|
|
|
Áhaldafimleikar:
ÍSÍ
mun áfram styðja Rúnar |
|
[31/08/2004] [JF] |
|
Íþróttafélagið
Gerpla og FSÍ héldu upp á frábæran
árangur Rúnars Alexanderssonar með hátíðlegri
dagskrá í Gerpluhúsinu í dag. Kristján
Erlendsson formaður Gerplu fór yfir sögu Rúnars
frá því hann kom til Íslands 1994
án ríkisborgararéttar og hvernig hann hefur
vaxið sem fimleikamaður undanfarin ár.
Ellert B. Schram Forseti ÍSÍ þakkaði
Gerplu og fimleikahreyfingunni fyrir stuðning við Rúnar
og fullvissaði veislugesti að afrekssjóður
ÍSÍ myndi halda áfram stuðningi við
Rúnar fram að næstu Ólympíuleikum.
Jón Þórisson, aðstoðarforstjóri
Íslandsbanka, afhenti Rúnari myndarlegan styrk
frá Íslandsbanka en bankinn er í Ólympíufjölskyldu
ÍSÍ og hefur stutt vel við bakið á
okkar fremsta afreksfólki í íþróttum.
Gunnar Einarsson formaður FSÍ veitti Rúnari
Gullmerki FSÍ og lýsti því yfir að
FSÍ myndi styrkja hann fjárhagslega auk þess
að taka þátt í kostnaði við
nám hans við íþróttaskóla
á næstu tveimur árum. Fyrir dómgæslu
veitti FSÍ þeim Berglindi Pétursdóttur
og Birni Magnúsi Tómassyni viðurkenningu fyrir
gott starf á Ólympíuleikunum. |

Ellert B. Schram óskaði Rúnari
til hamingju með árangurinn og fullvissaði hann
um áframhaldandi stuðning ÍSÍ.
|
| 
Jón Þórisson afhenti Rúnari
styrk að fjárhæð 250.000,- en Íslandsbanki
er einn af helstu styrktaraðilum Rúnars.
|
Undir
miklu álagi stóðu þau sig mjög
vel og var góður rómur gerður að framgöngu
þeirra. Sameiginlega veitti svo Gerpa og FSÍ þeim
Guðmundi Þór Brynjólfssyni og Rúnari
viðurkenningu fyrir frammistöðu þeirra á
Ólympíuleikunum.
|
Una María Óskarsdóttir,
form. Íþrótta og tómstundaráðs
óskaði Rúnari innilega til hamingju með
árangurinn og hlakkað til að sjá félagið
í nýju glæsilegu húsnæði. |
FSÍ:
Toppþjálfaranámskeið
FSÍ í hópfimleikum tókst vel ! |
|
|
Um helgina hélt fræðslunefnd
FSÍ í fyrsta skipti þjálfaranámskeiðið
sérgreinahluti 2C sem er Toppþjálfaranámskeið
í hópfimleikum og almennum fimleikum. Námskeiðið
er hluti af þjálfaramenntunarkerfi ÍSÍ
og FSÍ og er 30 kennslustundir bóklegar og verklegar.
Fimmtán þjálfarar frá sex íþróttafélögum
luku námskeiðinu sem tókst mjög vel í
alla staði enda kennara og nemendur mjög áhugasamir
um nýjungar í greininni enda hefur mikil þróun
átt sér stað á stökkáhöldunum
og nýjar alþjóðlegar reglur að líta
dagsins ljós.
Kennarar á námskeiðinu voru þau Dorthe
Jensen, Kim Fischer og Jakob Nilsen öll með menntun
og mikila reynslu á þessu sviði fimleika og
þakkar FSÍ þeim sérstaklega fyrir
gott námskeið.
Fræðslunefnd vill einnig þakka þeim 25
stúlkum sem sýndu fimi sína á námskeiðinu
og leyfðu þátttakendum að spreyta sig á
móttöku í erfiðum fimleikaæfingum.
