|
|
|
Góður
árangur á Norður
Evrópumót í áhaldafimleikum
| Á
Norður
Evrópumótinu sem fram fór um helgina hafnaði Rúnar
Alexandersson Gerplu í 2. sæti í fjölþraut með 52.1 á eftir
Michael Hjort sem sigraði með 52.7 stig en Rúnar sigraði á
bogahest í úrslitum með 9,7 í einkunn sem er sennilega með
bestu einkunn sem Rúnar hefur fengið. Anton H. Þórólfsson
Ármann, hafnaði í 17. sæti með 39.9 stig.
Sif
Pálsdóttir Gróttu hafnaði í varð efst íslensku stúlknanna
og hafnaði í 14. sæti í fjölþraut með 30.225 stig og Inga
Rós Gunnarsdóttir Gerplu þar næst á eftir í 15 sæti með
29.775 stig. Okkar stúlkur komust ekki í úrslit á
áhöldum.
Úrslit
mótsins má finna inn á linkunum í fréttinni hér að neðan.
Stefnt er að því að setja inn myndir af mótinu á sérstaka
síðu síðar í dag eða á morgun þegar keppendur mótsins
hafa sent þær til okkar.
|
11/11/2002
JF
Haustmót
í hópfimleikum
| Haustmót
í hópfimleikum verður haldið í Íþróttahúsinu Austurbergi
23. nóvember n.k. í umsjón Fimleikadeildar Ármanns.
|
11/11/2002 AM
Bjarkirnar
í 8. sæti í úrslitum á EM í hópfimleikum
| Lið
Fimleikafélagsins Bjarkar hafnaði í 8. sæti með 24,9 stig í úrslitum á Evrópumótinu í
hópfimleikum sem var að ljúka rétt í þessu. Liðið
fékk 8,8 stig á gólfi, 7,8 stig á trampolíni og 8,3 stig á
dýnu. Að sögn Þrastar Hrafnssonar þjálfara stúlknanna
þá eru stelpurnar vissulega ánægðar með að hafa komist í
úrslit þó að betur hefði mátt ganga í dag. Á
mánudaginn (4/11) má sjá á síðunni videomyndir af keppninni
og aðrar myndir auk úrslita.
Evrópumeistarar
urðu Danir og Svíþjóð varð í öðru og þriðja sæti.
|
2/11/2002
JF
Guðmundur
fær þjálfarastyrk
| Guðmundur
Þór Brynjólfsson var að fá þjálfarastyrk frá ÍSÍ.
Styrkurinn er að upphæð krónur 50.000,- Eins og kunnugt
er þá er Guðmundur nú í framhaldsnámi í Ástralíu en hann
er sjúkraþjálfari að mennt og hefur þjálfað fimleika í
Gerplu til margra ára auk þess að gegna ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir Fimleikasamband Íslands.
Til
gamans má geta þess að Guðmundur er tíður gestur á www.fimleikar.is
og fær hann þessar fréttir með því að lesa þær hér þar
sem fréttir af fimleikamálum birtast fyrst !!!
|
30/10/2002
JF
Samæfing
fyrir Evrópumót
Samæfing
verður fyrir hópana frá Björk og Stjörnunni sem eru að fara á Evrópumeistara-mótið
í Frakklandi í Bjarkarhúsi sunnudaginn 26. október kl. 17:00, allir
velkomnir
23/10/2002 AM
|
|
|