Fimleikadeild Ármanns
23/8/05

Innritun fyrir haustönn 2005 fer fram á skrifstofu deildarinnar að Sóltúni 16, dagana 24.-26. ágúst 2005, frá kl. 14-19. Boðið verður uppá fimleika fyrir stelpur og stráka frá 5 ára aldri undir umsjón reyndra þjálfara. Byrjendur æfa tvisvar í viku, 50 mín í senn og fá grunnþjálfun sem nýtist í öllum íþróttum. Einnig er boðið uppá framhaldshópa og keppnisþjálfun. Prufutímar verða í boði 22.-24. ágúst frá kl. 17-19. Æfingar hefjast skv. stundaskrá laugardaginn 27. ágúst. Þá verða krílahópar fyrir 3-5 ára börn á laugardögum, sem hefjast 3. sept.
Frekari upplýsingar og skráningarblað fást á www.armenningar.is/fimleikar, í síma 561-8470 og með því að senda tölvupóst á fimleikar@simnet.is.
Stjórn fimleikadeildar Ármanns



Vetrarstarf Gerplu
20/8/05

Vetrarstarf Íþróttafélagsins Gerplu hefst 5. september í nýju og glæsilegu íþróttahús að Versölum í Kópavogi. Til að tryggja forgang í hópa þurfa iðkendur að skila skráningareyðublaði (sjá hér) til félagsins að Skemmuvegi 6 í Kópavogi fyrir 31. ágúst. Tekið er við skáning iðkenda til 31. ágúst í síma 557-4925 og 557-4923. Einnig má fylla út skráningu á heimasíðu félagsins www.gerpla.is eða senda skráningareyðublaðið útfyllt með tölvupósti á netfangið: if.gerpla@simnet.is
Kópavogsbær hefur nú lokið við byggingu á nýju íþróttahús að Versölum með nýjum fimleikatækjum í stæsta og glæsilegasta fimleikasal landsins. Ánægjulegt er að aðstaða til fimleikaiðkunnar hefur nú tekið stórstígum framförum. Á það jafnt við fyrir iðkendur í áhaldafimleikum, hópfimleikum eða í grunnþjálfun.
Stundaskrár verða afhentar þann 3. og 4. september n.k. milli kl. 13:00 – 17:00 í glæsilegri aðstöðu félagsins að Versölum 3. Til að dreifa álagi við afhendingu stundaskrár eru iðkendur sem eru 9 ára og yngri hvattir til að mæta fyrri daginn og eldri iðkendur seinni daginn. Kennsla hefst 5. september í nýju íþróttahúsi.



Fyrirlestur um fimleikaþjálfun
13/8/05

Fimleikadeild Gróttu er með í heimsókn landsliðsstúlkur Belgíu í áhaldafimleikum þessa dagana. Þetta eru 16 stúlkur á aldrinum 12 – 18 ára. Frábært fimleikafólk. Þjálfari þeirra Gerrit Beltman mun halda fyrirlestur mánudaginn 15. ágúst kl. 20.00 í Íþróttamiðstöðinni Laugardal. Gerrit er fyrrverandi landsliðsþjálfari Hollendinga og starfar nú í Belgíu. Hann er með langa reynslu í þjálfun fimleika og hefur náð góðum árangri með sínum fimleikastúlkum. Gerrit hefur heimsótt okkur áður og verið með námskeið og fyrirlestur fyrir okkur. Hann hefur innsýn í hvernig við störfum. Gerrit mun fjalla um sína reynslu af þjálfun og uppbyggingu fimleika. Hvernig hann hefur náð sínum árangri. Hann deila með okkur sínum hugmyndum um hvernig við gætum bætt okkur. Ekki láta þetta fram hjá ykkur fara. Nýtum okkur þann fróðleik sem er í boði til að ná meiri árangri og framförum í fimleikum. Þetta á við um allar greinar og til allra. Fimleikar verða ekki eingöngu til inn í fimleikasal. Stjórnarfólk og foreldrar eiga þar stóran hlut að máli. Fyrirlesturinn er opinn öllum og kostar kr. 1.000.- Nánari upplýsingar veitir Berglind Pétursdóttir í síma 899-2367.