Fræðslunefnd hvetur fimleikafélög og -deildir
til að fylgjast með dagskrá FSÍ og ÍSÍ
um þjálfaranámskeið, málþing
og fræðslukvöld á komandi vetri.
Áfram íslenskir fimleikar ! Fræðslunefnd
FSÍ
|
Áhaldafimleikar:
7. sæti
í úrslitum á ÓL, besti árangur
Rúnars frá upphafi |
|
| Rúnar
Alexandersson framkvæmdi æfingar sýnar með
óaðfinnanlegum hætti í úrslitum
á bogahesti á Ólympíuleikunum og
hlaut 9,725 stig í einkunn og hafnaði í 7.
sæti næstur á eftir núverandi Ólympíumeistara
í fjölþraut og heimsmeistaranum Paul Hamm
(USA) (9,737 stig). Haibin Teng frá Kína sigraði
með 9,837 stig og rauf þar með sigurgöngu
Marius Urzica (9,825 stig) frá Rúmeníu
en hann hefur mjög sigursæll í æfingum
á bogahesti á síðustu árum.
Árangur Rúnars á Ólympíuleikunum
er frábær og enn sem komið er stendur árangur
hans uppúr framistöðu annarra keppenda frá
Íslandi á leikunum í Aþenu. Rúnar
hefur með þessu náð einum besta árangri
sem íslenskur íþróttamaður hefur
náð frá upphafi. Í beinni útsendingu
á RÚV mátti sjá hvern keppandann
sýna stórglæsilegar æfingar en sennilega
hefur aldrei áður verið jafn hörð keppni
í úrslitum eins og sjá mátti að
þessu sinni. Æfingar Rúnars voru glæsilegar,
mjög flóknar og erfiðar, hraðar og hnökralausar
með öllu. Einkunn Rúnars var þó
lægri en í undanúrslitum þrátt
fyrir að hann hafi nú framkvæmt æfingar
sýnar mun betur en þá. Eftir þátttöku
Rúnars á Ólympíuleikunum hefur hann
sýnt að hann er með allra bestu íþróttamönnum
landsins og í hópi bestu bogahestmanna í
heiminum í dag. Rúnar er hógvær en
hann má vera ánægður með þennan
frábæra árangur og að hafa náð
markmiðum sínum á Ólympíuleikunum. |
Áhaldafimleikar:
Hörð
og spennadi keppni í úrslitum |
|
[18/08/2004] [JF] |
| Á
sunnudaginn kemur mun Rúnar Alexandersson keppa til úrslita
í æfingum á bogahesti á Ólympíuleikunum.
Dregið hefur verið um byrjunarröð og ekki verður
annað sagt en að Rúnar hafi verið heppinn
því hann er næstsíðastur upp á
hestinn. Tilkynnt hefur verið að allt bendir til þess
að RÚV muni sýna í beinni útsendingu
frá keppni í úrslitum á bogahesti.
Óhætt er að segja að keppni um verðlaunasæti
verði hörð. Þó verður að telja
að Marius Urzica sé líklegur til afreka en
hann er núverandi Ólympímeistari á
bogahesti en afrekalisti hans er langur á bogahesti.
Þá eru einnig sigurstranglegir fimleikamennirnir
Kashima Takehiro, JPN og Teng Haibin, CHN.Að sjálfssögðu
verður einnig erfitt að keppa á móti nýkrýndum
Ólympíumeistari í fjölþraut
Paul Hamm en hann er einnig núverandi heimsmeistari í
fjölþraut. |

Rúnar Alexandersson á góðan möguleika
á verðlaunasæti í úrslitum á
bogahesti á Ólympíuleikunum en keppnin
verður engu að síður mjög hörð
og allt getur gerst.
|
Í fimleikum getur allt gerst og það sýndi
Paul Hamm þegar hann féll úr 1. sæti
eftir þrú áhöld og í tólfta
sæti eftir fall á stökki en endaði sem
Ólympíumeistari. Við vitum að Rúnar
getur gert ótrúlega hluti og bogahestur er hans
sérgrein. Rúnar hefur fengið góða
forgjöf með því að geta undirbúið
sig vel fyrir úrslitin á sunnudaginn og fer
hann 7. upp á bogahestinn sem er mjög gott. Það
verður spennandi að sjá hvernig úrslitin
sjálf fara en við óskum Rúnari góðs
gengis á sunnudaginn.
