtist á www.fimleikar.is er heimil án sérstaks samþykkis. Sjá hér.

Fimleikar ehf.