|
|
|
| Hvar
get ég byrjað í fimleikum ? |
[28/8/03] |
| Fimleikar
er mjög vinsæl íþrótt meðal
annars vegna þess hversu góðan grunn iðkendur
fá fyrir aðrar íþróttir. Á
hverju hausti byrja því mörg hundruð börn
í fimleikum og fimleikasalirnir fyllast af kappsfullum
ungum krökkum í bland við þá sem
eru lengra komnir í greininni. Til að hjálpa
foreldrum með hvar fimleikar eru stundaðir þá
má hér
sjá lista yfir þau félög sem bjóða
upp á fimleikakennslu. Öll félögin á
listanum eru aðilar að Fimleikasambandi Íslands.
|
| Stúlknalandsliðið
toppar á HM |
|
| Stúlknalandslið
Íslands, sem er skipað þeim Sif Pálsdóttur,
Tönju B. Jónsdóttur, Ingu Rós Gunnarsdóttur
og Kristínu Gígju Gísladóttur, hefur
lokið keppni á HM og hlutu þær samtals
123,11 stig. Allar náðu þær að skila
sínum besta árangri hingað til á einstökum
áhöldum eða samanlagt. Árangur þeirra
er því framar björtustu vonum því
á móti eins og HM er dómgæsla mjög
ströng og því erfitt að ná sínum
hæstu einkunnum á slíku móti. Það
tókst okkar stúlkum og er það sigur fyrir
þær enda mættu þær allar mjög
ákveðnar til leiks. Kepptu þær í
nýjum glæsilegum svörtum og rauðum bolum.
Undanúrslit hér
(staða kl. 01:30 ísl. tíma 19/8)
Undanúrslit í liðakeppni hér
(staða kl. 01:30 ísl. tíma 19/8)
Meira
|

Sif Pálsdóttir Gróttu (t.v.), Tanja B. Jónsdóttir
Björk (f.m.) og Inga Rós Gunnarsdóttir Gerplu
(t.h.) Á myndina vantar Kristínu
Gígju Gísladóttur. |
| Rúnar
í 32. sæti í undanúrslitum. Öruggt
sæti á ÓL |
[18/8/03] |
|
Eftir
að allir keppendur hafa lokið sér af í undanúrslitum
liggur nú fyrir að Rúnar Alexandersson úr
Gerplu hafnaði í 32. sæti af 323 keppendum sem
skráðu sig til leiks á HM í fimleikum
í Kaliforníu í USA. Er þetta hans besti
árangur til þessa en hann var inni í keppni
í undanúrslitum allt fram á síðustu
stundu en endanleg niðurstaða varð sú að
hann er annar varamaður inn í 24 manna fjölþrautarúrslit
(sjá hér)
með aðeins 0,299 mun á að komast inn í
úrslitin. Þrátt fyrir að komast ekki í
úrslit á einstökum áhöldum eða
í úrslit í fjölþraut er þetta
hans langbesti árangur til þessa í keppni
í fjölþraut.
Með þessum frábæra árangri hefur
Rúnar tryggt sér öruggan keppnisrétt
á Ólympíuleikunum á næsta ári.
Er hann inni sem þriðji keppandi utan liðaúthlutunar
(keppandi númer 87 af 98 sem keppa á ÓL)
og kemst hann inn við úthlutun á sætum
númer 85 - 94 (sjá reglur hér
og útreikning hér).
Úrslit í liðakeppni hér.
Úrslit í einstaklingskeppni hér.
Keppendur í fjölþrautaraúrslitum hér.
Úrslit á einstöku áhöldum hér.
Heimasíða mótsins hér. |
| Rúnar
inni í úrslitum í fjölþraut og
á bogahesti. Keppnisréttur á ÓL í
höfn.