Hér að neðan má sjá afrekalista
hjá hverjum keppanda á bogahesti.
|
| |
KASHIMA
Takehiro, JPN, 9,812 |
Olympic
Games
1 Pommel Horse 2000 Sydney, AUS 9.862
2 Pommel Horse 1996 Atlanta, GA, USA 9.825
World Championships
1 Pommel Horse 2002 Debrecen, HUN 9.787
1 Pommel Horse 2001 Ghent, BEL 9.800
1 Pommel Horse 1994 Brisbane, AUS
2 Pommel Horse 1999 Tianjin, CHN 9.762
5 Pommel Horse 2003 Anaheim, CA, USA 9.650
World Cup
1 Pommel Horse 2004 Lyon, FRA 9.825
1 Pommel Horse 2003 Paris, FRA 9.775
1 Pommel Horse 2003 Glasgow, SCO 9.775
1 Pommel Horse 2003 Cottbus, GER
1 Pommel Horse 2003 Thessaloniki, GRE 9.750
1 Pommel Horse 2002 Cottbus, GER
1 Pommel Horse 2001 Paris, FRA 9.750
1 Pommel Horse 2001 Glasgow, SCO 10.000
1 Pommel Horse 2000 Cottbus, GER 9.788
1 Pommel Horse 2000 Glasgow, SCO 9.812
2 Pommel Horse 2003 Stuttgart, GER
3 Pommel Horse 2002 Glasgow, SCO 9.725 |
World Championships
1 Pommel Horse 2003 Anaheim, CA,
USA 9.762
3 Pommel Horse 2002 Debrecen, HUN 9.687
World Cup
1 Pommel Horse 2003 Anaheim, CA, USA (WCh) 9.762
2 Pommel Horse 2003 Glasgow, SCO 9.700 |
| TENG
Haibin, CHN, 9,800 |
TOMITA
Hiroyuki, JPN, 9,750 |
World Championships
1 Pommel Horse 2003 Anaheim, CA, USA 9.762
4 Pommel Horse 2002 Debrecen, HUN 9.662
World Cup
1 Pommel Horse 2003 Anaheim, CA, USA (WCh) 9.762
|
|
| CANO
Victor, ESP, 9,75 |
ALEXANDERSSON
Runar, ISL, 9,75 |
World Cup
1 Pommel Horse 2004 Cottbus, GER
2 Pommel Horse 2000 Ljubljana, SVN 9.763
|
World Cup
1 Pommel Horse 2000 Ljubljana, SVN 9.788
2 Pommel Horse 2000 Glasgow, SCO 9.737 |
| HAMM
Paul, USA, 9,737 |
HUANG
Xu, CHN, 9,737 |
World Championships
8 Pommel Horse 2002 Debrecen, HUN 9.050
World Cup
3 Pommel Horse 2004 Hawaii, USA 9.587 |
World Cup
2 Pommel Horse 2002 Paris, FRA 9.688 |
| VARAMENN |
|
| SUCIU
Ioan Silviu, ROM, 9,712 |
ANDERGASSEN
Thomas, GER, 9,712 |
World Championships
4 Pommel Horse 2003 Anaheim, CA, USA 9.712
6 Pommel Horse 2002 Debrecen, HUN 9.625
8 Pommel Horse 2001 Ghent, BEL 8.775
World Cup
1 Pommel Horse 2004 Ljubljana, SLO 9.725
1 Pommel Horse 2002 Paris, FRA 9.700
1 Pommel Horse 2002 Glasgow, SCO 9.775
2 Pommel Horse 2003 Cottbus, GER
3 Pommel Horse 2004 Cottbus, GER
3 Pommel Horse 2004 Lyon, FRA 9.750
3 Pommel Horse 2003 Paris, FRA 9.625
3 Pommel Horse 2003 Glasgow, SCO 9.650
3 Pommel Horse 2003 Stuttgart, GER
3 Pommel Horse 2002 Cottbus, GER
|
|
| HAMM
Morgan, USA, 9,700 |
|
World Cup
3 Pommel Horse 2004 Hawaii, USA 9.587
|
|
Áhaldafimleikar:
Stórkostlegur
sigur |
|
[15/08/2004] [JF] |
Rúnar
Alexandersson úr Íþróttafélaginu
Gerplu í Kópavogi tryggði sér sæti
í úrslitum á Bogahesti á Ólympíuleikunum.