Landslið Belgíu í æfingabúðum á Íslandi
11/8/05

Landslið Belgíu í fimleikum kvenna verður með æfingabúðir hér á landi ásamt meistarahóp fimleikadeildar Gróttu dagana 5-19 ágúst. Hópurinn saman stendur af 16 fimleikastúlkum á aldrinum 12 – 18 ára og fjórum þjálfurum. Í hópnum er ein besta fimleikastúlka Belgíu, Aagje Vanwallegheim en hún er 18 ára gömul. Hún keppti á Olympíuleikunum í Aþenu 2004 og á Evrópumótinu í Debrecen 2005 en þar varð hún í 6.sæti í fjölþraut og 3.sæti í stökki. Einnig er með í för Gaelle Mys en hún er 14 ára gömul, en hún lenti í 7. sæti í fjölþraut á Olympíuleikum æskunnar sem fram fóru á Ítalíu í síðasta mánuði. Þjálfari þeirra, Gerrit Beltman er fyrrverandi landsliðþjálfari Hollendinga og hefur hann enn og aftur sýnt það að hann kann sitthvað fyrir sér sem fimleikaþjálfari. Hann á stóran þátt í framförum Hollendinga í fimleikum og eru þeir í dag meðal sterkustu þjóða í fimleikum. Landslið Belgíu hefur tekið miklum framförum undir handleiðslu hans en aðrir þjálfarar eru Marja Beltman, fyrrverandi landsliðskona Hollendinga og rússnesku þjálfararnir Valentina Soldatenkova Iouri Krichenko. Gerrit hefur áður heimsótt Gróttu og haldið námskeið fyrir fimleikafólk og þjálfara. Einnig hafa bestu fimleikastúlkur Gróttu fengið tækifæri á að æfa með landsliði Belgíu. Æft verður tvisvar á dag, á morgnana 9-12 í æfingasal Gróttu en seinni part dags 15-18.30 hefur æfingasalur Bjarkanna í Hafnarfirði verið tekinn á leigu. Hópurinn mun síðan nota frístundir til þess að skoða sig um. Þetta er frábært tækifæri og hvatning fyrir fimleikafólk Gróttu að æfa með þessum hóp og mikilvæg reynsla fyrir okkar þjálfara sem koma að þessu verkefni. Yfirþjálfari fimleikadeildar Berglind Pétursdóttir (gsm 899-2367), Ásdís Pétursdóttir þjálfari Gróttu sem einnig er landsliðsþjálfari (gsm 896-5960), Jórunn Þóra Sigurðardóttir formaður fimleikadeildar (gsm 862-1045) og Guðrún B. Vilhjálmsdóttir (gsm 698-8824) veita fúslega nánari upplýsingar.


Fimleikaþjálfara: námskeið
11/8/05

Námskeið í smellþjálfun verður haldið föstudaginn 19. ágúst í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi kl 9-17. Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað íþróttaþjálfurum og öðrum þeim sem kenna hreyfiþjálfun af einhverju tagi.
Kennarar á námskeiðinu koma frá einkafyrirtækinu TAGTEACH international (www.tagteach.com) sem sérhæfir sig í að kenna svokallaða smellþjálfun. Sérstök áhersla er lögð á að kenna aðeins eitt atriði í senn og að láta nemandann vita um leið og hann hefur gert rétt. Þessar aðferðir gera því kennsluna markvissa og námið skilvirkara. Árangurinn kemur fljótt í ljós og er sýnilegur kennurum, nemendum og foreldrum. Námskeiðið hentar fyrir flestar íþróttagreinar og hentar sérlega vel fyrir þjálfun fimleika enda er um að ræða mjög hvetjandi og jákvæðar aðferðir. Tveir kennarar verða á námskeiðinu og hefur önnur þeirra 25 ára reynslu af þjálfun fólks í ýmsum greinum, þar á meðal fimleikum. Fjölbreyttur hópur íslenskra kennara og þjálfara í ýmsum greinum hefur skráð sig á námskeiðið (þ.á.m. fimleikum, dansi, skautum, sundi og boltagreinum).
Hjálagt í viðhengjum er tilkynning um námskeiðið og kennara á námskeiðinu. Til eru myndskeið sem hægt er að skoða. Þau eru á vefsíðunni tagteach.com. Til að skoða myndskeiðin getur þú farið á: www.tagteach.com/videos/tag Vegna þess að myndskeiðin sýna börn þá er aðgangur að myndefninu takmarkaður og það þarf að gefa upp lykilorð. Til að skoða: The page will prompt username: type in: tagteacher password is: TTI2004. Allar frekari upplýsingar og skráning hjá Íris Árnadóttir (s: 847-8601)


Yfirþjálfari

 

9/8/05

Fimleikadeild Keflavíkur auglýsir eftir yfirþjálfara, viðkomandi verður að vera jákvæður, skipulagður og hugmyndaríkur. Góð laun í boði.
Fimleikadeild Keflavíkur er á 20. starfsári og 250-300 börn æfa hjá deildinni á hverjum vetri. Fimleikadeild Keflavíkur er með viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndadeild og starfar eftir handbók deildarinnar sem samræmist kröfum ÍSÍ
Einnig vantar okkur þjálfara til að þjálfa börn á aldrinum 3 – 12 ára.
Áhugasamir hafið samband í síma 663 7415 eða sendi E-Mail á edalrein@internet.is




Allar myndir © www.fimleikar.is
Öll almenn notkun á efni sem birtist á www.fimleikar.is er heimil án sérstaks samþykkis. Sjá hér.

Fimleikar ehf.