Þó eiga enn nokkur lið eftir að
keppa. |
|
| Rúnar
Alexandersson úr Gerplu hafnaði í 18. sæti
í undanúrslitum á fyrsta degi HM með
54,386. Er árangur hans frábær og er allt
útlit fyrir að hann hafi tryggt sér keppnisrétt
á Olympíuleikunum í Aþenu á
Grikklandi eftir eitt ár. Miðað við núverandi
stöðu keppninnar þá mun hann taka þátt
í úrslitum í fjölþraut þar
sem aðeins 24 bestu fimleikamenn í heimi geta tekið
þátt auk þess að taka þátt
í úrslitum á bogahesti þar sem 8 stigahæstu
í undanúrslitum taka þátt en Rúnar
hafnaði í 7. sæti í undanúrslitum
á bogahesti eftir fyrsta daginn. Úrslit í
fjölþraut fer þannig fram að efstu 24 úr
undanúrslitum keppa á öllum áhöldum
en þó aðeins 2 frá hverri þjóð.
Þess ber að geta að nú eiga nokkrar þjóðir
eftir að keppa t.d. USA, Frakkar og Kína. Af mörgum
er 24 manna úrslitakeppni í fjölþraut
talin vera mikilvægasta keppnin í áhaldafimleikum
á ári hverju. Ísland hefur aldrei áður
átt keppanda í 24 manna úrslitum og ef Rúnar
heldur sig innan við efstu 24 eftir síðari hluta
þá verður um að ræða stórkostlegan
sigur fyrir Rúnar og fimleika á Íslandi.
Keppnisréttur Rúnars á ÓL virðist
þó vera í höfn m.v. úthlutunarreglur
á sætum 85 - 94 á ÓL sjá reglur
hér.
|

Rúnar Alexandersson átti frábæran dag
á fyrsta degi HM í Anaheim í Kaliforníu.
[Meira]
|
|
Dýri Kristjánsson úr Gerplu hafnaði í
97. sæti eftir fyrsta daginn með 46,487 stig sem verður
að teljast mjög góður árangur fyrir
hann þrátt fyrir smávægileg mistök
á bogahesti. Jónas Valgeirsson úr Ármanni
fékk 41,324 stig og hafnaði í 126. sæti
eftir fyrsta daginn sem einnig verður að teljast góður
árangur þar sem hann fékk aðeins 4,45
stig á bogahesti sem er nokkuð undir hans getu en hann
gerði aftur á móti mjög gott stökk
og fékk 8,5 stig sem er hans hæsta einkunn á
stökki á þessu ári.
Keppendur voru 188. [Meira]
Úrslit liðakeppni hér.
Úrslit einstaklingskeppni hér.
Heimasíða mótsins er hér. |
| Eins
og margoft hefur komið fram er Ísland með stóran
hóp keppenda á HM í Anaheim í Kaliforníu.
Heimsmeistaramótið var sett föstudaginn 15.8.
kl. 19.00 að staðartíma.
Keppnin hefst síðan á laugardag, íslensku
strákarnir keppa á laugardaginn 16.8. kl. 19.00
- 21.00 að staðartíma en stelpurnar keppa á
mánudaginn 18.8. kl. 14.00 - 16.00 að staðartíma.
Heimasíða mótsins er: http://www.worldchampgym2003.com/ |
| Ólympíuhátíð
Evrópuæskunnar
2003 í París
|
|
| Fimleikastúlkurnar
Harpa Snædís Hauksdóttir og Hera Jóhannesdóttir
báður úr Gróttu tóku þátt
í Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar,
sem fór fram í París í Frakklandi
dagana 26. júlí til 2. ágúst sl.
Á mótinu var stór hópur frá
Íslandi eða 49 keppendur, þar af 17 drengir og
32 stúlkur, í íþróttagreinunum
borðtennis, fimleikum, frjálsum íþróttum,
knattspyrnu, júdó og sundi. Auk þess voru
19 þjálfarar og farastjórar eða alls 68
manns.
Meira
Myndir hér.
|
Olympiufáninn
á opnunarhátíðinni |
| 
|
Ýmsar
myndir hér.
Vinningar í happadrætti FSÍ
hér. |
|
|
|
|