Er þetta hans besti árangur hingað til. Sýndi
Rúnar að hann er í frábæru
formi því síðasta áhaldið
hjá honum í undanúrslitum var bogahestur
sem af mörgum er talið erfiðasta áhaldið
í áhaldafimleikum karla. Þrátt
fyrir að hafa keppt á fimm áhöldum
og séð alla sína helstu keppinauta gera
æfingar sínar á bogahesti óaðfinnanlega
þá gerði hann sér lítið
fyrir og varð 6. sæti inn í 8 manna úrslit.
Spennan var því mikil þar sem keppinautar
hans í fyrstu tveimur hollunum af þremur höfðu
allir fengið mjög háar einkunnir. Yfirvegaður
og vel undirbúinn kláraði Rúnar æfingar
sínar óaðfinnanlega og varð landi sínu
til sóma. Sæti í úrslitum var í
höfn.
Árangur Rúnars er stórkostlegur sigur
fyrir hann. Keppni um sæti í úrslitum
á Ólympíuleikum er ótrúlega
hörð sem sjá má á því
að aðeins er 0,075 stiga munur á efsta og neðsta
manni inn í úrslit á bogahesti. Til samanburðar
getur hver dómari minnst gefið 0,1 stig í
frádrátt fyrir hverja villu.
|

Rúnar Alexandersson mætti í
sínu besta formi á Ólympíuleikana
og tryggði sér sæti í úrslitum
á Bogahesti.
Fréttir af Rúnari hér:
http://www.fimleikar.is/runar
|
Þegar
svo lítill munur er á 8 bestu keppendunum í
úrslitum eru þeir allir líklegir til þess
að komast á verðlaunapall. Þrátt
fyrir að verðlaunasæti sé aðeins
draumur verður að telja að Rúnar hafi nú
þegar náð sínu markmiði með
glæsilegum hætti. Í æfingum á
bogahesti er hann í hópi þeirra allra
bestu í heiminum.
Rétt er að rifja upp að Rúnar sigraði
í úrslitum á bogahesti á Heimsbikarmóti
í Ljubljana árið 2000 með 9,788 í
einkunn og hafnaði í öðru sæti í
úrslitum á bogahesti í á Heimsbikarmóti
í Glasgow árið 2000 með 9,737 í
einkunn. Það er því ekki nýtt
fyrir Rúnar að hafna í verðlaunasæti
í úrslitum á bogahesti á stórmóti.
Í
fimleikum eru sæti í úrslitum á
Ólympíuleikum oftast þéttsetin
keppendum frá stórveldunum í fimleikum,
s.s. Japan, Kína, Bandaríkjunum, Rúmení
o.fl. stórþjóðum í greininni.
Því vekur það mikla athygli þegar
keppandi frá Íslandi tryggir sér sæti
í úrslitum. Síðustu áratugina
hafa Norðurlöndin ekki átt keppanda í
úrslitum á Ólympíuleikum í
áhaldafimleikum. Því er það
ekki undarlegt að íþróttafréttamenn
frá sjónvarpstöðinni NBC í USA
sýna Rúnari mikinn áhuga og afla sér
upplýsinga um hann eins og aðrir fjölmiðlar
hafa gert sem fjalla um fimleika.
Nánari upplýsingar um úrslit mótsins
má sjá http://www.gymmedia.com/Athens04/
|
Rúnar Alexandersson mun keppa í
úrslitum á sunnudaginn (22. ágúst).
Samkvæmt fyrirliggjandi
sýningardagskrá RÚV er ekki gert ráð
fyrir að sýna í beinni útsendingu
þegar Rúnar keppir í úrslitum.
Fimleikar
eru á dagskrá RÚV sem hér segir:
Mánudagur 16. ágúst ,
21:00, Samantekt af liðakeppni karla (0:00 Liðakeppni
karla)
Þriðjudagur 17. ágúst, 21:00, Samantekt
af liðakeppni kvenna (22:50 Liðakeppni kvenna)
Miðvikudagur, 18. ágúst, 0:00, Samantekt
af úrslitum í fjölþraut karla
Fimmtudagur, 19. ágúst, 21:00, Samantekt af
úrslitum í fjölþraut kvenna
Sunnudagur, 22. ágúst, 22:15, Samantekt
af úrslitum á áhöldum karla og kvenna
Mánudagur, 23. ágúst, 22:50, Úrslitum
á áhöldum karla og kvenna
Þriðjudagur, 24. ágúst, 8:00, Galasýning
Ólympíuleikanna
|
FSÍ:
Þjálfaranámskeið
FSÍ sérgreinahluti 2C - NÝTT |
|
[16/08/2004] |
Helgina 27.-29. ágúst heldur
fræðslunefnd FSÍ nýtt þjálfaranámskeið,
sérgreinahluti 2C, sem er hluti af þjálfaramenntunarkerfi
ÍSÍ og FSÍ.
Námskeiðið er toppþjálfaranámskeið
í hópfimleikum og almennum keppnisfimleikum.
Þetta er framhaldsnámskeið þar sem
farið verður í uppbyggingu og kennslu á
erfiðum keppnisæfingum á gólfi, stökki
á gólfi og trampólíni. Námskeiðið
verður haldið í Reykjavík, er 30 kennslustundir
og hefst á föstudeginum kl. 17:15. Nákvæm
tíma- og staðsetning gefin út síðar.
Kennarar á námskeiðinu eru þau Dorte,
Jakob, Kim og Mette öll frá danaveldi með
menntun og reynslu á þessu sviði fimleika.
Námskeiðið fer því að mestu
fram á ensku og dönsku og skiptist í bóklega
og verklega hluta.
Námskeiðið er ætlað þeim sem
hafa lokið þjálfaramenntun á stigi
1 og 2A sérgreinahluta í nýja kerfinu,
B og C stigi í gamla kerfinu, íþróttakennurum,
kennurum og sjúkraþjálfurum sem og fimleikaþjálfurum
með langa starfsreynslu í kennslu framhaldshópa.
Fræðslunefnd hvetur þjálfara framhaldshópa
til að nýta sér þetta tækifæri
enda margt bæði nýtt og spennandi á
þessu sviði fimleika. Áætlaður
fjöldi þátttakenda er 20-25.
Skráning fer fram á skrifstofu FSÍ, netfang:
fsi@isisport.is og í síma 514-4060. Skila þarf
inn sérstöku skráningarblaði, fylgir
auglýsingu FSÍ og á fimleikar.is, fyrir
20. ágúst.
Námskeiðsgjald 12.000 kr. Umsóknareyðublað
hér.
|
Félagsmál:
Fimleikar í
fjörunni |
|
[15/08/2004] |
Meistarahópurinn í fimleikadeild
Gróttu nýtti sér góða veðrið
sem yljað hefur landsmönnum þessa vikuna, og
skelltu sér á suðurnesströndina á
Seltjarnarnesi milli æfinga.
|

Meistaraflokkur fimleikadeildar Gróttu
|
Áhaldafimleikar:
Allt klárt
fyrir Ólympíuleikana |
|
[7/08/2004] |
| |
Rúnar
Alexandersson hefur nú lokið undirbúningi
fyrir Ólympíuleikana og mun hann keppa í
Grikklandi á laugardaginn kemur. Síðasta sem
Rúnar gerði áður en hann lagði af
stað á sína þriðju Ólympíuleika
var að skoða nýtt íþróttahús
sem Kópavogsbær er að byggja en þar mun
Íþróttafélagið Gerpla verða
með framtíðar aðstöðu sína.
Rúnar var mjög ánægður með
að sjá hversu vel Kópavogsbær er að
styðja við félagið með þessari
aðstöðu sem verður að hans mati sennilega
með því besta sem gerist í Evrópu.
|
Rúnar Alexandersson fyrir framan nýtt
íþróttahús sem Kópavogsbær
er að byggja. Þar mun Íþróttafélagið
Gerplu hafa sýnar framtíðar aðstöðu.
Með honum á myndinni er Kristján Erlendsson
formaður Gerplu (t.h.), Jón Finnbogason varaformaður
Gerplu (t.v) og Guðmundur Þór Brynjólfsson
yfirþjálfari Gerplu en hann mun fara með Rúnari
á Olympíuleikana. |
Rúnari
hlakkar því til að vinna með Gerplu í
framtíðinni bæði í áframhaldandi
keppnum og sem þjálfari við þessar
frábæru aðstæður. Ásamt
Rúnari fer Guðmundur Þór Brynjólfsson
sem þjálfari á Ólympíuleikana.
Berglind Pétursdóttir og Björn Magnús
Tómasson fara sem dómarar.
Óskum við á www.fimleikar.is þeim
öllum alls hins besta.
|
Félagsmál:
Varð að
sleppa síðasta keppnistímabili en nú
er allt á fullu |
|
[3/08/2004] |
Kristín
Gígja Gísladóttir sem æfir
fimleika í Kaliforníu hjá Almaden Valley
Gymnastic Club varð að sleppa síðasta keppnistímabili
vegna slæmra veikinda. Hún keppti á HM
í fyrra með Íslenska stúlknalandsliðinu
og stóð sig mjög vel. Stuttu eftir HM greindist
hún með mononulceousis sýkingu. Hún
gat þó gert stykleikaæfingar og fullar
æfingar annars slagið. Hún náði
næstum að komast á State Championship mótið.
Hún hefur þó nú náð
sér að fullu. Í sumar hefur hún æft
frá kl. 9 til um 2 á hverjum degi. Að hennar
mati þykir henni mest gaman af því að
æfa á sumrin því þá
gefst tækifæri til þess að æfa
nýjar æfingar. Á stökki er hún
nú að æfa Kasamaatzu eða tsukahara með
heilli skrúfu. Á slá er hún að
æfa flikk, flikk án handa, flikk. Auk þess
afstökk á slá með tveimur og hálfri
skrúfu. Á gólfi hefur hún verið
að æfa "front handspring front layout with
a full twist punch front" og "whip back". Það
er alveg ljóst að Kristín Gígja hlakkar
mikið til næsta keppnistímabils þar
sem þessar æfingar ásamt fjölmörgum
öðrum verða framkvæmdar af mikilli nákvæmni
fyrir framan dómara og aðra keppendur. Vonandi
kemst Kristín Gígja á State Championship
mótið og verður til sóma fyrir Íslenska
fimleikaiðkendur.
|

Nokkrar stúlkur úr keppnisliði
Almaden Valley Gymnastics Club en Kristín Gígja
er lengst til vinstri í fremri röð.
Myndir hér
|
| Eldri
greinar um Kristínu Gígju Gísladóttur
hér. |
|
|
|